Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 37

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 37
* aðsókn að svona mótum á laugardögum, þar sem fólkið fer þá mikið út úr bænum. Á fimmtudögum sitja hins vegar flestir heima, og þá er mun líklegra að áhorfendur komi á svona mót. Við verðum að fá áhorfendur, þar sem kostnað- ur við slík mót er mjög mikill. Ég get nefnt sem dæmi að í síðasta ískrossi kostuðu trygg- ingarnar sem við þurftum að kaupa 6000 nýkrónur. — Hvernig verður spar- akstursmótum háttað í sumar? — Þau verða með sama sniði og í fyrra, nema hvað meðalhraðinn verður hækk- aður til muna. Ef bílarnir halda ekki meðalhraðanum sem ákveðinn er fyrirfram verða þeir úr leik. Hærri meðalhraði gefur sannari mynd af eyðslu bílanna. Það segir lítið þegar ekið er mjög hægt og má nefna sem dæmi að í fyrra vann einn bíll keppnina á því að lulla alla leið. Hann ók á 20 kílómetra hraða og var fimm klukku- stundir að aka 100 kílómetra leið. Ef þessi bíll hefði haldið eðlilegum umferðarhraða hefði hann eytt mun meiru og stöðvast fyrr. — Hafið þið orðið varir við að erlendir ökumenn hafi áhuga á þátttöku í rallmótum hérlendis? — Já, það er greinilega mikill hugur í mönnum. Sem dæmi má taka að John Haug- land sem keppti hér í fyrra var mjög hrifinn af aðstæðum og landinu. Hvar sem hann keppir í ár, talar hann um þetta og veitir okkur því góða auglýsingu, þar sem hann er þekktur ökumaður. Hekla gaus á sama tíma og rallið var í fyrra, og það hefur örugglega verið ævintýri fyrir erlendu ökumennina að taka þátt í móti við slíkar aðstæður. — En eru íslenskar að- stæður ekki of erfiðar fyrir er- lenda ökumenn — eru veg- irnir ekki alltof grófir og hol- óttir, og beinlínis hættulegir bílunum? — Rallmót víðast erlendis eru nú að breytast á þann veg að verið er að minnka hrað- ann og fara heldur á erfiða vegi. Hraðinn var orðinn brjálæðislegur. í fyrra sýndum við hér í klúbbnum kvikmynd af ralli, þar sem m.a. kom fram að hraði eins bílsins á ákveðinni sérleið var 195 kíló- metrar. Hann var þó langt frá því að verða í fremstu röð, þar sem flestir óku á allt að 240 kílómetra hraða. Þetta um- rædda bíltetur komst einfald- lega ekki hraðara. Svona hraðakstur á einfaldlega ekki heima í rallmótum og er stór- hættulegur. En auðvitað þurfum við nokkurn tíma áður en alþjóð- lega rallið hér á landi verður vinsælt og eftirsótt. Þótt þetta sé komið vel af stað þýðir það Hjólbarðaþjónusta í sérflokki Alhliða dekkjaviðgerðir Jafnvægisstillum hjólin undir bílnum og einnig laus Ný og sóluð dekk flestar stærðir Sendum í póstkröfu um land allt Opið virka daga frá 8-21 Iaugardagafrá8-17 sunnudagafrá 10-12 og 13-17 Fljótog góð þjónusta Hjólbarðaþjónustan Hreyfilshúsinu - Sími 81093 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.