Íþróttablaðið - 01.06.1986, Page 36
Bjarni og Sævar
Knattspyrnuliðið Brann 1986. Sævar og Bjarni hlið við hlið í öftustu röð. Hver þekkir svo ekki Tony Knapp í miðröð?
fólkið hér eigi skilið að liðið fari að ná
verulegum árangri".
Bæði Bjarni og Sævar gefa að sjálf-
sögðu kost á sér í þá landsleiki sem
leiknir verða á árinu en hvernig ætli
þeim lítist á riðilinn í Evrópukeppni
landsliða? Sem kunnugt er telst okkar
riðill sá erfiðasti í keppninni. Mótherjar
okkar eru Frakkland, Noregur, Sovét-
ríkin og Austur-Þýskaland.
„Ég veit ekki hvað skal segja um
möguleika okkar gegn þessum þjóð-
um“,segir Sævar Jónsson. „Það veltur
á því sem nýi landsliðsþjálfarinn Sig-
fried Held gerir. Eftir stutt kynni af
honum í Bahrain í vetur líst mér vel á
hann sem þjálfara. Hann er rólegur og
yfirvegaður og er það töluverð breyt-
ing frá því sem áður var. Held hefur
mikla reynslu sem leikmaður en árang-
ur hans sem þjálfari hefur víst ekki ver-
ið sem skyldi. Hæfni hans á því sviði á
því eftir að koma í ljós. Held kemur til
með að láta landsliðið leika töluvert
aðra taktík en Knapp ef tekið er mið af
leikjunum í Bahrain. Þar lékum við
með tvo varnarmenn sem „dekka“ stíft
og „sweeper" fyrir aftan. Bakverðirnir
áttu síðan að vera mjög sókndjarfir“.
VERÐUM AÐ KOMAST AF
BOTNINUM
„Við vorum svo nálægt því að kom-
ast alla leið síðast“, bætti Bjarni við.
„Það þýðir ekkert annað en að hugsa
stórt — við verðum að koma okkur
burt af botninum. Allt þarf að hjálpast
að til þess að árangur náist — þjálfari,
leikmenn, stjórnarmenn og stuðnings-
menn“.
Sævar tók undir þessi orð og bætti
við að sér fyndist að nota ætti 11 bestu
leikmenn landsins í hverri stöðu í leikj-
unum. Hvort sem um væri að ræða at-
vinnumenn eða áhugamenn. „Við verð-
ur ætíð að nota sterkustu liðsheildina í
landsleikjum. Hvað gera Danir? — Þeir
ná árangri".
Annars var að heyra á þeim Sævari
og Bjarna að landsliðsmálin hefðu nú
ekki ætíð verið í Iagi hvað varðar
skótau og búninga. Þeir sögðu að
þeim þætti svekkjandi að sjá norska
landsliðsmenn mæta á æfingu hjá
Brann eftir landsleiki með fulla tösku
af allskonar búningum og skóm sem
umboðið hefði fengið þeim í hendur
— ókeypis. Þeir félagar sögðust ekki
muna eftir að hafa fengið fótboltaskó
hjá Iandsliðinu í áraraðir. „Það þarf
vissan „standard" til að komast í lands-
liðið og því finnst okkur að leikmenn
eiga að fá að njóta þess“. Hér hjá
Brann erum við á samningi hjá Patrick
og getum við hreinlega gengið inn hjá
þeim hvenær sem er og fengið það sem
við viljum — ekkert mál“.
Þetta eru kannski orð í tíma töluð
því ef eitthvað hefur verið í ólestri eru
það búninga- og skómál landsliðsins.
Kannski erum við með svona lélegan
samning hjá Adidas? — Af hverju ekki
að bjóða þetta út því það eru jú til
fleiri umboð á íslandi sem myndu
örugglega gera betur en Adidas. Von-
andi horfir þetta þó til batnaðar — því
öll svona mál þurfa að vera í lagi hjá
liði sem hefur einhvern metnað.
ÍSLENDINGAR HAFA
HUGARFARIÐ OG DUGNAÐINN
Nú var farið að draga fyrir sólu í
Bergen — maturinn að verða til hjá
eiginkonum Brannaranna, þeim Ástu
og Gurrý og því komið að lokaspurn-
ingunum.
36