Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 39
versins í Straumsvík er nú hafin vinna
við breytingar á aðalskipulagi Hafn-
arfjarðar og mun bæjarfélagið, eðli máls-
ins samkvæmt, vera í samstarfi við fyrir-
tækið í allri þeirri vinnu.
Óboðlegur málflutningur um álver-
ið
Öflugt atvinnulíf er hverju samfélagi
mikilvægt og höfum við lagt ríka áherslu
á að skapa fyrirtækjum í bænum aðlað-
andi og traust umhverfi. Slíkt hefur gefið
okkur möguleika á að fjárfesta í inn-
viðum og létta undir með íbúum bæj-
arfélagsins. Nýverið sagði Tómas Guð-
bjartsson læknir álverið í Straumsvík vera dauðvona
og á líknandi meðferð. Það er dapurlegt að skynja
þau viðhorf sem fram koma í ummælum læknisins til
þessa stóra vinnustaðar í landinu og þeirra ein-
staklinga sem þar starfa. Í álverinu í Straumsvík
starfa um 400 starfsmenn með ólíka menntun og
reynslu, ásamt því að álverið er einn stærsti útflytj-
andi vara frá Íslandi. Það gefur því augaleið að fyrir-
tækið er samfélaginu mikilvægt og er eitt af okkar
góðu og traustu fyrirtækjum. Málflutningur sem
þessi er því óásættanlegur og í raun með öllu óboð-
legur.
»Mikilvægt er að tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar, frá
gatnamótunum við Krýsuvík að
Hvassahrauni, fari inn á fyrsta
tímabil samgönguáætlunar.
Mikilvægt er að framkvæmdum
við tvöföldun Reykjanesbraut-
arinnar, frá gatnamótunum við
Krýsuvík að Hvassahrauni, ljúki hið
fyrsta. Á sínum tíma, þegar uppi voru
áform um stækkun álversins í
Straumsvík, keypti álverið land undir
þá stækkun og á því landi liggur
Reykjanesbrautin í dag. Samkvæmt
gildandi aðalskipulagi átti Reykja-
nesbrautin því að færast frá álverinu
um leið og álverið þyrfti lóðina til
stækkunar. Þau áform um stækkun
voru naumlega felld í íbúakosningu árið 2007 og ekk-
ert hefur því orðið af tilfærslu brautarinnar.
Framkvæmdum flýtt
Nýleg skýrsla Vegagerðarinnar og Mannvits
sýndi að hagkvæmast er að breikka Reykjanes-
brautina í núverandi vegstæði í stað þess að færa
hana líkt og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir.
Góð og lausnamiðuð samtöl hafa verið við Sigurð
Inga Jóhannsson samgönguráðherra og fulltrúa
Vegagerðarinnar og álversins í Straumsvík. Sam-
staða og skilningur er á milli aðila um að vinna í sam-
ræmi við þær forsendur sem fram koma í skýrsl-
unni, ásamt því – og um leið – að treysta
athafnasvæði álversins til framtíðar. Þetta hefur
gefið okkur raunhæfar væntingar, líkt og ráðherra
hefur boðað, um að framkvæmdum á þessum veg-
kafla verði flýtt um nokkur ár og komist inn á fyrsta
tímabil samgönguáætlunar. Umferðaröryggi er mál-
efni sem snertir okkur öll og eru þetta því mikil
gleðitíðindi fyrir okkur Hafnfirðinga og landsmenn
alla. Í ljósi þessa og í samræmi við það sem fram
kemur í skýrslunni og eftir samráð við fulltrúa ál-
Eftir Ágúst Bjarna
Garðarsson
Ágúst Bjarni
Garðarsson
Höfundur er formaður bæjarráðs í Hafnarfirði.
agustg@hafnarfjordur.is
Tvöföldun Reykjanes-
brautarinnar
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Sólarblinda Sólfarið dregur jafnan að sér athygli ferðalanga, jafnt um sumar sem vetur. Sólin er gjarnan lágt á lofti og þarf þá stundum að skýla augunum til að geta notið listarinnar til fulls.
Eggert
Öflugt og margbreytilegt at-
vinnulíf er forsenda hagsældar
og velferðar hvers samfélags.
Þar munar ekki síst um lítil og
meðalstór fyrirtæki í verslun,
þjónustu og nýsköpun af öllum
toga. Það má segja að slíkur
rekstur sé lífæð atvinnulífsins
og hraustleikamerki þess að
slíkum fyrirtækjum vegni vel.
Þess vegna vill þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins leggja sérstaka
áherslu á að heimsækja lítil og meðalstór
fyrirtæki í hringferð sinni um landið að
þessu sinni.
Þingflokkurinn heimsækir tugi sveitar-
félaga á næstu vikum, heldur opna fundi
og heimsækir vinnustaði. Það styrkir
okkur í okkar störfum að hitta fólkið í
landinu og heyra sögur þess og sjón-
armið.
Hringferðin hefst í höfuðborginni á
fimmtudagskvöldið 6. febrúar á Kaffi
Reykjavík með ávörpum formanns og
oddvita flokksins í Reykjavíkurkjördæm-
unum. Að því loknu gefst fólki tækifæri til
að eiga gott og milliliðalaust spjall við alla
þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Sami
háttur verður hafður á um landið allt á
næstu vikum en strax á föstudaginn ligg-
ur leiðin vestur á firði og þaðan verður
farið um allt Norðurland og yfir á Aust-
firði. Þetta er bara fyrsti leggur ferðar en
markmiðið er sem fyrr að heimsækja sem
flest byggðarlög landsins.
Við erum á réttri leið og hlökkum til
ferðalagsins.
Eftir Bjarna Benediktsson
og Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttir
» Þingflokkurinn heim-
sækir tugi sveitarfé-
laga á næstu vikum, heldur
opna fundi og heimsækir
vinnustaði.
Bjarni er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þórdís Kolbrún er varaformaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hringferð fyrir
fjölbreytt og
skapandi atvinnulíf
Bjarni
Benediktsson
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir