Íþróttablaðið - 01.04.1981, Page 75
Hver er uppahaldsíþróttamaðurinn þinn?
þess vegna er hann í miklu
uppáhaldi hjá mér.
Ég á mér marga uppáhalds
íþróttamenn íslenska en þú
getur skrifað Skúla Óskars-
son. Hann er alveg sérstaklega
skemmtilegur og einnig get ég
nefnt Ásgeir Sigurvinsson.“
Elín Gunnarsdóttir,
afgreiðslu stulka
„Það er kraftajötuninn
Skúli Óskarsson frá Fá-
skrúðsfirði. Ég veit nú ekki al-
veg fullkomlega af hverju en er
hann ekki heimsmethafi?
Einnig finnst mér mjög gaman
að horfa á hann þegar hann er
að keppa en ég hef aðeins
séð hann í sjónvarpinu. Samt
finnst mér hann ekkert sér-
staklega vel vaxinn.
Ég held að ég geti ekki nefnt
neinn erlendan því ég fylgist
svo lítið með þessu. Erlendir
íþróttaviðburðir eru ekki mín
sterka hlið.“
Arnar
Guðlaugs-
son,
raf-
virki
„Það er voðalega erfitt að
segja til um það. Til þess að
geta svarað þessu alveg rétt
þyrfti maður að fá að setjast
niður og hugsa málið. Annars
get ég sagt þér það að mér
finnst alltaf gaman að horfa á
Skúla Óskarsson. Hann er
bæði góður og einnig tekur
hann þessu létt og er að því er
virðist skemmtilegur náungi.
Þegar ég var minni hélt ég
mikið upp á Billy Bremner sem
þá lék knattspyrnu með Leeds
United og landsliðinu. Hann
var mjög harður í þessum
bransa.“
Aðal-
björg
Þórólfs-
dóttir,
starfsmaður
KEA
„Ég hef ekki glóru um það.
Ástæðan fyrir því er einfald-
lega sú að ég fylgist svo ákaf-
lega lítið með þessu. Ég get þó
sagt að mér finnst Haraldur
Ólafsson lyftingamaður frá
Akureyri mjög myndarlegur
maður og hann er víst góður í
sinni íþrótt. En ætli ég haldi
ekki meira upp á hann vegna
þess hversu myndarlegur hann
er, ég hugsa það.
Sænski krúsídúllan Bjöm
Borg er skemmtilegur íþrótta-
maður og ég reyni alltaf að
fylgjast með fréttum af
honum.“
Margrét
Rögnvaldsdóttir
starfsmaður KEA
„Það er ekki neinn sérstak-
ur. Við skulum bara segja
Ásgeir Sigurvinsson. Ég þekki
hann ekki neitt en maður er
alltaf að lesa um hann í blöð-
unum og mér finnst hann
góður í knattspyrnu. Erlendur
íþróttamaður? Heldurðu að
maður fylgist algerlega með
þessum íþróttum. Ég hugsa að
það sé Muhamed Ali. Af
hverju ekki?
Mar-
grét
Haralds-
dóttir,
starfs-
maður
KEA
„Guð minn góður. Ég held
að ég eigi engan. Ég man ekki
eftir því svona í einni svipan.
Ég verð að viðurkenna að ég
fylgist ákaflega lítið með
þessu. En samt á ég örugglega
einhvem uppáhalds íþrótta-
mann. Jú það er Skúli Ósk-
arsson lyftingamaður. Það er
hvorttveggja í senn vegna þess
►
75