Íþróttablaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 4
Efnisvfirlit
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ gekkst fyrir víð-
tækri skoðanakönnun meðal knatt-
spyrnumanna í 1. deild karla og eru
niðurstöðurnar birtar í þessu blaði.
Svörun leikmanna var mjög góð og
nú geta lesendur íþróttablaðsins séð
hvaða álit knattspyrnumennirnir hafa
á hinum ýmsu málum. Alls voru 68
spurningar lagðar fyrir leikmennina
og var viðfangsefnið kynlíf, matar-
æði, greiðsla fyrir knattspyrnuiðkun
og fleira. Þetta er í fyrsta sinn sem svo
víðtæk skoðanakönnun er gerð með-
al knattspyrnumanna og ættu margir
að geta nýtt sér niðurstöður hennar.
„Ég var ekki rekinn," segir Bo
Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, í viðtali við ÍÞRÓTTA-
BLAÐIÐ. Bo lét óvænt af störfum í
sumar og álitu flestir að hann hefði
verið látinn taka pokann sinn. I við-
talinu segir hann frá samskiptum sín-
um við KSÍ, íslenskum knattspyrnu-
mönnum og þeirri þróun sem hefur
átt sér stað í boltanum á Islandi síð-
astliðin tvö ár.
Þrátt fyrir ófremdarástand hjá HSÍ
kemur ekkert í veg fyrir að hand-
boltavertíðin hefjist á réttum tíma.
Flestir atvinnumanna íslands leika í
deildinni að nýju og verður hún því
líklega lífleg fyrir bragðið. Þorbergur
Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, velt-
ir fyrir sér möguleikum liðanna í vet-
ur og Hanna Katrín Friðriksen, lands-
liðsmaður, skrifar um 1. deild
kvenna.