Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 22
ingaskóla lýkur og hafa því enga
starfsmenntun, né heldur hafa
þeir aðgang að lífeyrissjóðum.
Ferill þeirra sem atvinnumenn
stendur sjaldnast lengur en
10—15 árog þá tekuróvissan við.
Það er því sannarlega engin
ástæða til að öfunda leikmennina
í ensku knattspyrnunni, að
minnsta kosti ekki svona 90%
þeirra.
Sterkur leikur
hjá Keegan
En hvað skeður þegar leik-
menn koma inn í lið og þurfa car
að leika með öðrum sem hafa
langtum minni laun? Það er auð-
vitað mismunandi. Enginn leik-
maður Southamptonliðsins öf-
undaði Kevin Keegan þótt hann
fengi meiri laun á viku en þeir á
mánuði. Þvert á móti fannst þeim
mikið til koma að hann skyldi
fást til félagsins, ekki aðeins
vegna þess að hann þykir
skemmtilegur náungi, heldur líka
vegna þess að koma hans opnaþi
ýmsa fjárhagslega möguleika
fyrir aðra leikmenn liðsins. Eftir
að Keegan kom til Southampton
var t.d. sigurbónusinn hækkaður
verulega og kom það auðvitað
öllum leikmönnunum jafnt til
góða.
Þegar Keegan kom til South-
ampton stakk hann upp á því við
hina nýju félaga sína þar, að
leikmennirnir stofnuðu sameig-
inlegan sjóð. í sjóð þennan áttu
að renna greiðslur sem leik-
mennirnir ákváðu að krefjast
fyrir viðtöl sem þeir veittu blöð-
um og öðrum fjölmiðlum. Þessar
greiðslur voru mismunandi eftir
því hvaða fjölmiðill átti í hlut.
Keegan stakk svo upp á því að
þessum sjóði yrði skipt jafnt á
milli leikmanna að keppnistíma-
bili loknu. Sagði, að sér þætti það
líklegt að viðtölin yrðu vel yfir
100 á keppnistímabilinu og tekj-
urnar gætu því orðið um fjórð-
ungur milljónar.
Félögum Keegans í South-
ampton fannst þetta vel boðið.
Þeir vissu, jafnvel og Keegan
sjálfur, til hvers yrði leitað með
viðtöl, — auðvitað Keegan sjálfs.
Með þessu fannst leikmönnun-
um Keegan sýna mikinn dreng-
skap þar sem honum var í lófa
lagið hirða þessar greiðslur að
verulegu leyti handa sjálfum sér.
Kevin Keegan er annars í sér-
flokki í ensku knattspyrnunni
hvað launum viðkemur. Hann
hefur um 54.000 krónur í viku-
laun, eða upphæð sem er um
þrjár milljónir króna á ári. Það er
um einni milljón minna en hann
hafði meðan hann lék með
Hamburgar SV, en samt sem
Fyrir fjórum árum fékk Gary Birtles um 60 krónur fyrir hvern leik sem
hann lék. Nú eru laun hans íþað minnsta hundraðföld.
22