Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Page 37
FÓKUS 3720. mars 2020 MI NOTE 10: Mi Note 10 pakkar fimm myndavélum sem hver og ein hefur sitt fram á að færa - meðal annars 108MP myndflögu. Ekki nóg með það heldur kemur síminn með risa stórri 5.260mAh rafhlöðu sem endist auðveldlega í 2 daga í mikilli notkun. Hvort sem þú ert atvinnu ljósmyndari eða að stíga inn í fullorðins árin, þá viltu ekki láta þetta tryllitæki framhjá þér fara! SVONA MASSARÐU SÓTTKVÍ alla góða kunningja sem hafa haft jákvæð áhrif á líf þitt utan veggjanna sem hamla þér. Dagur 10 er einnig dagurinn til að fiska eftir öllu mögulegu á veraldarvefnum og kynna þér eitthvað nýtt og framandi. Jafn- vel opna eina eða tvær YouTube-rásir og fá kennslu heim í stofu, hvort sem það er á nýtt loft-hljóðfæri eða þjálfa hæfileika sem þú getur sýnt vinum þínum eftir fjóra daga. Dagur 11 Þú ferð í gegnum skápana á heimilinu til að meta það sem er til. Í kjölfarið byrjar þú að elska heimilið þitt hægt og rólega á ný. Bara örlítið. Að því gefnu væri fínt að spreyta sig á ljóðagerð. Dagur 12 Þú íhugar að senda skilaboð á gamla óvini og „settla“ hlutina, en lætur það eiga sig. Gott ráð til að berjast gegn furðulegu heilaprumpi er að sippa. Ef ekkert sippu- band er til á heimilinu má hoppa á staðn- um. Dagur 13 Búðu þér til lista yfir allt sem þig langar að gera utanhúss, svo framarlega sem það kemur heilsu þinni ekki aftur niður á núll- punkt. Dagur 14 Það er ljós við endann á göngunum! Og þú hefur fundið það. Hvort sem þú finnur fyrir því eða ekki, ertu gjörbreytt manneskja í dag en fyrir tveimur vikum. Reyndu að gleyma ekki þessum dögum. Gott að hafa í huga almennt n Þvoðu þér um hendurnar eins og þú fáir greitt fyrir það. Í minnst tuttugu sekúndur hverju sinni. n Hnerraðu í olnbogann ef þess þarf. n Mundu að þrífa hurðarhúna, lykla- borð, borð og allt sem þú ert í reglulegri snertingu við. n Ef þú pantar þér mat eða biður trausta manneskju um að koma einhverjum birgð- um á þig, vertu viss um að það sé alltaf skilið eftir í tveggja metra fjarlægð frá úti- dyrahurðinni. n Ef það hefur reglulega verið hluti af rútínunni að stunda líkamsrækt, búðu til dagskrá þar sem heimaæfingar taka við tímabundið. n Ef það eru börn á heimilinu er mikilvægt að hlusta á þau. Líklega munu þau finna fyrir einhverjum ótta eða ráðaleysi. n Vertu í sambandi við lækni ef þú finnur fyrir einkennum. n Drekktu nóg af vatni. n Hefurðu heyrt um Skype eða FaceTime? Það er afar gagnlegt á þessum tímum. n „Nú ert þú formlega farin/n að hata heimilið þitt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.