Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 4
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er fyrsta skrefið okkar. Við þurftum að fá upplýsingar um stöð- una eins og hún er til þess að geta farið að vinna aðgerðaáætlanir um að draga úr losun,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. Kynnt hefur verið skýrsla um kolefnisspor íslenskrar nautgriparæktar sem Efla verkfræðistofa vann fyrir sam- tökin. Losun vegna nautgriparæktar og mjólkurframleiðslu hér á landi nam 275 þúsund tonnum CO2-ígilda á árinu 2018, samkvæmt skýrslunni. Þrír þættir hafa mest áhrif. Helm- ingurinn er vegna losunar metans úr meltingarvegi nautgripa. 13% hennar eru vegna meðhöndlunar búfjáráburgðar og 12% vegna framleiðslu og flutnings tilbúins fóðurs. Rekja má alls um 70% af kolefnisspori greinarinnar til líf- fræðilegra ferla í gripunum, þegar notkun húsdýraáburðar er tekin með í reikninginn. Samsvarar kílói á lítra Heildarlosun frá dæmigerðu búi þar sem mjólkurframleiðsla er stunduð er um 578 tonn CO2-ígilda á ári. Samsvarar það 1 kg á hvern lítra mjólkur og rúmlega 18 kg á hvert kíló kjöts sem framleitt er á búinu. Heildarlosun frá dæmigerðu kjötframleiðslubúi nemur 187 tonn- um af CO2-ígildum á ári sem svarar til 23,4 kg á hvert kíló kjöts. Margrét segir að niðurstöðurnar séu í ágætu samræmi við nið- urstöður erlendra rannsókna, frek- ar þó í lægri kantinum. Spurð hvað hægt sé að gera til að draga úr losun segir Margrét: „Við getum gert betur í heimaöflun fóðurs og markvissari notkun lands er viðfangsefni alls landbúnaðarins. Mikilvægt er að eftir því sem nytin eykst fækkar þeim gripum sem þarf til að framleiða sama magn af mjólk. Við það minnkar losun. Með kynbótum er því hægt að minnka kolefnissporið. Gerð verður verkáætlun Þá er spennandi rannsókn í gangi hjá Matís þar sem skoðað er hvort hægt er að nota þörunga sem íblöndunarefni í fóður til að auka nyt mjólkurkúa og draga úr met- angasmyndun.“ Eitt af meginmarkmiðum gild- andi samnings ríkis og bænda um starfsskilyrði nautgriparæktarinnar er að greinin verði kolefnisjöfnuð fyrir árið 2040. Skipaður verður starfshópur til að setja saman verk- áætlun vegna þess. Hann á að skila útfærslu tiltekinna atriða fyrir 1. maí. „Það er okkar næsta varða í þessari vinnu. Ég geri fastlega ráð fyrir að starfshópurinn muni hafa skýrslu okkar um kolefnisfótspor nautgriparæktarinnar til hliðsjónar við sína vinnu,“ segir Margrét. 70% kolefnisfótspors vegna líffræðilegra ferla  Kúabændur stefna að kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 Morgunblaðið/Eggert Kýr á beit Helmingur losunar gróðurhúsalofttegunda frá nautgriparækt er metangas sem myndast í meltingarvegi kúnna. Hugsanlega má minnka það. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Siglingasvið rannsóknanefndar samgönguslysa afgreiddi í vikunni lokaskýrslur vegna slysa um borð í þremur hvalaskoðunarbátum á Skjálfanda síðasta sumar. Nefndin ályktaði ekki í málunum, en vísaði til þess að hún hefði rannsakað fjölda sams konar slysa frá árinu 2011. Vísað er til ellefu skýrslna á þessu tímabili „þar sem niðurstöður benda allar til þess sama þ.e.a.s. að of mikill siglingahraði miðað við að- stæður hafi valdið slysunum“, eins og segir í skýrslunni. Umræddir RIB-bátar, Kjói, Amma Sigga og Amma Sigga II eru gerðir út frá Húsavík. Í öllum til- vikum kom högg á bátana og einn farþegi í hverjum bát slasaðist í baki. Tvær ferðanna voru farnar í maí í fyrra og sú þriðja í ágúst. Í sérstakri ábendingu í loka- skýrslum um þessi þrjú mál er rifj- að upp að RNSA gerði eftirfarandi tillögu í öryggisátt í ágúst 2017: „Í ljósi tíðra slysa um borð í RIB bát- um, sem notaðir eru í atvinnuskyni, leggur nefndin til við samgöngu- og sveitastjórnarráðuneyti að settar verði reglur sem tryggi öryggi far- þega. Í því sambandi verði m.a. at- hugað hvort fjaðrandi sæti geti ver- ið einn liður í því.