Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 5

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 5
í bladrinu Á skrifstofum ÍSÍ fþróttablaöið brá sér í heimsókn á skrif- stofur fþróttasambands fslands í Laugar- dalnum, en þar fer fram geysilega mikið þjónustustarf fyrir íþróttahreyfinguna. Hitti blaðið að máli Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóra ÍSf, sem á nú senn 30 ára starfsferil að baki, Björn Vilmundars- son sem nýlega hefur tekið við skrifstofu- stjórastörfum hjá sambandinu og þrjár starfsstúlkur sambandsins. Frjálsar hjá Ármanni Stefán Jóhannsson hinn ötuli þjálfari frjálsíþróttafólks Ármanns er tekinn tali, en Stefán hefur náð ágætum árangri sem þjálfari, og uppgangur er nú í frjálsíþrótta- starfinu hjá félaginu. Jafnframt var rætt við efnilegt íþróttafólk sem æfir með félaginu, Kristján Harðarson, Jónu Björg Grétars- dóttur og Sigurð Einarsson, en sá síðast- nefndi hefur sett markið hátt og ætlar sér sigur á Evrópumeistaramóti unglinga næsta sumar. Einar Ólafsson Og fþróttablaðið fjallar nú um annan þjálfara: Körfuknattleiksþjálfara IR, Einar Ólafsson, — sem að mörgu leyti verður að teljast brautryðjandi körfuknattleiksstarfs- ins hér á landi. Einar var um langt árabil þjálfari ÍR-inga, og margir kröfuknattleiks- menn hafa stigið fyrstu skrefin hjá honum. Hann innleiddi margar nýjungar í körfu- knattleikinn, og munum við væntanlega búa að þeim íframtíðinni, jafnvel þótt Einar hafi hætt störfum sem meistaraflokks- þjálfari. Eysteinn Þorvaldsson Rætt er við hinn ötula formann Júdó- sambands fslands, Eystein Þorvaldsson um júdóíþróttina, en júdómenn hafa vakið mikla athygli með ágætum afrekum sínum að undanförnu. Má undur heita hve langt þeir hafa náð, miðaó við hve íþróttin er ung hérlendis og hvað erfiðleikarnir í júdó- starfinu eru margir. í viðtalinu segir Ey- steinn að þótt svo vel hafi gengið verði júdóíþróttin á margan hátt að teljast hálf- gerð hornreka, ekki hvað síst í fjölmiðlun- um. Körfuknattleiksþjálfun Ætlunin er aö fþróttablaðið birti af og til þjálfunarþætti sem settir verði þannig upp að auðvelt er fyrir fólk að taka þá út úr blaðinu, hafa þá með sér á æfingar og geyma. Fjallar fyrsti þátturinn um þrek- þjálfun körfuknattleiksmanna. Laun atvinnumannanna Á hverjum laugardegi hafa íslendingar enska knattspyrnumenn inni í stofu hjá sér, ef svo má að oröi komast. Allskonar sögur ganga um hve mikið íþróttamenn þessir hafa í laun, og víst er að þeir bestu og frægustu gera það gott. Þeir eru hins vegar fleiri sem eru ekkert ofsælir af laun- unum sínum, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að flestir fórna öllu til þess að verða atvinnuknattsþyrnumenn og standa uþpi menntunar- og verkkunnáttulausir þegar þeir verða að hætta í knattspyrn- unni. íþróttablaðið bregður nú upp svip- myndum af kjörum þessara knattspyrnu- kappa. Annað Af öðru efni í blaóinu má nefna viðtal við Jóhann Hjálmarsson lyftingakappa á Ak- ureyri, — fólk er spurt um uppáhalds- íþróttamanninn og svo er gripið niður hér og þar í þættinum ,,Á útivelli."

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.