Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Qupperneq 36
36 FÓKUS 20. mars 2020
SVONA MASSARÐU SÓTTKVÍ
n Góð ráð fyrir 14 daga sóttkví n Haltu heilanum uppteknum og geðheilum
Þ
að eru fordæmalausir tímar sem
krefjast fordæmalausra lausna. Ís-
lendingar og aðrir víða um heim
hafa margir þurft að kúpla sig úr fé-
lagslegum aðstæðum og setja nýja reglu
á fastar venjur. Við stöndum öll saman
í þessari krísu og því erum við hér með
góð ráð til að halda heilanum upptekn-
um og brjóta upp á einsleita daga. Regla
númer eitt er að muna að þetta er aðeins
tímabundið og er bráðnauðsynlegt að hafa
trú á eigin getu.
Dagur 1 – Aðlagaðu þig aðstæðunum
Fyrsti dagurinn hefur alla burði til þess að
vera skemmtilegastur. Skyndilega hefur þú
meiri tíma en vanalega og við fyrstu sýn
er eins og allir möguleikar innan veggja
heimilisins standi frammi fyrir þér. Þó er
ekki best að hjóla strax í tiltektina sem þú
átt eftir eða grípa til Netflix-þáttanna sem
þig langar svo rosalega mikið að „hám-
horfa“ á. Nei, fyrsti dagurinn gengur út á
rólegheitin. Þó sakar ekki að sortera smá-
ræði af fatnaði eða sækja í léttan lestur. Ef
þú ert með fríðum förunauti í sóttkví eru
ýmsar leiðir til að svala þorstanum, svo
fremi sem veirueinkenni séu enn í lág-
marki.
Dagur 2
Þú ert orðin/n aðeins vanari því sem fram
undan er. Nú er kominn tími til að útbúa
lista yfir reglugerð komandi daga. Á degi
tvö skaltu þó leyfa tónlistinni og sköpunar-
gleðinni að ráða. Settu þinn uppáhalds-
lagalista í botn, hentu í einn bakstur og
tjúttaðu úr þér vitið á meðan þú hefur það.
Það er ekki fyrr en á næstu dögum sem þú
finnur fyrir því að þetta er og verður meira
en bara löng helgi í heimasetu. En ilmi
baksturinn vel mun það létta lundina.
Dagur 3
Settu þá reglu að forðast sjónvarpið. Sá
tími mun sannarlega koma þegar allir skjá-
ir heimilisins verða eins og blakboltinn
hans Toms Hanks – þinn besti vinur. Þess
vegna er mikilvægt að mjaka sér upp í skjá-
tímanum og huga fyrst að því hve lífið get-
ur verið dásamlegt í þeirri háskerpu sem
við sjáum það með okkar eigin augum.
Dagur 4
Settu langtímamarkmið. Í dag er dagurinn.
Annars mun heil vika geta liðið eins og tveir
mánuðir. Punktaðu niður litlu rútínuskref-
in, með tilliti til slökunar og listarinnar í að
breytast í sófakartöflu með ákveðnu milli-
bili. Þetta er líka góður dagur til að grípa í
gamlan spilastokk og drepa einn eða tvo
klukkutíma með einum slíkum. Það hefur
róað margan manninn að leggja til dæmis
kapal fyrir sjálfan sig. Prófaðu.
Dagur 5
Jæja. Þetta er tíminn til að „binga“ eitthvað,
eða hámhorfa. Takmarkalaust. Í aðeins
einn dag mun sjónvarpsskjárinn verða til-
vera þín. Þá er fyrir öllu að halda áhorfslist-
anum sem fjölbreyttustum.
Dagur 6
Þú sefur af þér megnið af þessum degi eða
tekur því rólega, en ekki of letilega eftir
hámhorfið. Góður dagur fyrir jógaæfingar.
Dagur 7
Þú tekur löng síma- og Messenger-spjöll
við þína nánustu. Ef nánir vinir eða fjöl-
skyldumeðlimir eru með þér í sóttkví,
hveturðu þá til að gera hið sama. Það opn-
ar hugann að tjá tilfinningar og viðurkenna
fúslega ef þér leiðist.
Dagur 8
Nú ert þú formlega farin/n að hata heim-
ilið þitt. Þá er best að hlaða í eitt deitkvöld,
annaðhvort með nánasta eða sóló. Dekr-
aðu nú einhvern veginn við þig. Við erum
rétt rúmlega hálfnuð. Það er fagnaðar-
efni út af fyrir sig. Áttu enn eitthvert efni í
bakstur?
Dagur 9
Þú ert farin/n að vingast við öll tuskudýr
heimilsins, jafnvel raftækin. Nú væri ráð að
skrifa niður sem flest sem snertir þína líðan,
nöfn umræddra vina, tilfinningar eða jafn-
vel það sem þú hefur lært þessa rúmu viku
þar sem heimurinn minnkaði töluvert. Að
setja hlutina niður á pappír – eða í Word-
skjal – getur fleytt geðheilsunni langan veg.
Dagur 10
Þú rifjar upp dansinn hans Daða og félaga.
Nú sakar ekki að senda einlæg skilaboð á