Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 35

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 35
Texti og myndir: Gunnlaugur Rögnvaldsson ásamt Árna Árnasyni þáver- andi formanni klúbbsins og fleira fólki. Það var svo hann sem stakk upp á því að ég byði mig fram sem formaður klúbbsins, og ég gerði það. Ekki þurfti ég að standa í harðri kosningabaráttu, þar sem ég var eini frambjóðand- inn. Gefur það auðvitað til kynna að starfið sé ekki eftir- sóknarvert en mér hefur reynst það mjög þroskandi þótt erfitt sé það á köflum. — Hefur klúbbfélögum fjölgað? — Já, þeim hefur fjölgað nauðsynlegt að eiga rallbíl til þess að vera í klúbbnum. Margskonar störf eru alltáf í kringum akstursíþróttirnar og félagsskapurinn sjálfur er ekki svo lítils virði. — Er klúbburinn styrktur fjárhagslega að einhverju leyti? — Klúbburinn hefur hvorki fengið styrk frá hinu opinbera eða fyrirtækjum, en auðvitað vonumst við eftir að fá einhverja slíka styrki í framtíðinni. Rallmótunum höldum við uppi með þátt- tökugjöldum og auglýsingum. líða stundir er ég viss um að stórfyrirtæki sjá sér hag í að kaupa auglýsingar á bílum í slíkri keppni. — Nú hef ég heyrt að t.d. olíufélögin hér á landi séu með samning sín á milli um að auglýsa ekki vörur sínar á bíl- um, en víðast erlendis ber mikið á því að slík félög aug- lýsa og jafnvel gera út rallbíla? — Þetta er rétt og ég hef reynt þetta sjálfur. Ég ætlaði fyrir nokkru að reyna að selja auglýsingu á bíl sem ég hugð- ist aka í keppni og hafði þá samband við olíufélögin. Þar kross keppni — og á heimili sínu með unnustu sinni, Maríönnu Friðjónsdóttur. I lílni 1 «1 n i: " tlll nokkuð, — fólk er farið að þekkja kúbbinn betur en áður. Hann nýtur velvildar fjöl- miðlanna og það hefur mikið að segja. Hins vegar eru auð- vitað margir sem hafa áhuga á akstursíþróttum en eru ekki í klúbbnum. Ég hef t.d. orðið var við að skólafólki finnst of dýrt að vera í klúbbnum, en það er alrangt. Það er ekki Við höfum ekki fengið „sponsor“ á alþjóðlega rallið sem halda á í sumar, en það býður upp á mikla möguleika fyrir auglýsendur. Keppnin mun væntanlega vekja mikla athygli hér heima og líka er- lendis. Einhvem veginn finnst mér sem auglýsendur séu hálf ragir, en þetta mun væntan- lega breytast og þegar fram var mér sagt að í gildi væri samningur milli olíufélaganna um að auglýsa ekki, til þess að spara hjá sér kostnað. Þetta væru hvort eð er vörur sem allir þyrftu að kaupa, og ef eitt félagið færi að auglýsa vissa tegund af olíu þyrfti annað einnig að auglýsa sína vöru. Þetta finnst mér og mörgum öðrum einkennileg 35

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.