Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 34
Auglýsti dekk en datt
úr keppninni vegna
dekkjaskorts!
Það fer ekki á milli mála
að mikil gróska er í bíla-
íþróttum á íslandi um þess-
ar mundir. Hvert öku-
íþróttamótið af öðru er
haldið, og nýlega var brotið
blað í sögu íslenskra bíla-
íþrótta er íslendingar
kepptu í fyrsta sinn í ralli
erlendis, við allgóðan orð-
stír. Til þess að fræðast
nánar um starfsemi bíla-
íþróttamanna tók íþrótta-
blaðið Birgi Þór Bragason,
formann Bifreiðaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur tali í
skrifstofu klúbbsins í Hafn-
arstræti, og lá þá beinast við
að spyrja Birgi fyrst, hvenær
hann hefði hafið afskipti af
bflaíþróttum.
Birgir Þór Bragason, formaður Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur.
Brosandi formaður— á fullri ferð írallí
— Ég var búinn að ætla mér
lengi að fara út í bílaíþróttim-
ar, en af því varð ekki fyrr en í
Vísis-Rallinu 1978. Ég átti
fyrst bíl með móður minni, og
hún var ekki alveg á því að ég
færi að aka honum í rallmót-
um, og var það ekki fyrr en ég
eignaðist eigin bíl, að ég byrj-
að að keppa. Foreldrar mínir
voru ekki hrifnir af þessu til-
tæki, en þeim hefur nú snúist
algjörlega hugur og það er
varla haldið rall lengur sem
þau fylgjast ekki með.
Það má geta þess til gamans
að í Vísisrallinu var bíllinn
sem ég var á þakinn auglýs-
ingum frá dekkjafyrirtæki hér
í borg, en ég datt út úr keppn-
inni vegna þess að mig vantaði
varadekk. Én ári seinna komst
ég að því að rétt hjá staðnum
þar sem ég stoppaði var rót-
gróið dekkjaverkstæði. Þar
voru þeir með stóran lager af
sömu dekkjum og ég notaði!
Ég hóf svo félagsstörf hjá
BIKR árið 1980. Málin snér-
ust þannig að þegar ég datt út
úr Vísisrallinu, fyrstur kepp-
enda, bauð ég mig fram til
sjálfboðavinnu. Vann ég þá
34