Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 EKKI SÆTTA ÞIG VIÐ 50% ÞEGAR 100% ER Í BOÐI ! Ný Opel Ampera-e – til afgreiðslu strax! Allt að 423 km. drægni* Opnunartímar Virka daga 9–18 • Kemst lengra en þú heldur • Rúmarmeira en þú heldur • Er sneggri en þú heldur Verð frá 4.990.000 kr. • Langtímaleiga Verð ámánuði frá 129.900 kr. (Tryggingar, vetrardekk og þjónusta innifalin.) Birtm eð fyrirvara um m ynd-og textabrengl. Laugardaga 12–16 Opel á Íslandi Reykjavík | Krókhálsi 9 Reykjanesbæ | Njarðarbraut 9 OPEL GOES ELECTRIC *Samkvæmt wltp staðli. Kynntu þér þína drægni á opel.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Verði loðnubrestur annað árið í röð verður það erfitt fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum, að sögn Írisar Ró- bertsdóttur bæjarstjóra. „Við erum að miklu leyti búin að vinna úr áfall- inu í fyrravetur, sem var mjög erf- itt, en bregðist loðnan aftur á þessu ári sé ég ekki að samfélag- ið geti tekið annað slíkt högg,“ segir Íris. Hún segir að ríkið verði að koma til aðstoðar með móvægisað- gerðir. Yfir 30% allra veiðiheimilda í loðnu eru hjá fyr- irtækjum í Eyjum, Ísfélaginu, Vinnslustöðinni og Hugin, og var tekjutap þeirra metið um 7,6 millj- arðar í fyrra. Íris leggur áherslu á að enn standi loðnuleit yfir og ekki sé öll nótt úti, en verði brestur tvö ár í röð sé það nokk- uð sem ekki hafi gerst áður. Menn verði að leita af sér allan grun áður en loðnuvertíð verði endanlega blásin af. Setja þurfi kraft í leit og vöktun að minnsta kosti út þennan mánuð og auka rannsóknir á loðnu. Þar þurfi ríkið að koma myndarlega að verki enda skipti loðnuveiðar miklu fyrir þjóðarbúið í heild. Hún nefnir einnig að rannsóknir bendi til að loðnuveiðar verði leyfðar næsta vetur. Ákveðið svigrúm Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja á þriðjudag var lögð fram skýrsla um loðnubrestinn 2019, þar sem fjallað er um stöðuna áhrif og afleiðingar loðnubrestsins fyrir Vestmannaeyj- ar. Í fundargerð segir meðal annars: „Verði ekki gefin út loðnukvóti annað árið í röð mun bæjarráð óska eftir fundi með sjávarútvegsráðherra, sveitarstjórnaráðherra og fjármála- ráðherra til að ræða mögulegar mót- vægisaðgerðir við aflabresti.“ Íris segist hafa rætt skýrsluna á fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegsráðherra á mánudag. „Hann skilur alvarleikann og áttar sig á því að við munum kalla eftir samtali um mótvægisaðgerðir verði engar loðnuveiðar í ár,“ segir Íris. Spurð um hvers eðlis þessar mót- vægisaðgerðir gætu verið segir hún að samkvæmt grein í fiskveiðistjórn- arlögum sé heimilt grípa inn í skapist aðstæður eins og við gæti verið að etja í Vestmannaeyjum. Þá séu 5,3% heimilda tekin til hliðar vegna ýmissa potta og aðgerða og þar sé líka ákveð- ið svigrúm til að koma til móts við Vestmannaeyinga. Með auknum heimildum í öðrum tegundum til skemmri tíma mætti nýta þá innviði sem séu fyrir hendi í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum og takast á við erfiðleika ársins verði ekki loðnuvertíð. Loks nefnir hún flutning starfa og stofnana út á land, en slík aðgerð gæti nýst Vestmanna- eyingum til lengri tíma. Varfærni í tekjuáætlun Hún segir að lagt verði mat á fjár- hagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir þetta ár verði engin loðna. Vest- mannaeyjar séu sjávarútvegs- sveitarfélag og sveiflur geti verið í veiðum á uppsjávartegundum þar sem fyrirtæki í Eyjum séu með yfir 30% hlutdeild eins og í loðnunni. Var- færni hafi verið gætt í tekjuáætlun bæjarins. „Á síðasta ári þurftum við ekki að gera breytingar á fjárhagsáætlun og það er ábyrgðarhluti að taka upp