Íþróttablaðið - 01.10.1991, Síða 17
samræmi við þær kröfur sem gerðar
eru í mótum. Annars er skvassið
skemmtileg íþrótt að því leyti að fólk
getur æft hvort sem það er með
keppni í huga eða ekki. Sumir vilja
æfa af alvöru fyrir keppni, meðan
öðrum nægir að hittast og spila.
Þannig sameinar fólk góða útrás,
brennslu ogánægju. Þetta er allt und-
ir hverjum og einum komið — hvað
einstaklingurinn vill fá út úr leikn-
„BYRJENDUR ÆTTU
AÐÆFA TVISVAR TIL
ÞRISVAR í VIKU"
um."
— Hverjir eru kostir skvassíþrótt-
arinnar?
„Þeir eru aðallega tveir. Tækni-
þjálfun, vegna margbreytni skot-
anna, annars vegar. Tæknina getur
þú stöðugt bætt. Hins vegar færðu
fína líkamsþjálfun með því að stunda
íþróttina. Þó með þeim fyrirvara að
fólk, sem hefur ekki komið nálægt
íþróttum í langan tíma, sérstaklega
fullorðið fólk, ætti ekki að fara beint
inn í sal og hamast. Þannig næsttak-
markaður árangur. Það er nauðsyn-
legt að komast í ágætt form og þá fyrst
snúa sér að skvassinu.
Auðvitað er byrjandi háður því
hversu hæfur hann er með spaðann.
Hæfnin ákveður hve mikil hlaup og
hreyfingu hann fær út úr spilinu sem
slíku. í fyrstu notar fólk ekki allan
salinn, heldur aðallega miðsvæði
hans. Því betri sem spilarinn er því
meira fær hann út úr skvassi sem al-
hliða líkamsrækt. Því betri sem
spaðatækni hans er því meiri hreyf-
ing verður á spilinu. Jafnframt verða
leikirnir lengri og skemmtilegri.
Meiri tækni þarfnast meiri styrks og
orku."
— Hve langan tíma tekur það byrj-
anda að ná sæmilegum árangri í
skvassinu?
„Þeir sem hafa einhverja reynslu af
öðrum spaðaíþróttum, svo sem tenn-
is eða badminton, eru oftast fljótari
að tileinka sér undirstöðuatriðin
heldur en hinir sem hafa enga
reynslu í að slá hlut sem er á hreyf-
ingu. Það getur tekið menn allt frá
tveimur mánuðum til tveggja ára að
nátökum áskvassinu — allteftir upp-
lagi hvers og eins.
Þá t’er árangurinn auðvitað eftir því
hve oft spilarar æfa. Ég tel hæfilegt
fyrir byrjendur að æfa tvisvar, þrisvar
í viku til að ná árangri sem fyrst."
— Áttu einhver góð ráð fyrir byrj-
endur varðandi æfingar?
„Já, þeir eiga að koma á námskeið
til mín!" Þessu svari fylgir íbyggið
glott frá þjálfaranum. „Nei, í alvöru
talað þá er æskilegast að þeir verði
sér úti um kennslu í undirstöðuatrið-
„Við reynum að fá krakkana strax
upp úr sex ára aldri til okkar."
unum strax í upphafi. Einfaldar æf-
ingar gera mest gagn eftir það. Til
dæmis að slá stutta bolta íforhönd og
bakhönd og reyna að halda honum
gangandi sem lengst. Síðan er lengd-
in alltaf aukin, þar til takmarkinu er
náð. Slíkar æfingar hafa núverandi
spilarar hérlendis og erlendis gert til
þessa með góðum árangri.
„ÞIÐ EIGIÐ AÐ
NOTA ÞESSA BESTU
TIL AÐ KENNA
HINUM"
Þeir skvass-spilarar sem komu til
mín á námskeið ífyrra hafa allirtekið
miklum framförum. Þeir hafa meiri
getu og tækni og eru í mun betra
formi nú. Þeirslábetur, notaspaðann
betur og lesa leikinn betur en í fyrra.
íslendingar eiga núna nokkra góða
spilara. Þá eigið þið að nota til að
kenna öðrum."
— Myndir þú þá segja að skvass
væri fyrir alla aldurshópa og bæði
kyn?
„Já, tvímælalaust! Á British Open í
skvassi er keppt í flokkum fyrir 60 ára
og eldri, bæði í karla- og kvenna-
flokki. Svo þaðer um að gera fyrir þá,
sem áhuga hafa, að drífa sig af stað en
þó með fyrri ráðleggingar mínar í
huga. í Bretlandi reynum við einnig
að fá krakkana strax upp úr sex ára
aldri til okkar íklúbbinn. Við semjum
við skólana um að leyfa þeim að
koma í skvass í leikfimitímum, jafn-
vel einu sinni í viku. Þá er einnig gott
að bjóða upp á æfingatíma fyrir
krakka um helgar þegar enginn skóli
er og reyna að vekja áhuga þeirra á
íþróttinni. Þetta ættuð þið líka að
geta gert hér á íslandi. Við höfum
verið með sérstaka spaða fyrir þau.
Þeir eru með styttra handfangi og svo
höfum við notað svampbolta, alla-
vega til að byrja með. Krakkarnir hafa
mjög gaman af þessu."
— En snúum okkur að spilurum á
heimsmælikvarða. Hverjireru þeir?
„Pakistan hefur átt efsta mann á
heimslistanum undanfarin 10-12 ár. I
dag eru bestu skvass-spilararnir frá
Pakistan og Ástralíu en Bretar hafa
sótt á. Jahangir Kahn frá Pakistan var
nr. 1 í heiminum og heimsmeistari í
rúm fimm ár. Auk þess hefur hann
unnið British Open undanfarin tíu ár.
Slíkt afrek er einstakt í íþróttasög-
unni.
Eftirtaldir eru efstir á heimslistan-
um:
1. Jansher Kahn (Pakistan)
2. Chris Robertsson (Ástralíu)
3. Jahangir Kahn (Pakistan)
4. Rodney Martin (Ástralíu)
5. Chris Dittmar (Ástralíu)
Jansher Kahn, núverandi heims-
meistari, æfir í klúbbnum mínum.
Hann gerir sömu æfingar og byrjend-
ur, nema mun hraðar, nákvæmar og
lengurísenn. Hanneyðir5-6tímum í
salnum daglega og kemur einungis
fram til að fá sér vatnssopa. Hann
gerir Ifka mjög erfiðar tæknilegar æf-
ingar. Þessi æfingatími er ósköp eðli-
legur meðal atvinnumanna í skvassi.
Það fylgist líka að — því meiri æfing-
ar, því ofar fer spilarinn á heimslist-
anum. Þessir menn hafa æft svona
stíft í mörg ár. Þetta er bara þeirra
lífsstíll, þeirra vinna."
17