Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 45

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 45
eilífur augnakarl formaður Júdósambandsins tekinn tali f—““““■ „Ég hef verið sólginn í að lesa bækur frá því ég man eftir mér. Eftir að ég komst í framhalds- skóla fékk ég líka mikla ást á málfræði, enda er hún lykill að skilningi og notkun málsins. Bókmenntaáhuginn rótfestist í mér. Atómskáldin voru að koma fram þegar ég var í gagnfræða- skóla og menntaskóla, og þá ” hafði ég líka fengið miklar mætur á ljóðum Steins Steinars og Snorra Hjartarsonar. Ég fékk það á tilfinninguna að þarna væri eitthvað mikilvægt að gerast í bókmenntum aldarinnarog þetta varð að sannfæringu með árunum. Þetta efni sótti á mig meira en margt annað, en annars hef ég fylgst með bókmenntum af áhuga alla tíð auk þess sem það er líka starf mitt að kenna bók- menntir, svo að þetta er mér náttúrlega ákaflega nákomið allt saman.“ Já, vissulega er í mörg horn að líta en hvernig skyldi svo ganga að samræma svo mörg og ólík störf og áhugamál? „Það gengur ágætlega hvað áhugann varðar, en tíminn er aldrei nægur, kannski vegna þess að ég hef alltaf orðið að kenna mjög mikið. En ég hef alla tíð stundað , íþróttir reglulega frá fyrstu unglingsárum og hef gert það af skyldu við heilsuna auk ánægjunnar. Og það er ástæðan fyrir því að ég hef dregist út í félagsstörf í íþróttahreyfingunni þó að ég hafi reynt að komast hjá því af því að mér finnst ég ekki hafa tíma til þess. Þegar Judo- sambandið var stofnað var lagt hart að mér að taka þar við for- ystu, en ég neitaði því algjörlega, en ég var samt kosinn formaður að mér forspurðum. Ég get ekki neitað því að mér gramdist þetta, en þegar svo var komið, fannst mér ég ekki getað yfirgefið strák- ana í judoinu sem vildu endilega treysta mér fyrir þessu. Ég skal játa að ég hef margsinnis ætlað að hætta, ekki samt með neinum stóryrtum yfirlýsingum, en þó ég sé enn í þessu, vil ég ekki verða þar eilífur augnakarl. Nýir menn verða að fara að taka við. Ég vil hins vegar taka það fram að ég hef haft mikla ánægju af því að starfa með judomönnum og reyna að vinna að þeirra félags- málum. Það er satt að segja mjög erfiður róður að byggja upp nýja íþróttagrein hér á landi af engum efnum. Það sem hefur ýtt undir mann, er hinn góði árangur judomannanna sjálfra sem er hreint ævintýralegur á þessum átta árum síðan Judosambandið var stofnað." Fyrst við erum farnir að ræða Judósambandið þá væri ekki úr vegi að fá Eystein til þess að segja okkur eitthvað nánar frá því, starfssviði þess og ytri aðstæðum. „Meginviðfangsefnið er að 45

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.