Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1986, Page 42

Íþróttablaðið - 01.06.1986, Page 42
Mexíkó ’86 VESTUR-ÞÝSKALAND Þegar talað er um stöðugleika í heimsmeistarakeppni eru fáar þjóðir sem komast með tærnar þar sem V-Þjóðverjar hafa hælana. Árangur þeirra síðan 1954 hefur vægast sagt verið frábær. Síðan þá hafa þeir tvisvar sinnum orðið heimsmeistarar — 1954 og 1974. Tvisvar í 2.sæti — 1966 og 1982. Síðan í 3. sæti 1970 og því 4. 1958. Það er engin til- viljun að V-Þjóðverjar hafa náð þessum árangri því margar kynslóðir frábærra leikmanna hafa leikið með liðinu. Nægir þar að nefna síðustu kynslóð — Franz Beckenbauer, Gerd Muller, Paul Breitner og Wolf- gang Overath. Þjálfari liðsins Franz Beckenbauer sem tók við af Jupp Derwall fyrir tveimur árum er aðeins íjórði þjálfari landsliðsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Miklar hræringar hafa verið á liðinu að undan- förnu því Beckenbauer hefur reynst erfitt að finna rétta liðið. Nokkrir af máttarstólpum liðsins verða líklega Toni Schumacher, Hans-Peter Briegel, Karl Heinz Förster og Rummenigge. Sérvitringurinn Berd Schuster gefur ekki kost á sér frekar en fyrri daginn og verður því erfitt að finna réttan leikstjórnanda. En árangur hefur ætíð verið skylda í V-Þýskalandi og því má búast við miklu af liðinu. MEXÍKÓ í annað sinn er úrslitakeppnin haldin í Mexíkó þar sem knattspyrnan er þjóðaríþrótt. Um 140.000 knattspyrnumenn eru í Mexíkó og er þetta í 9.sinn sem Mexíkó leikur í úrslitakeppninni. Undirbúningur landsliðsins fyrir heimsmeistarakeppnina hófst 25.janúar 1983 og hafa 77 leikmenn verið notaðir síðan þá. Allir eru þeir atvinnumenn og lék landsliðið samtals 59 leiki síðan undirbúningur hófst. Meðal annars bar liðið sigur úr býtum gegn V-Þýskalandi, Englandi, Ungverjalandi og gerði jafntefli við Ítalíu, Argentínu og Uruguay. Samtals vannst sigur í 26 leikjum, 17 sinnum varð jafntefli og tapaði liðið 7 leikjum. Markatal- an var 76:42. Meðal leikreyndustu manna liðsins eru Tomas Boy, Fernando Quir- ate, Hugo Sanchez og Mario Trejo. Almenningur í Mexíkó hefur mikla trú á liðinu og úrslit liðins síðustu 3 árin gefa til kynna að liðið hefur öðlast þann stöðugleika sem gæti fleytt því langt í Mexíkó. Þjálfari liðs- ins er Júgóslavinn Velibor Milutinovic. SKOTLAND Skotland þurfti að fara lengstu leið allra liða sem komust til Mexíkó. Liðið hafnaði í 2.sæti í Evrópuriðlinum og þurfti því að leika við Ástrali um aukasæti í Mexíkó. Alex Ferguson tók við framkvæmdastjórastöðu liðsins við fráfall Jock Stein eftir leik gegn Wales. Skotar unnu landslið Ástralíu 2:0 í Glasgow og gerðu síðan jafntefli við þá á útivelli — þökk sé Jim Leighton markverði sem varði víti frá Teiti Þórðarsyni sællar minningar í fyrrasumar. Landslið Skota er skipað frábærum leikmönn- um og nægir þar að nefna nöfn eins og Kenny Dalglish,Graeme Soun- ess og Gordon Strachan. Þrátt fyrir mikla hæfileika hefur landsliðið valdið vonbrigðum í heimsmeistarakeppninni að undanförnu. Liðið komst ekki í 2.umferð 1974,1978 og 1982 þegar liðið féll úr keppni á óhagstæðri markatölu. Alex Ferguson hefur fengið mikla gagnrýni fyrir það að velja hvorki Alan Hansen og Steve Archibald í hópinn sem leik- ur í Mexíkó. Báðir eru þeir frábærir leikmenn með mikla reynslu. 42

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.