Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Qupperneq 30
30 20. mars 2020STJÖRNUSPÁ
M
ikið hefur mætt á Ölmu Dagbjörtu Möll-
er landlækni undanfarið vegna COVID-19
faraldursins. DV ákvað því að lesa í tarot
Ölmu og athuga hvað framtíðin ber í skauti
sér á þessum COVID-tímum. Lesendum DV er bent
á að þeir geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV.
Föst í rútínu
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Ölmu er 4 bikar-
ar. Það táknar ástandið núna. Ölmu lík-
ar illa við að vera föst í rútínu og það
er hún vissulega þessa dagana, þótt
hver dagur beri með sér áskoranir
og eitthvað nýtt. Hún má ekki
örvænta því hún sinnir afar
mikilvægu starfi og það sem
henni finnst rútína líta aðr-
ir á sem eitt mikilvægasta
starf landsins. Ölmu vantar
hins vegar eitthvað gefandi
inn í þessa rútínu, einhvern
fjölbreytileika. Hins vegar
líður henni almennt
vel þegar hún staldrar
við og lítur yfir farinn
veg, yfir afleiðingar
ákvarðana sinna.
Hún þarf að vera
duglegri að meta
það sem hún á og
upplifir.
Gjafmild með eindæmum
Svo er það 6 mynt. Alma er afar gjafmild manneskja,
hvort sem það er á fjármuni eða tíma sinn. Hún býr
yfir miklu innra jafnvægi og er ávallt mjög hrein-
skiptin og heiðarleg í samskiptum. Það hefur kom-
ið henni langt og fært henni mikla hamingju, bæði
í vinnu og einkalífi. Því meira sem hún gefur, því
meira hlotnast henni og fyrr en varir flæða nægtir
inn í líf hennar sem aldrei fyrr.
Langþráð markmið
Loks er það Heimurinn. Það táknar enda-
lok þessa risastóra COVID-verkefnis,
sem stundum virðist aldrei ætla að
enda. Farsæld er í nánd og Alma
nær að endurhlaða batteríin
og fyllist af krafti og orku
á ný. Hún mun upplifa
einhvern ánægjulegan
viðburð sem gerir hana
glaða og sú gleði smitar út
frá sér. Ölmu vegnar vel í starfi
og tekið er eftir hvernig hún hef-
ur tekist á við COVID-19. Svo virð-
ist sem tækifæri erlendist frá bjóð-
ist henni áður en árið er úti, tækifæri
sem hún virðist stökkva á. Nýr kafli hefst
og birta umlykur hann. Loks nær hún settu
markmiði, markmiði sem hún einsetti sér að
ná fyrir mörgum árum. n
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 22. – 28. mars
Getur verið að þú þurfir að kyngja stoltinu
og viðurkenna að viss einstaklingur eigi
skilið afsökunarbeiðni frá þér? Þú skalt
hugsa þessa spurningu vel og vandlega
og leggja þitt af mörkum til að grafa
stríðsöxina. Þú skalt líka hafa hugfast að
það er allt í lagi að játa mistök sín þegar
manni hefur orðið á í messunni.
Það hefur einhver heilsufarslegur kvilli
plagað þig síðustu vikur, jafnvel mánuði,
og þú hefur ekki fengið almennilegar
skýringar á því hvað amar að. Nú skaltu
berja í borðið, þótt við lifum á COVID-tím-
um, og fá úr því skorið hvað í ósköpunum
sé að þér. Það er hræðilegt að lifa í óvissu,
hvað þá þegar maður er aldrei fyllilega
heill heilsu.
Nú verður þú að hætta að pæla í öllum
öðrum í kringum þig og hugsa um þig
sjálfa/n. Þú ert búin/n að eyða svo mikilli
orku í óþarfa væl og vesen að það hálfa
væri nóg. Með þessu áframhaldi muntu
einangra þig því, það nennir enginn að
hlusta á þessi ósköp lengur. Og heyrirðu
það?!
Mikið rót hefur einkennt líf þitt undan-
farið og þótt þú sért afar flippuð týpa og
gerir fátt betur en að hlaupa út fyrir kass-
ann þá þarftu samt einnig festu og öryggi
í lífið. Og vegna þess að þú elskar að fara
út úr boxinu þá ættirðu að einbeita þér að
því sem þú getur stjórnað og búa til rútínu
í kringum það. Þá líður þér miklu betur.
Þér finnst eins og ekkert gangi upp þessa
dagana. Eitt óhappið rekur annað og
stundum líður þér eins og umheimurinn
þoli þig ekki. Þú ert komin/n með leiða á
því að berjast í bökkum og skalt athuga
hvort þú getir breytt fjármálunum á ein-
hvern hátt þannig að þú getir betur tekist
á við óvænt útgjöld sem skjóta reglulega
upp kollinum.
Það fer algjörlega með þig þegar
dagurinn raskast og það hefur gerst ansi
oft upp á síðkastið. Þú skalt samt reyna
að halda ró þinni og gera það sem þú
þarft að gera til að láta þér líða betur.
Hugsanlega þarftu að aðlagast breyttum
aðstæðum; fara í göngutúr í staðinn
fyrir að hlaupa á fullu eða setjast niður
með góða bók í staðinn fyrir að horfa á
innihaldslausa skemmtiþætti.