“ „Þetta hefur ekki verið gert“ Síðan segir í sérstakri ábendingu siglingasviðs RNSA að í bréfi frá 16. apríl 2018 hafi ráðuneytið ekki talið fært að setja sérstakar reglur varðandi sæti þar sem bátarnir væru CE-merktir. Hinsvegar hafi verið ákveðið að útfærðar yrðu kröf- ur um að útgerðir RIB-báta fram- kvæmdu áhættumöt á mismunandi aðstæðum sem fæli í sér að við til- teknar aðstæður væri siglt hægar. „Þetta hefur ekki verið gert,“ segir í sérstakri ábendingu siglingasviðs RNSA. Mörg hliðstæð mál á RIB-bátum  Fjallað um slys í hvalaskoðunarbátum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Á Skjálfanda Slys um borð í hvalaskoðunarbátunum Ömmu Siggu, Ömmu Siggu II og Kjóa hafa verið til meðferðar hjá siglingasviði RNSA. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Fleiri íbúðir verða byggðar í Haga- hverfi á Akureyri, nýjasta hverfi bæjarins, en í fyrstu var gert ráð fyrir. Í deiliskipulagi var sett ákveð- ið lágmark, 540 íbúðir, en gert ráð fyrir möguleika á að byggja meira og sú hefur orðið raunin. Fleiri íbúð- ir og væntanlega þá fleiri íbúar verða því í hverfinu, en nú er gert ráð fyrir að í allt verði byggðar að lágmarki um 700 íbúðir í Haga- hverfi. Framkvæmdir við Hagahverfi ganga samkvæmt áætlun. Hverfið gengur suður af Naustahverfi og er námunda við helstu útivistarperlur Akureyrar, Kjarnaskóg og Nausta- borgir. Gert er ráð fyrir að leikskóli verði byggður í hverfinu en þar verður ekki grunnskóli, þar verður þjónustusvæði, skipulögð útivistar- og leiksvæði í blandaðri byggð, ein- býlis-, rað-, og fjölbýlishúsa. Allar lóðir eru seldar nema ein- býlishúsalóðir Deiliskipulag Hagahverfis tók gildi um mitt ár 2015 og segir Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri Skipu- lagssviðs Akureyrarbæjar, að fyrstu lóðunum hafi verið úthlutað fljótlega eftir það og framkvæmdir farið af stað. Heilmikill kraftur hafi verið í byggingaframkvæmdum í Haga- hverfi undanfarin ár og segir hann að nú í byrjun árs 2020 sé búið að auglýsa allar lausar lóðir í hverfinu. „Þær hafa allar gengið vel út nema 25 einbýlishúsalóðir sem eftir standa,“ segir Pétur Ingi. „Við vit- um í raun ekki alveg hvers vegna eftirspurn eftir einbýlishúsalóðum er svona lítið, en gerðum ráð fyrir að þær myndu fara hægar út en fjöl- býlis þar sem lítið er um að verktak- ar sækist eftir einbýlishúsalóðum.“ Hann segir þá stöðu uppi nú að líklegt sé að heildarfjöldi íbúða í Hagahverfi verði í kringum 700 tals- ins þegar hverfið verður fullbyggt. Það þýði að fjöldi íbúa þar verði á bilinu 1.600 til 1.800 manns. Nýtt hverfi kynnt innan tíðar Pétur Ingi segir að um þessar mundir séu framkvæmdir hafnar við um helming íbúða í hverfinu. „Við erum svo langt komin með næsta hverfi á Akureyri og gerum ráð fyrir að það fari í kynningu á næstu mán- uðum. Það hverfi kallast Holtahverfi norður og er um að ræða íbúabyggð austan Krossanesbrautar og að hluta til vestan hennar líka,“ segir hann. Að auki er unnið að gerð rammaskipulags fyrir íbúðasvæði vestan við Borgarbraut og norðan Giljahverfis. Íbúafjölgun á Akureyri var að meðaltali um 1,2% á ári á árunum eftir 2000 en frá 2010 lækkaði hlut- fallið í 0,8%. Lítið var um íbúða- byggingar á Akureyri á árunum eft- ir hrun, frá 2009 til 2012 og skapaðir þá töluverð þörf í bænum fyrir íbúð- ir, en Pétur Ingi segir ómögulegt að segja hvenær þeirri uppsöfnuðu þörf ljúki og markaðurinn mettist. Íbúðum fjölgað í Hagahverfi  Nú er gert ráð fyrir að allt að 700 íbúðir verði byggðar í nýjasta hverfinu á Akureyri og að þar muni búa á bilinu 1.600 til 1.800 manns  Ný íbúðahverfi austan Krossanesbrautar verða kynnt innan tíðar Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Hagahverfi í byggingu Framkvæmdir við Hagahverfi ganga samkvæmt áætlun en þar verður þjónustusvæði, skipulögð útivistar- og leiksvæði í blandaðri byggð einbýlis-, rað-, og fjölbýlishúsa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.