fjár- hagsáætlunina. Að sjálfsögðu munu starfsmenn sveitarfélagsins meta hvort svigrúm sé fyrir öðru svona áfalli ef til þess kemur. Ef það verður brestur aftur ætlumst við til þess að eitthvað komi í staðinn,“ segir Íris. Aðspurð segir hún að forystumenn í Vestmannaeyjum, Fjarðabyggð og á Höfn í Hornafirði hafi rætt saman og það muni áfram verða samtöl um þessa erfiðu stöðu og einnig sam- skipti við fleiri aðila í greininni. Slíkt sé mikilvægt því loðnubrestur hafi áhrif á samfélög víða um land. Áhrif á allt samfélagið Eins og áður sagði var ítarleg skýrsla um áhrif loðnubrestsins í fyrra lögð fram í bæjarráði í Vest- mannaeyjum í vikunni, en Hrafn Sæ- valdsson vann skýrsluna. Í fundar- gerð bæjarráðs segir m.a. að ljóst sé að áhrif loðnubrestsins 2019 í Eyjum séu mjög mikil á samfélagið allt, ekki bara þá sem starfa í sjávarútvegi. „Fyrirtæki og fólk í Eyjum hafa tekið þetta mikla högg vegna ársins 2019 en annar loðnubrestur er eitt- hvað sem yrði Vestmannaeyjum mjög erfitt. Rúmlega 30% allra veiði- heimilda í loðnu eru hjá fyrirtækjum í Eyjum. Afleiðingar af því eru ekki bara mikið tekjutap samfélagsins alls heldur eru miklar líkur á að markaðir tapist verði loðnubrestur annað árið í röð. Loðnubrestur hefði ekki aðeins áhrif á Vestmannaeyjar og þau sveit- arfélög sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi heldur þjóðarbúið í heild,“ segir í fundargerðinni. Áhrif loðnubrests í Eyjum 2019350 Loðnubresturinn hafði bein áhrif á samtals 350 starfsmenn í Vestmannaeyjum 60 Loðnubresturinn er ígildi 60 ársverka í Vestmanna- eyjum eða nærri 3% ársverka 1 Tapaðar launatekjur í Vestmannaeyjum eru a.m.k. 1 milljarður kr. 7,6 Uppsjávarfyr-irtækin urðu af 7,6 ma.kr. tekjum 900 Önnur fyrirtæki í Eyjum urðu af rúmlega 900 m.kr. 160 Vestmannaeyjabær varð af rúmlega 160 m.kr. í töpuðu útsvari 160 Stéttarfélög og lífeyrissjóðir urðu af 160 m.kr. inngreiðslum Hlutdeild íslenskra fyrirtækja í loðnukvótanum Ísfélag Vestmannaeyja Síldarvinnslan* HB Grandi Vinnslustöðin Samherji Eskja Skinney-Þinganes Gjögur Loðnuvinnslan Huginn ehf. Rammi 19,99% 18,49% 18,00% 10,93% 9,19% 8,81% 8,14% 2,66% 1,75% 1,40% 0,65% *Kvóti Runólfs Hallfreðssonar ehf . settur með heimildum Síldarvinnslunnar, þar sem SVN á meirihluta hlutafjár í RH. 2x Sumar tölur margfaldast með tveimur ef afl abrestur verður áfram árið 2020 Nauðsyn á mótvægisaðgerðum  Tekjutap uppsjávarfyrirtækja í Vestmannaeyjum metið um 7,6 milljarðar vegna loðnubrests í fyrra  Sé ekki að samfélagið í Eyjum geti tekið annað slíkt högg, segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Íris Róbertsdóttir Helstu niðurstöður í skýrslu um loðnubrestinn 2019 eru m.a. að hann hafði bein áhrif á 350 starfsmenn og verið ígildi 60 ársverka. Tekjutap uppsjávarfyrirtækja í Eyjum er metið um 7,6 milljarðar. Tekjutap annarra fyrirtækja um 900 milljónir. Tapaðar launatekjur voru að minnsta kosti einn milljarður. Vestmannaeyjabær og höfnin urðu af um 160 milljónum. Stéttarfélög og lífeyrissjóðir urðu af 160 milljóna króna inngreiðslum. Veltan sem fylgir loðnuvertíð dreifist síðan um allt samfélagið. Um 4.300 manns bjuggu í Vestmannaeyjum í upphafi árs 2019, en á sama tíma voru íbúar Reykjavíkur 128.800 manns eða tæplega 30 sinnum fleiri. Íris Róbertsdóttir segir að ef ígildi 60 tapaðra ársverka séu færð yfir á Reykjavík samsvari það um 1.800 ársverkum. Á sama hátt megi reikna út að um 7,6 milljarða tekjutap í Eyjum samsvari því að 230 milljarðar myndu fara út úr hagkerfinu í Reykjavík ef svona högg yrði í atvinnulífinu þar. Eins og 1.800 ársverk töpuðust SAMANBURÐUR VIÐ REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.