Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 71
Frá vinstri Hannes Þ. Sigurðsson formaður fræðslu-
nefndar ÍSÍ, prófessor A. Morgan Olsen kennari og Karl
Guðmundsson fræðslustjóri ÍSÍ.
Þátttakendur á fræðslunámskeiði ÍSÍ ásamt kennurum
sínum, Anton Bjarnasyni, Olgu Lísu Garðarsdóttur og
Karli Guðmundssyni fræðslustjóra ÍSÍ.
Nemendur í íþróttakennaraskólan-
um á Laugarvatni munu hjálpa til við
átakið og er ætlunin að þeir verði
fræðslufulltrúar á Suðurlandi í vetur.
Astæða er til að óska HSK-fólki velfar-
naðar í átaki þessu sem vonandi
verður til þess að fleiri af sambands-
aðilum ÍSÍ taki til hendinni varðandi
almenningsíþróttir.
Frá kynningarfundi HSK á átaki í ai-
menningsíþróttum. Frá vinstri Ast-
björg Gunnarsdóttir formaður
trimmnefndar ÍSÍ, Valgerður Auð-
unsdóttir formaður frjálsíþrótta-
nefndar HSK, Guðmundur Einar-
sson framkvæmdastjóri HSK og
Björn Jónsson hinn ötuli formaður
HSK.
ÍÞRÓTTIR OG KONOR
Að undanförnu hefur fram-
kvæmdastjórn ISI rætt nokkuð á
fundum sínum um stöðu kvenna inn-
an íþróttahreyfingarinnar út frá ýms-
um sjónarhornum. I framhaldi af því
boðaði framkvæmdastjórnin til fund-
ar með fulltrúum sérsambanda ÍSÍ
26. september sl. A fundinum var
rætt um stöðu kvenna innan íþrótta-
hreyfingarinnar og horfur í næstu
framtíð. Elsa Þorkelsdóttir fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs var gest-
ur fundarins og flutti hún fróðlegt er-
indi. Að mörgu leyti var þessi fundur
afar fróðlegur og var hann gott inn-
legg í umræðuna. Á næstunni mun
framkvæmdastjórn ISI standa fyrir
fundi norrænu kvennanefndanna.
Lovísa Einarsdóttir, úr framkvæmda
stjórn ÍSÍ, í ræðustóli á fundinum.
ÍSÍ skipar nefndir til að sjá um
nýjar íþróttagreinar
* Framkvæmdastjórn ÍSÍ skipaði
nýlega í þríþrautarnefnd ÍSÍ (Triat-
hlon). f nefndina voru skipaðir þeir
Cees van de Ven, Sigurður Bjarklind,
Steinþór Ólafsson, Karl Halldórsson
og Stefán Friðgeirsson.
* Framkvæmdastjórn leitar nú að
góðu fólki til að skipa í veggtennis-
nefnd ÍSÍ og skylminganefnd ÍSÍ.
í I
ÍSÍ STYRKIR HALLDÓR
Framkvæmdastjórn ÍSI samþykkti
á fundi sínum 17. ágúst sl. að styrkja
Halldór Halldórsson, fýrsta íslenska
hjarta- og lungnaþegann, með
flugmiða til að hann geti tekið þátt í
Hereford hlaupinu svokallaða, sem er
hlaup fýrir hjarta- og lungnaþega.
Halldór hefur sýnt fádæma hugrekki
og íþróttaanda í veikindum sínum og
vildi framkvæmdastjómin sýna Hall-
dóri virðingu sína á þennan hátt.
ÍSÍ vinnur að samningi við
Austur-Þýskaland.
Framkvæmdastjórn fSÍ vinnur nú
að samstarfssamningi við íþrótta-
samband Þýska alþýðulýðveldisins
að ósk Þjóðverjanna. Árið 1986 var
undirritaður samningur við íþróttaráð
Frá undirritun
samstarfssamn-
inga á íþróttasvið-
inu við Sovétríkin
árið 1986.
71