Íþróttablaðið - 01.06.1986, Side 35
Bjarni og Sævar
„Það hvarflaði að mér í fyrstu en í
núna tel ég svo ekki vera. Hér er hálf-
atvinnumennska og þar af leiðandi
miklu meira um að vera. Mjög vel er
staðið að öllum málum og mörg fyrir-
tæki sem styrkja liðið. Hvað knatt-
spyrnulegan mun varðar þá er mun
betra leikskipulag hjá Brann miðað við
Val. Þó er ég ekki að segja að hér séu
betri leikmenn. Undirbúningur hér er
allt annar og öðruvísi og er keppnis-
tímabilið heima að mínu mati allt of
stutt. Hvað sjálfan mig varðar þarf ég
u.þ.b. 15 æfingaleiki fyrir keppnistíma-
bilið til að komast í góða þjálfun. Það
kom mér reglulega á óvart hvað hægt
er að gera hér úti og hversu áhuginn er
gífurlegur".
Undirbúningstímabilið hjá Brann
hófst 6.janúar en deildarkeppnin byrj-
aði í lok apríl. Keyrsla var gífurlega stíf
á þessu tímabili — æft 5 sinnum í viku
auk leiks. Sjaldan var spilað á æfingum
hjá Tony heldur voru langhlaupin í fyr-
irrúmi. „Ég held að við séum búnir að
hlaupa fyrir alla ævina“,sagði Sævar og
virtist fegin að vera byrjaður að sjá
bolta. „Æfingarnar hjá Tony er ekta
enskar - í erfiðara lagi og lítill bolti“.
Bjarni tók undir þessi orð en bætti
við:„Þetta var mun erfiðara í fyrra hjá
mér því núna eru færri séræfmgar. Mér
fínnst nauðsynlegt að vera á séræfíng-
um a.m.k. 15-20 mínútur á hverjum
degi. Það er upp á snerpuna að gera“.
-Telurðu þig vera betri markmann í
dag en þú varst heima fyrir 2 árum?
„Ég er ekki í nokkrum vafa um það.
Stöðugleiki frá einum leik til annars er
meiri en áður og hef ég mun meira
sjálfstraust. Ég gat ekki bætt við mig á
Skaganum en hér hefur mér tekist að
gera það“.
— Bjarni, þú hefur samanburð á
Brann í ár miðað við í fyrra. í hverju
felst munurinn?
„Nú er allt mun markvissara. Byrjað
var strax á fyrsta degi að byggja upp og
stefnt að ákveðnu markmiði. í fyrra var
allt stefnulaust".
VAR NEIKVÆÐUR í BYRJUN
— Hvernig var Tony Knapp tekið?
Sævar: „Tony er umdeildur og held
ég að hann vilji vera það. Hann er
voðalega sérstakur". Bjarni: „Það ríkti
mikil eftirvænting þegar hann kom.
Stjórnin, Qölmiðlar og fólkið var
Sævar Jónsson.
spennt. Ég veit ekki annað en að allir
séu ánægðir með hann. Þó koma ávallt
upp atvik á æfingum þar sem leikmenn
eru ekki sammála honum. Erfiðast er
þegar ræða þarf við hann um eitthvað
því hann stendur alltaf fast á sínum
skoðunum".
— Hefur álit ykkar á honum breyst
frá því þið þekktuð hann eingöngu
sem landsliðsþjálfara?
Sævar: „Ég get ekki neitað því. Sál-
fræðilega hliðin fyrir leiki er þó alltaf
hin sama. Hann stappar stálinu í menn
þremur tímum fyrir leik og menn ná að
einbeita sér að fullu. í byrjun fannst
mér hann mjög neikvæður í garð leik-
manna — fann aldrei neitt jákvætt hjá
neinum. Þá hlið hans þekkti ég ekki
áður“. Bjarni: „Ég er sáttur við
vinnubrögð hans hvað þjálfunina varð-
ar en hann er stundum of öfgakenndur
í gagnrýni á leikmenn. Við fáum að
heyra það ef við stöndum okkur ekki
vel“.
— Er knattspyrna í Noregi frá-
brugðin íslenskri að einhverju leyti —
er lögð áhersla á önnur atriði miðað
við heima?
Sævar: „Skipulag á hlutunum er hér
mun betra en á íslandi — en líklega er
það eðlilegt þar sem menn fá borgað
fyrir að leika. Annars var frábært skipu-
lag á hlutunum hjá Val á gullaldarárun-
um fyrir og um 1978. Valsliðið 1978
hefði getað leikið í hvaða deild í
Evrópu sem er og staðið sig með sóma.
Heima kom alltaf upp árgangar sem
verða ósigrandi. Valur hefur átt svona
árganga svo og Akranes. Fram er að
koma upp með lið sem gæti gert góða
hluti“.
Bjarni: „Skagaliðið var mjög „rútín-
erað“ á sínum tíma. Liðið 1983 þegar
Siggi Jóns. lék með hefði getað leikið í
l.deildinni hér í Noregi og „brillerað".
Bestu liðið heima í dag stæðu sig vel
hér í l.deild. Ég er ekki í nokkrum vafa
um það“.
ÝMIS FRÍÐINDI
Allir knattspyrnumenn ýmist vinna
með sparkinu eða eru í námi. Þeir fá
greitt fyrir að leika knattspyrnu —
mismunandi mikið eftir samningum.
Ýmis fríðindi eru fyrir flesta svo sem frí
íbúð, bíll og góð vinna. Auglýsingar á
bílum gefa líka dágóðan skilding. Leik-
menn fá síðan greitt vinnutap þurfi
þeir að vera fjarverandi vegna æfinga
eða leikja. Æfingar eru hjá Brann
klukkan fjögur á daginn og gefur það
leikmönnum ákveðinn frítíma. Mjög
hagstætt er að taka bankalán í Noregi
og reynist leikmönnum auðvelt að fá
slíkar fyrirgreiðslur. Norskir leikmenn
ganga kaupum og sölum í Noregi fyrir
100 - 200.000 íslenkar krónur en sú
upphæð hækkar ef höndlað er með
leikmenn út fyrir landsteinanna“.
Tony Knapp notar að sögn strák-
anna sömu leikaðferð og hann notaði
með íslenska landsliðið 4-4-2. Æfing-
arnar eru svipaðar - taktík, föst leik-
atriði s.s. horn og fríspörk. Hann bygg-
ir þetta upp á einföldum og ákveðnum
reglum.
FÓLKIÐ Á SKILIÐ ÁRANGUR
— Hvert er takmarkið hjá Brann í
framtíðinni?
Bjarni: „í fyrsta lagi að komast upp í
l.deild í vetur. Næsta keppnistímabil
ætlar liðið að „stabíla“ sig í deildinni
og á þriðja ári ætlar liðið að reyna að
komast á kortið hvað varðar Evrópu-
keppni. Sannast sagna finnst mér að
35