Þér gengur ofboðslega vel þessa dagana.
Þú angar af sjálfstrausti og sjarma og
nærð að heilla nánast alla sem þú hittir
upp úr skónum. Ekki vanmeta sjálfa/n
þig og gríptu þau tækifæri sem þú sérð
á veginum. Vissulega hafa síðustu vikur
ekki verið dans á rósum en nú stefnir allt
í rétta átt.
Einhleypir sporðdrekar eiga ekki sjö
dagana sæla, því alveg hreint hræðileg
ástarsorg bankar upp á. Það er langt
síðan hjarta þitt hefur verið svo kramið
og þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga. Þú íhugar að gera eitthvað virkilega
heimskulegt, en ekki gera það – þér mun
aðeins líða margfalt verr ef þú ferð að
láta eins og bjáni.
Vinur í vanda sækir þig heim og leitar
að húsaskjóli til að losna úr ömurlegum
aðstæðum. Þú getur ekki annað en
samþykkt það en grunar samt að einhver
maðkur sé í mysunni. Áður en langt um
líður færðu grunsemdir þínar staðfestar
og þótt það sé sárt þá er þessi sannleikur
eitthvað sem þú þurftir að fá að heyra.
Það er ekki oft sem steingeitin fær nóg
en nú er komið að því. Þú ert búin/n
að vera mjög þolinmóð/ur að hlusta á
vandamál náins fjölskyldumeðlims en nú
er komið nóg. Nú þarftu að spyrna niður
fótunum og segja það sem þér virkilega
býr í brjósti. Vissulega getur þessi fjöl-
skyldumeðlimur orðið sár því sannleik-
urinn særir stundum, en hann jafnar sig.
Árið hefur leikið þig frekar vel og heppnin
elt þig á röndum. Viðhorf þitt til lífsins
er afar gott og þú virðist geta tekist á
við hvað sem er. Þú skalt halda áfram að
styrkja þig, því holskefla vandamála er á
leiðinni, sem þú kemst vel í gegnum ef þú
spilar rétt úr spilunum. Ekki örvænta og
veldu þér vini varlega.
Þú hefur verið að efast um þig sjálfa/n
undanfarið og finnst ekkert nógu gott
sem þú snertir. Þetta eru óþarfa áhyggjur,
en eru samt sem áður byrjaðar að smita
út í vinnu þína og einkalíf. Ef þú grípur
ekki í taumana fljótlega mun líf þitt verða
ansi lítilfjörlegt og þú munt varla þora að
taka eina einustu ákvörðun í átt til betri
vegar.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
Lesið í tarot landlæknis
Heitasta par bæjarins
- Svona eiga þau saman
n 22. mars Rakel Logadóttir knattspyrnukona, 39 ára
n 23. mars Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, 55 ára
n 24. mars Sveinn Kjartansson matreiðslumaður, 57 ára
n 26. mars Reynir Lyngdal leikstjóri, 44 ára
n 26. mars Glowie söngkona, 23 ára
n 27. mars Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, 82 ára
n 28. mars Harpa Arnardóttir leikkona, 56 ára
Útlönd kalla
Á
hrifavaldurinn Lína Birgitta og
kírópraktorinn Guðmundur Birkir
Pálmason, oft kallaður Gummi „kíró“,
eru heitasta par bæjarins og því lék DV
forvitni á að vita hvernig þau eiga saman, ef
litið er til stjörnumerkjanna.
Gummi er bogmaður en Lína er fiskur.
Þetta er svo sannarlega par sem lætur verkin
tala og draumana rætast þegar þau sameina
krafta sína. Bogmaðurinn er hugsuður, heim-
spekingur og fer auðveldlega úr einu í annað.
Fiskurinn horfir meira inn á við og er í sífelldri
sjálfsskoðun. Að einhverju leyti er hér um að
ræða algjörar andstæður og því finnst sum-
um þau vera ólíklegt par. Hins vegar eru góð-
ar líkur á að hér fæðist afar heilbrigt og gott
samband, ef þau gefa sér tíma til að sinna því.
Þar sem bogmaðurinn er mjög opinn og
félagslyndur þá er hann oft fljótur að grípa til
varna fyrir hlédræga fiskinn. Stundum er það
gott, stundum er það vont. Hins vegar nær
fiskurinn að sýna bogmanninum hvernig á að
slaka á og einbeita sér að einum hlut í einu.
Fiskurinn hefur mikla aðlögunarhæfni og
samkennd. Því á hann auðveldara en flest
merkin með að umbera sveimhugann bog-
manninn. Bæði merki þrá að kanna heiminn
og uppgötva eitthvað nýtt. Þau eru bæði mjög
vinnusöm og ef þau stilla saman strengi gætu
þau gert eitthvað stórkostlegt saman. n
Gummi „kíró“
Fæddur: 10. desem-
ber 1980
Bogmaður
n örlátur
n hugmyndaríkur
n húmoristi
n heiðvirður
n lofar upp í ermina á sér
n óþolinmóður
Lína Birgitta
Fædd: 6. mars
1991
Fiskur
n samúðarfull
n listræn
n blíð
n gáfuð
n píslarvottur
n treystir of mikið
Sæt saman Gummi og Lína.
Mynd: Skjáskot / Instagram @
linabirgittasig