Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 39

Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 39
versins í Straumsvík er nú hafin vinna við breytingar á aðalskipulagi Hafn- arfjarðar og mun bæjarfélagið, eðli máls- ins samkvæmt, vera í samstarfi við fyrir- tækið í allri þeirri vinnu. Óboðlegur málflutningur um álver- ið Öflugt atvinnulíf er hverju samfélagi mikilvægt og höfum við lagt ríka áherslu á að skapa fyrirtækjum í bænum aðlað- andi og traust umhverfi. Slíkt hefur gefið okkur möguleika á að fjárfesta í inn- viðum og létta undir með íbúum bæj- arfélagsins. Nýverið sagði Tómas Guð- bjartsson læknir álverið í Straumsvík vera dauðvona og á líknandi meðferð. Það er dapurlegt að skynja þau viðhorf sem fram koma í ummælum læknisins til þessa stóra vinnustaðar í landinu og þeirra ein- staklinga sem þar starfa. Í álverinu í Straumsvík starfa um 400 starfsmenn með ólíka menntun og reynslu, ásamt því að álverið er einn stærsti útflytj- andi vara frá Íslandi. Það gefur því augaleið að fyrir- tækið er samfélaginu mikilvægt og er eitt af okkar góðu og traustu fyrirtækjum. Málflutningur sem þessi er því óásættanlegur og í raun með öllu óboð- legur. »Mikilvægt er að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar, frá gatnamótunum við Krýsuvík að Hvassahrauni, fari inn á fyrsta tímabil samgönguáætlunar. Mikilvægt er að framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbraut- arinnar, frá gatnamótunum við Krýsuvík að Hvassahrauni, ljúki hið fyrsta. Á sínum tíma, þegar uppi voru áform um stækkun álversins í Straumsvík, keypti álverið land undir þá stækkun og á því landi liggur Reykjanesbrautin í dag. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi átti Reykja- nesbrautin því að færast frá álverinu um leið og álverið þyrfti lóðina til stækkunar. Þau áform um stækkun voru naumlega felld í íbúakosningu árið 2007 og ekk- ert hefur því orðið af tilfærslu brautarinnar. Framkvæmdum flýtt Nýleg skýrsla Vegagerðarinnar og Mannvits sýndi að hagkvæmast er að breikka Reykjanes- brautina í núverandi vegstæði í stað þess að færa hana líkt og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Góð og lausnamiðuð samtöl hafa verið við Sigurð Inga Jóhannsson samgönguráðherra og fulltrúa Vegagerðarinnar og álversins í Straumsvík. Sam- staða og skilningur er á milli aðila um að vinna í sam- ræmi við þær forsendur sem fram koma í skýrsl- unni, ásamt því – og um leið – að treysta athafnasvæði álversins til framtíðar. Þetta hefur gefið okkur raunhæfar væntingar, líkt og ráðherra hefur boðað, um að framkvæmdum á þessum veg- kafla verði flýtt um nokkur ár og komist inn á fyrsta tímabil samgönguáætlunar. Umferðaröryggi er mál- efni sem snertir okkur öll og eru þetta því mikil gleðitíðindi fyrir okkur Hafnfirðinga og landsmenn alla. Í ljósi þessa og í samræmi við það sem fram kemur í skýrslunni og eftir samráð við fulltrúa ál- Eftir Ágúst Bjarna Garðarsson Ágúst Bjarni Garðarsson Höfundur er formaður bæjarráðs í Hafnarfirði. agustg@hafnarfjordur.is Tvöföldun Reykjanes- brautarinnar 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 Sólarblinda Sólfarið dregur jafnan að sér athygli ferðalanga, jafnt um sumar sem vetur. Sólin er gjarnan lágt á lofti og þarf þá stundum að skýla augunum til að geta notið listarinnar til fulls. Eggert Öflugt og margbreytilegt at- vinnulíf er forsenda hagsældar og velferðar hvers samfélags. Þar munar ekki síst um lítil og meðalstór fyrirtæki í verslun, þjónustu og nýsköpun af öllum toga. Það má segja að slíkur rekstur sé lífæð atvinnulífsins og hraustleikamerki þess að slíkum fyrirtækjum vegni vel. Þess vegna vill þingflokkur Sjálfstæðisflokksins leggja sérstaka áherslu á að heimsækja lítil og meðalstór fyrirtæki í hringferð sinni um landið að þessu sinni. Þingflokkurinn heimsækir tugi sveitar- félaga á næstu vikum, heldur opna fundi og heimsækir vinnustaði. Það styrkir okkur í okkar störfum að hitta fólkið í landinu og heyra sögur þess og sjón- armið. Hringferðin hefst í höfuðborginni á fimmtudagskvöldið 6. febrúar á Kaffi Reykjavík með ávörpum formanns og oddvita flokksins í Reykjavíkurkjördæm- unum. Að því loknu gefst fólki tækifæri til að eiga gott og milliliðalaust spjall við alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Sami háttur verður hafður á um landið allt á næstu vikum en strax á föstudaginn ligg- ur leiðin vestur á firði og þaðan verður farið um allt Norðurland og yfir á Aust- firði. Þetta er bara fyrsti leggur ferðar en markmiðið er sem fyrr að heimsækja sem flest byggðarlög landsins. Við erum á réttri leið og hlökkum til ferðalagsins. Eftir Bjarna Benediktsson og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir » Þingflokkurinn heim- sækir tugi sveitarfé- laga á næstu vikum, heldur opna fundi og heimsækir vinnustaði. Bjarni er formaður Sjálfstæðisflokksins. Þórdís Kolbrún er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hringferð fyrir fjölbreytt og skapandi atvinnulíf Bjarni Benediktsson Þórdís Kolbrún Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.