Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Ég hef stundað skíða-
mennsku frá því að ég man eft-
ir mér. Þriggja ára byrjuðu for-
eldrar mínir að kenna mér á
skíði og fyrir það verð ég þeim
ævinlega þakklátur. Eftir tíu
góð skíðaár var ákveðið að
breyta til og við fermingarald-
urinn skipti ég yfir á snjóbretti,
verandi unglingurinn sem ég
var. Í dag er ég 34 ára að verða
35 ára gamall eilífðarunglingur
á snjóbretti en ég get svo sem
alveg viðurkennt það að ég er
farinn að íhuga það að skipta
aftur yfir á skíðin.
Fyrir þremur árum fjárfesti
ég í svokölluðu „splitboardi“ en
brettið hefur aldrei fengið al-
mennilega íslenska þýðingu,
nema kannski kleifbretti. Það
er sem sagt hægt að taka það í
sundur, ganga upp brekkur á
því og setja það svo saman til
þess að renna sér niður. Kleif-
brettið er svar snjóbretta-
heimsins við fjallaskíðum sem
hafa notið mikilla vinsælda
bæði hérlendis og erlendis síð-
ustu ár.
Í síðustu viku bárust hrika-
legar fréttir af ungum manni
sem lést í snjóflóði við Mó-
skarðshnjúka. Ég hef margoft
farið á Móskarðshnjúka að vetri
til, bæði til þess að ganga og á
kleifbrettinu mínu. Í allt of
mörg skipti hef ég farið þangað
illa búinn og án þess að vera
með snjóflóðaýli meðferðis.
Eftir sorgarfréttir síðustu
viku ákvað ég að skrá mig á
snjóflóðanámskeið í fyrsta sinn.
Eitthvað sem ég hefði átt að
vera löngu búinn að gera. Það
er aldrei of varlega farið þegar
náttúran á í hlut og hvort sem
þið eruð að byrja í sportinu eða
ekki; kaupið ykkur snjóflóðaýli,
skóflu og stöng. Slysin gera
nefnilega ekki boð á undan sér
og góður útbúnaður getur skipt
lykilmáli.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Stærstu boltagreinarnar þrjár njóta
töluverðra vinsælda hér á landi og er
umfangið í kringum helstu keppnir á
vegum sérsambandanna verulegt.
Kappleikirnir geta ekki farið fram
án þess að fólk fáist til að annast
dómgæsluna. Störf sem geta vakið
umtal og deilur og fylgir þeim því
gjarnan talsvert áreiti.
Laun heimsins eru þó ekki ein-
ungis vanþakklæti. Dómarar fá
greitt fyrir störf sín á Íslandsmót-
unum en þegar að er gáð geta þau
laun verið ágæt búbót ofan á aðra
vinnu séu dómarar iðnir við kolann.
Vitaskuld gildir þó mat hvers og eins
varðandi það hvernig hann verð-
leggur tíma sinn en ýmiskonar und-
irbúningur og líkamleg þjálfun fylgir
auðvitað dómgæslunni í meist-
araflokkum.
Eðlismunur er á mótafyrir-
komulagi Íslandsmótanna í þessum
greinum. Ekki er úrslitakeppni í
knattspyrnunni eins og í hinum
tveimur greinunum þar sem launa-
taxtarnir breytast þegar komið er í
úrslitakeppnirnar.
Morgunblaðið birtir hér upplýs-
ingar frá Knattspyrnusambandinu,
Handknattleikssambandinu og
Körfuknattleikssambandinu um
launakjör þeirra sem taka að sér að
dæma í þessum greinum. Um núver-
andi taxta er að ræða í vetrar-
greinunum og taxta ársins 2019 í
knattspyrnunni. Yfirlitið er ekki
tæmandi þar sem hér eru ekki upp-
lýsingar um neðri launaflokkana né
ýmsar greiðslur varðandi fjarveru-
álag, akstur og fleira sem er aðeins
mismunandi í íþróttagreinunum sem
hér er fjallað um.
Knattspyrna
Flokkur 1: 37.600 krónur.
Efsta deild karla, bikarkeppni
karla frá 16-liða úrslitum og 50% álag
fyrir að dæma úrslitaleikinn í bik-
arkeppni karla.
Flokkur 2: 19.100
Næstefsta deild karla, Meist-
arakeppni karla, 32-liða úrslit í bik-
arkeppni karla, úrslitakeppni í deilda-
bikar karla, 8-liða og undanúrslit í
bikarkeppni kvenna og 50% álag fyrir
að dæma úrslitaleikinn í þeirri
keppni.
Flokkur 3: 16.000
Efsta deild kvenna og Meist-
arakeppni kvenna.
Flokkur 4: 14.850
C-deild karla, forkeppni bik-
arkeppni karla.
Flokkur 5: 11.750
Næstefsta deild kvenna, bikar-
keppni kvenna fram að 8-liða úrslit-
unum, D-deild karla, úrslitakeppnir
deildabikarsins aðrar en A-deild karla.
Fæðispeningar vegna ferða:
Nokkrir flokkar eftir lengd. Frá
5.600 og upp í 26.000 ef ferðin er 15
tímar eða lengri.
Aðstoðardómarar fá 25.300
krónur í flokki 1. Í flokkum 2-5 er
upphæðin frá 7.850 og upp í 13.950.
Varadómarar fá 13.400 í flokki 1. Í
flokkum 2-4 er upphæðin frá 7.400
og upp í 8.750.
Handknattleikur
Flokkur 1: 38.670 krónur.
Úrslitarimmur um Íslandsmeist-
aratitil karla og kvenna, bikarúr-
slitaleikir karla og kvenna, odda-
leikir í 8-liða og undanúrslitum
Íslandsmóta karla og kvenna.
Flokkur 2: 32.770
Undanúrslit í bikarkeppnum
karla og kvenna, 8-liða og undan-
úrslit Íslandsmóta karla og kvenna,
umspil um sæti í efstu deildum
karla og kvenna.
Flokkur 3: 23.370.
Deildaleikir í efstu deildum karla
og kvenna.
Flokkur 4: 20.560
Næstefstu deildir karla og
kvenna, bikarkeppnir karla og
kvenna fram að undanúrslitum,
meistarakeppni karla og kvenna,
deildabikar karla og kvenna.
Fæðispeningar:
Nokkrir flokkar eftir lengd. Frá
2.580 og upp í 11.900 ef ferðin er 10
tímar eða lengri.
Eftirlitsmenn fá 23.680 krónur
í flokki 1. Í flokkum 2-4 eru upphæð-
irnar frá 13.960 og upp í 20.072.
Körfuknattleikur
Flokkur 1: 36.000 krónur.
Bikarúrslitaleikir karla og
kvenna, úrslitarimmur um Íslands-
meistaratitla karla og kvenna, odda-
leikir í úrslitakeppni karla.
Flokkur 2: 33.700
Undanúrslit á Íslandsmótum
karla og kvenna.
Flokkur 3: 26.000
8-liða úrslit á Íslandsmóti karla,
undanúrslit í bikarkeppnum karla
og kvenna.
Flokkur 4: 18.900
Hefðbundnir deildarleikir í efstu
deildum karla og kenna, úr-
slitakeppni í næstefstu deild karla,
bikarleikir karla og kvenna að und-
anúrslitum, Meistarakeppnir karla
og kvenna.
Flokkur 5: 13.600
Næstefsta deild karla og úr-
slitakeppni í næstefstu deild
kvenna.
Fæðispeningar:
Tveir flokkar eftir lengd. Frá
5.400 og upp í 12.000 ef ferðin er 10
tímar eða lengri.
Eftirlitsmenn fá 13.600 fyrir
starf í fyrstu þremur gjaldflokk-
unum en annars 7.700.
Dómarar geta fengið
hátt í 40 þúsund á leik
Laun heimsins eru ekki einungis vanþakklæti Dómgæsla getur verið búbót
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþjóðadómarar Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson við störf.
Bikarmeistarar Vals í handknatt-
leik kvenna tryggðu sér í gær sæti
í undanúrslitum keppninnar. Það
gerðu einnig úrvalsdeildarliðin
Fram og KA/Þór. Í kvöld mætast
Fjölnir og Haukar í Grafarvog-
inum þar sem tekist verður á um
síðasta lausa sætið í bikarhelginni
svokölluðu sem fram fer í Laug-
ardalshöllinni í næsta mánuði.
Vinni Haukar er ljóst að öll fjögur
liðin í undanúrslitum Coca Cola-
bikarsins koma úr úrvalsdeildinni.
Hvorki Valur né KA/Þór lentu í
vandræðum gegn b-deildarliðunum
FH og ÍR. Valur vann FH 34:19 í
Kaplakrika og KA/Þór vann ÍR
30:20 í Breiðholtinu.
Í Hafnarfirði skoruðu Lovísa
Thompson og Hildur Björnsdóttir
6 mörk hvor fyrir Val. Britney
Cots og Emelía Ósk Steinarsdóttir
skoruðu einnig 6 mörk hvor fyrir
FH.
Ásdís Guðmundsdóttir fór á
kostum fyrir KA/Þór og skoraði 12
mörk. Matea Lonac átti mjög góð-
an leik í markinu hjá KA/Þór og
varði alls 18 skot. Markmaðurinn
var með 50% markvörslu en Aldís
Ásta Heimisdóttir var næst-
markahæst Akureyringa með 4
mörk. Laufey Lára Höskuldsdóttir
var markahæst ÍR-inga með 6
mörk.
Fram heimsótti HK sem sótt
hefur í sig veðrið í vetur en Fram
náði að landa sigri í Kórnum 29:35.
Karen Knútsdóttir skoraði 11
mörk fyrir Fram í leiknum og
Ragnheiður Júlíusdóttir 7 mörk.
Díana Kristín Sigmarsdóttir var
markahæst hjá HK með 8 mörk og
landsliðskonan Sigríður Hauks-
dóttir skoraði 7 mörk í horninu.
Þórir Tryggvason
Illviðráðanleg Karen Knútsdóttir
skoraði 11 mörk fyrir Fram í gær.
Fram sló HK út
úr bikarkeppninni
Öruggt hjá bikarmeisturunum
VERUMHAPPY
HEIMAVÖLLUR FJÖLSKYLDUNNAR
ELLI MÆLIR MEÐ