Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANHILDAR ERLU J. LEVY, Haðalandi 17, Reykjavík. Gunnlaugur Guðmundsson Garðar Gunnlaugsson Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson Anna Júlíusdóttir Hildur Gunnlaugsdóttir Arnar Sölvason Áslaug Gunnlaugsdóttir Ágúst Sæmundsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, HAFDÍSAR HALLDÓRSDÓTTUR, Smárarima 98, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Eirar hjúkrunarheimilis fyrir hlýja og góða umönnun. Þeim sem vilja minnast Hafdísar er bent á Alzheimersamtökin. Páll Pálsson Lóa Dögg Pálsdóttir Hallvarður Hans Gylfason Inga Hlín Pálsdóttir og barnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HANNA BJÖRG FELIXSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Sóltúni, lést 12. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Grétar F. Felixson Guðlaug Þórs Ingvadóttir Sigríður J. Þórisdóttir Sigurjón Sighvatsson Anna Laufey Sigurðardóttir Guðmunda H. Þórisdóttir Sigurður Gísli Pálmason Heba Þórisdóttir Shepherd Stevenson barnabörn, barnabarnabörn, og barnabarnabarnabörn Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru dóttur, systur, mágkonu og frænku, VIKTORÍU HRANNAR AXELSDÓTTUR. Axel Jóhann Ágústsson Steinunn Karólína Arnórsd. Lesley Patricia Dixon Stella Rut Axelsdóttir Ívar Sæmundsson Sandra Björg Axelsdóttir Björn Halldórsson Ágúst Ingi Axelsson Halla Hrund Skúladóttir Paul Lewis Trosh Hayley Dixon Linzi Margaret Trosh Bjarki Þór Sigvarðsson Axel Kristinn Axelsson Sólbjörg Guðrún Vilhemsdóttir og systkinabörn Alúðarþakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför elsku fallegu mömmu okkar, stjúpmömmu, tengdamömmu, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR G. LÁRUSDÓTTUR, húsmóður og verslunarkonu sem lést miðvikudaginn 8. janúar. Lára G. Vilhjálmsdóttir Pálmi Aðalbjörnsson Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Elsa Kristín Helgadóttir Hjördís Vilhjálmsdóttir Anton Sigurðsson Edda Hafsteinsdóttir Hafsteinn Þór Hafsteinsson María Chernyshova Arnar Þór Hafsteinsson Elísabet Granneman Hulda Hafsteinsdóttir Daníel Gunnarsson Alfreð Hafsteinsson Guðrún Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU JÓNASDÓTTUR kennara, áður til heimilis í Ljósheimum 5. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem sýndu henni hlýju, umhyggju og alúð síðustu árin, ekki síst yndislegu starfsfólki 2.h. norður í Mörkinni. Sylvía Jóhannsdóttir Laufey Jóhannsdóttir Gunnar Jóhannesson Indriði Jóhannsson Berglind Sigurlaug Guðnad. Helga Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Alúðarþakkir sendum við öllum sem sýndu okkur hluttekningu, vináttu og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTRÚNAR SKÚLADÓTTUR, Sléttuvegi 15, Reykjavík. Sérstakar kveðjur eru sendar starfsfólki B2 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir hlýju og umhyggju. Skúli Eggert Þórðarson Dagmar Elín Sigurðardóttir Gunnar Þorsteinsson Klara Lísa Hervaldsdóttir Gísli B. Ívarsson og fjölskyldur Okkar ástkæri, STEFÁN ÞORLÁKSSON, Gautlandi, Fljótum, Skagafirði, lést þriðjudaginn 17. desember á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði. Útförin fór fram laugardaginn 11. janúar frá Siglufjarðarkirkju. Starfsfólki HSN á Siglufirði eru færðar þakkir