Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Page 25
PRESSAN 2520. mars 2020
sínum í gegnum árin. Hann verður því að
mestu að láta sér nægja að koma boðskap
sínum á framfæri í gegnum vefsíðu In
fowars og í útvarpsþætti sínum sem er út
varpað á rúmlega 100 útvarpsstöðvum um
öll Bandaríkin.
En Jones tókst auðvitað að gera sér mat
og pening úr þessu og auglýsti ýmsar vörur
á tilboði undir því yfirskini að það þyrfti að
bjarga Infowars og internetinu frá yfirgangi
samfélagsmiðlanna.
Skothelt gler
Infowars er með höfuðstöðvar sínar í
byggingu í iðnaðarhverfi í Austin í Texas.
Þar situr Jones bak við skothelt gler og
breiðir út boðskap sinn. Húsið er ómerkt
og margar eftirlitsmyndavélar eru á því.
Hann bauð blaðamanni New York Times
í heimsókn fyrir um tveimur árum gegn
tveimur skilyrðum. Ekki mátti segja hvar
höfuðstöðvarnar væru og að allt samtalið
yrði tekið upp.
Jones vildi ekki upplýsa hversu marga
starfsmenn hann er með en fyrir dómi
2017 sagðist hann vera með 75 starfsmenn
og 10 verktaka. Það þarf kannski ekki að
koma á óvart að í viðtalinu sagði Jones að
skotvopn væru geymd í höfuðstöðvunum,
en þau væru aðeins til varnar ef þörf krefði.
Í viðtalinu sagði Jones að þau vandræði
sem hann glímdi við væru sönnun þess að
alþjóðlegt net vinstrisinnaðra samtaka vilji
þagga niður í honum. Hann sagðist vita að
tæknifyrirtæki, kínverskir kommúnistar,
demókratar og hinir hefðbundnu fjölmiðl
ar ætluðu að nota hann í baráttunni gegn
Trump, að rangtúlka það sem hann hefur
sagt og klína því á Trump.
„Rannsóknir“
Jones hvetur hlustendur sína oft til að
„rannsaka“ lygarnar og kenningarnar sem
hann setur fram. Ekki er útilokað að þetta
hafi orðið til þess að einhverjir hlustendur
hans hafi framið afbrot.
Árið 2000 náðu Jones og myndatöku
maður hans að lauma sér inn á Bohemian
Grove, þar sem alþjóðlegir kaupsýslumenn
og stjórnmálamenn hittast í sumarfríi sínu,
nærri Monte Rio í Kaliforníu. Þar tóku þeir
upp myndbrot sem Jones fullyrti rang
lega að sýndi „undarlega helgisiði“. Tveim
ur árum síðar fór þungvopnaður stuðn
ingsmaður Jones inn á þetta sama svæði
og kveikti í. Hann sagðist trúa orðum
Jones um að þarna væru börn misnotuð
kynferðis lega og fólki væri fórnað.
Í kosningabaráttunni fyrir forsetakosn
ingarnar 2016 hélt Jones ekki aftur af sér
við að breiða út lygarnar um hið svokallaða
„Pizzagate“ en því fólst að Hillary Clinton,
sem atti kappi við Donald Trump um for
setastólinn, og demókratar starfræktu
barnaníðingshring á pítsastað í Wash
ington D.C. Edgar Maddison Welch, einn
hlustenda Infowars, mætti síðan á pítsa
staðinn síðla árs 2016 vopnaður árásar
riffli. Hann hugðist rannsaka málið og
bjarga börnum sem hann taldi að væri
haldið föngnum á staðnum. Hann hleypti
af skotum inni á staðnum en viðstaddir
náðu að flýja. Hann var dæmdur í fjögurra
ára fangelsi.
Jones hefur árum saman breitt út
fyrrnefndar lygar um að engin skotárás og
fjöldamorð hafi átt sér stað í Sandy Hook
grunnskólanum. Árið 2015 fékk Leonard
Pozner, sem missti son sinn Noah í voða
verkinu í Sandy Hook, YouTube til að fjar
lægja eitt af lygamyndböndum Jones um
þetta. Í kjölfarið birti Jones upplýsingar
um Pozner, hvar hann ætti heima og ann
að. Þetta kemur fram í dómskjölum. Lucy
Richards, tryggur hlustandi Infowars, var
síðar dæmd í fangelsi fyrir að hafa haft í
hótunum við Pozner eftir þetta. Hún hót
aði að verða honum að bana. Poznerfjöl
skyldan hefur síðan nánast verið í felum og
stefndi Jones síðar fyrir þetta. n
„Ég er ekki kaup-
sýslumaður.
Ég er byltingarsinni.
Öll þrif fyrir fyrirtæki,
stofnanir og heimili
Daglegar eða reglulegar ræstingar.
Frostagötu 4c, 603 Akureyri Símar: 461 5232 / 892 Netfang: thrif@thrif.is Veffang: www.thrif.is
Vaktsími
allan sólarhringinn
Það er alltaf hægt að hafa samband við okkur ef
óvænt verkefni koma upp.
Vaktsíminn er 8652425
Hafðu samband
og fáðu tilboð í verkið
Sumir láta blekkjast Einhverjir
trúðu því að Pizzagate væri raun-
verulegt og þyrfti að rannsaka betur.