Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1986, Side 13

Íþróttablaðið - 01.06.1986, Side 13
Guðmundur er Manchester United. Við Gummi Steins. erum eldheitir aðdáendur, en það er stundum erfitt. í vetur sprakk Man. Utd. á limminu, ekki ósvipað okk- ur Frömurum í fyrra, og félagamir eru ósparir á hæðnisorðin; segja Man. Utd. aðdáendur alltaf vera með lélegar ásak- anir, ef það sé ekki flugslys, þá meiðsli eða eitthvað annað! Framararnir og Leedsararnir Rabbi, Pétur og Lelli (Rafn Rafnsson, Pétur Ormslev og Sverrir Einarsson: innsk. blm.) segja að Leeds Utd. verði meistari á undan Man. Utd. Ég vona að svo verði ekki, því þá verða félagarnir gjör- samlega óþolandi. Leeds þarf líka fyrst að komast upp í 1. deild!“ LANDSLIÐSMÁL O.FL. Úr því að það er farið að styttast í þann húmor sem aldrei er langt undan þegar Gummi Torfa er annars vegar, biðjum við hann um stutta sögu af einhverju eftirminnilegu, innan vallar eða utan. „Það er alltaf að gerast e-ð skemmti- legt, þó maður muni svo ekki eftir neinu þegar á þarf að halda. Jæja. Við fórum vorferð til Húsavíkur í fyrra og lékum þar tvo leiki. Á flugvellinum, þegar halda skyldi heimleiðis, gekk knattspyrnuheimspekingurinn Eyjólf- ur „011i“ Bergþórsson brúnaþungur í kringum vélina, en Olli er með ein- dæmum flughræddur. Þegar hann gengur framhjá leikmannahópnum segir Steinn Guðjónsson í gríni: Það er ég viss um að vélin ferst! „Olli hafði engar vöflur á, reddaði sér fari til Akur- eyrar og tók svo rútuna þaðan í bæinn á mánudegi!" Guðmundur Torfason er að hefja sitt 8. tímabil sem leikmaður í m.fl., en er samt aðeins 24 ára að aldri. Hann átti að baki 177 leiki fyrir Fram þegar keppnistímabilið hófst og þrjá A-lands- leiki. Alltof fáa miðað við getu og frammistöðu undanfarin ár segja marg- ir, og finnst sem leikmenn sem leika hér heima sitji ekki við sama borð og atvinnumennirnir, sem sumir hveijir komast ekki í aðallið sinna félaga. Hvað hefur Guðmundur sjálfur um þetta að segja? „Ég vil sem minnst tjá mig um lands- liðsmálin. Ef ég stend mig vel með mínu félagi er ég ánægður. Það er svo annarra að dæma um það hvort ég sé nógu góður fyrir landsliðið, þó auðvit- að hafi maður metnað til að leika með landsliðinu. Það hlýtur að vera stefna allra knattspyrnumanna. Ég kynntist nýja landsliðsþjálfaranum, Sigi Held, lítillega í Arabíuferðinni og leist mjög vel á hann. Æfingarnar voru góðar, að- hald og leikskipulag gott, svo ég veit að hann fylgist vel með þeim mönnum sem leika hér heima og metur rétt hverjir þeirra eiga heima í landsliði." „SJÁLFSGAGNRÝNI ER NAUÐSYNLEG“ Og svo er það þessi gamla góða, Gummi: Eitthvað að lokum? „Já, tvennt. í fyrsta lagi finnst mér miður hversu fast er spilað í leikjum hér á landi og oft gróft. Knattspyrn- unni hefur farið mikið fram á síðustu árum. Frá því að ég byrjaði hefur margt breyst. Hraðinn í leiknum er miklu meiri, leikmenn hafa minni tíma til að ákveða sig og framkvæma. Þetta er jákvætt, hins vegar er harkan óþarflega mikil. Það er sparkað aftan í menn í algjöru tilgangsleysi, þegar engin von er til að ná boltanum. Ég verð sótillur þegar ég hugsa um þá villimennsku sem maður sér stundum eða verður fyrir. Sem dæmi get ég nefnt úrslitaleikinn í Reykjavíkurmót- inu milli Fram og KR, þar sem leikur- inn þróaðist út í tóma vitleysu og áttu menn úr báðum liðum sök þar á. En dómarar verða líka að taka harðar á svona hlutum, veita tiltal við fyrsta GRÓFA brot, síðan gult spjald ef við- komandi lætur sér ekki segjast O.S.FRV. Hitt atriðið er SJÁLFSGAGNRÝNI. Menn verða að leita orsakanna fyrir slæmu gengi fyrst hjá sjálfum sér. Mik- ilvægt er að hugsa fyrst um eigin frammistöðu, ekki benda á næsta mann sem sökudólg. Um leið og menn ástunda sjálfsgagnrýni verða menn að þola gagnrýni frá öðrum, því allir geta bætt sig, óendanlega." Spaklega mælt af stormsenternum Guðmundi Torfasyni, enda maðurinn skýr, vinnur í tölvudeild Flugleiða, á rekstrarsviði. Aðrar persónulegar upp- lýsingar um manninn eru þær að hann á tveggja ára dóttur, Hönnu Guðnýju, í Vestmannaeyjum, og er í sambúð með Erlu Björk Guðjónsdóttur. íþrótta- blaðið þakkar Guðmundi Torfasyni fyr- ir spjallið og óskar honum og félögum hans góðs gengis í baráttu sumarsins. HÓLMBERT FRIÐJÓNSSON: „Guðmundur Torfason er einn sterkasti skallamaður landsins. Hann er grimmur og hefur föst skot, og þá er hann sterkur andlega, uppörvandi í hóp. Eini stórvægilegi gallinn sem hann hefur er að hann er þungur í snúningum. Á síðasta ári tók Gummi Torfa einna mestu framförum allra leikmanan Fram, og vann oft fyrir þá leiki, sem næst upp á eigin spýtur. Ég vil bara óska þess, að hann haldi áfram á sömu braut, þá gæti hann hugsan- lega komist í atvinnumennsku. Hann gæti yel spjarað sig þar ef hann yrði heppinn með lið. Hugarfar Gumma er rétt og svo er hann mörgum kostum búinn sem knattspyrnumaður." ÁSGEIR ELÍASSON: „Gummi er fljótur og lipur, sérstak- lega miðað við stærð. Hann er sterkur skallamaður og ólatur, vinnur vel. Eini mínusinn, ef hægt er að tala um slíkt, er að hann á að skora jafnvel enn meira en hann gerir. í fyrra átti Gummi heima í íslenska landsliðinu. Þar er mikið byggt upp úr löngum sendingum, og við eigum eng- an betri í að taka á móti þeim. Ef hann heldur áfram að bæta sig hlýtur hann að eiga möguleika í landsliðið." 13

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.