fyrir einstaklega góða umönnun. Aðstandendur Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, ÞÓRUNNAR ERNU ÞÓRÐARDÓTTUR. Þórhildur Andrésdóttir Sigurlaug Andrésdóttir Elskuleg móðir okkar, SIGRÚN HERMANNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, frá Seyðisfirði, lést 2. febrúar á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Guðný Bjarnadóttir Einar Bjarnason Stefanía Sigríður Bjarnadóttir Hermann Bjarnason Guðríður Bjarnadóttir Það er vanda- verk að minnast manneskju og ævi hennar með örfáum orðum. Hvernig get ég gert lífi hennar skil svo vel sé? Staðreyndir og dagsetningar duga skammt. Mörg höfum við minningar sem okkur eru kærar, minningar jafnvel, sem engin orð fá lýst. En – það er sama við hvern ég hef talað, allir eru sammála að friður og kærleikur var tengdamömmu minni það mik- ilvægasta í lífinu. Hvernig kynntist 15 ára stúlka af Austfjörðum ungum manni úr vesturbænum í Reykjavík? Sigríður Antoníusdóttir ✝ Sigríður Anton-íusdóttir fædd- ist 22. október 1935. Hún lést 7. janúar 2020. Útför fór fram í kyrrþey. Jón og nokkrir vinir hans ætluðu að fara út og skemmta sér þetta kvöld en veðrið var ekki spes, svo þeir héngu heima hjá Jóni og spjölluðu saman. Jóni var litið á nokkur tímarit sem lágu í bunka, á meðal þeirra var gömul Vika. Hann tók hana upp og fór að blaða í henni. Þar fann hann nafn Sigríðar Antoníusdóttur, sem hafði áhuga á að skrifast á við pilt á aldrinum 15-18 ára. Jón var þá 19 ára og hann ákvað að senda stúlkunni bréf. Jón fór ekki hefðbundnar leiðir, sem kemur okkur svo sem ekki á óvart. Hann reif stykki af loki á skókassa og skrifaði á það að hann hefði áhuga á að kynnast henni frekar. Á hinum endanum var hin rúmlega 15 ára Sigga, þá í Al- þýðuskólanum á Eiðum – á heimavist. Sérstaka bréfsefnið frá þessum pilti suður í Reykja- vík vakti forvitni hennar. Jón og Sigga skrifuðust á í rúmt ár án þess að hittast. Þau kynnt- ust þannig með svipuðum hætti og svo margir gera í dag á sam- félagsmiðlum. Vorið 1952 útskrifaðist Sigga frá Eiðum og ákvað að fara í húsmæðraskólann til Reykja- víkur. Þá gafst fyrst færi að hitta Jón í fyrsta sinn. Hann fór þangað sem hún bjó, bankaði og spurði eftir Siggu. Um dag- inn þegar Jón rifjaði upp þetta augnablik fannst mér eins og ég fyndi smá eftirskjálfta af þeim titringi sem þá var í loft- inu. Þetta sameiginlega ferðalag þeirra átti eftir að vera langt og gæfuríkt. Þau trúlofuðu sig seint árið 1953 og giftust um verslunarmannahelgina 1954 í Kolfreyjustaðakirkju við Fá- skrúðsfjörð. Þau hófu búskap í húsi for- eldra Jóns, við Mýrargötu 16, eins og svo margir í fjölskyld- unni áttu eftir að gera. Sigrún fæddist í desember 1954 og svo fylgdu þrjár dætur í kjölfarið, Ingibjörg 1956, Ólöf fjórum ár- um síðar og svo kom Þóra 1965. Þannig var Sigga orðin fjög- urra barna móðir aðeins þrjátíu ára gömul. Það leið samt ekki á löngu þangað til fyrstu barna- börnin komu og atvikaðist það þannig að þau áttu einnig heima hjá fjölskyldunni sem var þá búsett í Álftamýrinni. Svona liðu árin. Lengst af áttu þau heima í Keilufelli, þar sem við flest höfum ljúfar minningar um líflegt, hlýtt og gott fjölskyldulíf. Afkomendum fjölgaði, makar, stjúpbörn og vinir bættust í hópinn. Við eld- húsborðið fóru fram líflegar umræður milli kynslóða og þar var alltaf nóg af veitingum, öll- um fannst þau velkomin, við vorum öll hluti af fjölskyldunni hennar Siggu. Síðustu árin hafa verið ljúf- sár þar sem heilsubrestur setti oft strik í reikninginn en þessu tók hún með jafnaðargeði og var í því sem öðru okkur hinum góð fyrirmynd. Við þökkum Guði fyrir líf Sigríðar og fögnum voninni um endurfundi. Manfred Lemke. Mín fyrstu kynni af Símoni voru vor- ið 1978, þá tólf ára gamall. Móðir mín hafði ráðið sig sem ráðskonu ég fór með sem „við- hengi“ langt út fyrir Stór-Hafn- arfjarðarsvæðið og alla leið að Dalsseli undir Eyjafjöllum en þar bjuggu bræðurnir Símon og Einar og þá vantaði ráðskonu fyrir sumarið og einn krakka- gemlingur var engin fyrirstaða. Án þess að það væri eitthvað rætt eða um samið þá fékk krakkagemlingurinn nóg að Símon Oddgeirsson ✝ Símon Odd-geirsson fædd- ist 2. desember 1927. Hann lést 17. janúar 2020. Útför Símonar fórr fram 1. febrúar 2020. gera þetta sumar. Bræðurnir ráku þarna stórt kúabú ásamt því að vera með töluvert af kindum og eitthvað af hrossum, einnig var þarna köttur- inn Sigurður Sí- vertsen. Þetta voru dug- legir karlar og höfðu byggt upp búið af eljusemi, fyrst með for- eldrum sínum en svo saman í félagsbúi. Símon var alla tíð tæknilega þenkjandi og sá til þess að á búinu væru til þær vélar sem auðvelduðu störfin og bættu afköstin. Þeir bræður höfðu með sér ákveðna verka- skiptingu en alltaf fóru þeir saman í fjósið, þar voru lands- málin rædd. Það var alveg nóg við að vera og þeir bræður virtust ekki hafa neina þörf fyrir einhvern óþarfa þvæling. Að sjálfsögðu var farið til berja og einhverju sinni niður á Landeyjasand að leita að reka. Mér er þó minnisstæð bílferð seinnipart sumars 1980 þegar Hekla gaus. Þetta urðu þeir bræður að sjá í návígi og eftir kvöldmjaltir var tekinn rúntur að spúandi eldfjallinu. Eftir fráfall Einars bjó Sím- on einn í Dalsseli fram til ársins 2002 þegar hann brá búi og byggði sér Dalssel 2. Þó svo að Símon væri hættur hefðbundn- um búskap beindi hann kröftum sínum að áhugamáli sem hefur eflaust blundað í honum lengi en það var skógrækt og tókst honum að rækta upp töluverðan skóg á aurunum norðan við þjóðveg nr. 1 skammt frá nýju Markarfljótsbrúnni og sýndi hann stoltur hverjum þeim sem vildi sjá umbreytinguna sem svartur aurinn hafði tekið í umsjá hans. Með meiri frítíma gafst tími til að ferðast og fór Símon í ferðir með eldri borgurum í Rangárþingi innanlands en einnig fór hann út fyrir land- steinana og oftar en ekki var Þórður Marteinsson, góður vin- ur hans, með í för og ferðuðust þeir um eins og lordar með bíl- stjóra/aðstoðarmann. Þó svo að Símon væri hættur búskap og tækjakaupum honum tengdum hætti hann ekkert að hugsa um tæknina og talaði hann um að rafmagnið ætti eftir að spila stærri rullu í sam- göngum og með það sama var farið í kaupstaðarferð og rafknúinn bíll keyptur, líklega sá fyrsti í Rangárþingi. Símon gantaðist með það að sölumaðurinn hefði ekki trúað sínum eigin eyrum þegar hann heyrði kennitölu kaupandans. Sumrin sem ég dvaldist í Dalsseli urðu 5 og það finnst mér segja mikið til um það hvað gott var að vinna hjá þeim Sím- oni og Einari. Í dag kveð ég Símon og þakka honum fyrir kynnin. Marteinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.