Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega
góð kaup! Verð frá:
3.690.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
9
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
9
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Kórónuveiran, sem kom upp í Kína,
mun mögulega valda töfum á af-
hendingu tveggja nýrra flutn-
ingaskipa, sem verið er að smíða fyr-
ir Eimskip þar í landi. Óljóst er á
þessu stigi hvort tafirnar verða lang-
ar. „Við fylgjumst vel með fram-
gangi mála í Kína,“ segir Edda Rut
Björnsdóttir, markaðs- og sam-
skiptastjóri Eimskips.
Vinna hefur legið niðri í skipa-
smíðastöðinni undanfarnar tvær vik-
ur eins og hefðbundið er á þessum
tíma árs og áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þetta tengist kínverska nýárinu.
Vonast er til þess að vinna við skipin
geti hafist fljótlega, að sögn Eddu
Rutar.
Starfsmenn voru komnir heim
Starfsmenn Eimskips, sem hafa
verið að fylgjast með smíðinni ytra,
voru komnir til Íslands í frí vegna
kínverska nýársins og hafa ekki far-
ið út aftur. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun enn um hvenær þeir munu
fara utan á ný. Ferðalög til Kína
hafa verið takmörkuð og mörg flug-
félög hafa hætt við áætlunarferðir til
landsins vegna kórónuveirunnar,
eins og fram hefur komið í fréttum.
Það var í ársbyrjun 2017 að Eim-
skip tilkynnti að félagið hefði und-
irritað samninga við skipa-
smíðastöðvar í Kína um smíði á
tveimur 2.150 gámaeininga skipum,
sem yrðu í siglingum milli Íslands og
Evrópu. Þetta eru stærstu skip sem
hafa verið smíðuð fyrir íslenskt
skipafélag. Samningsverð hvors
skips nam um 32 milljónum dollara,
eða 3,7 milljörðum íslenskra króna.
Heildarfjárfestingin er því 7,4 millj-
arðar miðað við þáverandi gengi.
Skipasmíðastöðvarnar sem Eimskip
undirritaði samning við heita China
Shipbuilding Trading Company
Limited og Guangzhou Wenchong
Shipyard Co. Ltd.
Fram kom í tilkynningu sem Eim-
skip sendi frá sér varðandi smíðina
að gert væri ráð fyrir að skipin verði
afhent á árinu 2019. Nú er ljóst að
a.m.k. árstöf verður á afhendingu
þeirra. Skipin voru bæði sjósett í
fyrra og hluti nöfnin Brúarfoss og
Dettifoss.
Óhapp tefur afhendingu
Það óhapp varð í september í
fyrra að ásrafall í Brúarfossi brann
yfir en hann framleiðir rafmagn með
snúningi vélaröxulsins. Þurfti að
smíða nýjan rafal í Þýskalandi.
Vegna þess óhapps verður allt að
átta mánaða seinkun á afhendingu
skipsins.
Lokafrágangi Dettifoss hefur
miðað vel áfram og standa vonir til
að hann verði tilbúinn til heimsigl-
ingar á næstu mánuðum, samkvæmt
upplýsingum Eddu Rutar.
Grænlenska ríkisskipafélagið Ro-
yal Arctic Line er að láta smíða sams
konar skip í Kína og Eimskip og hef-
ur það fengið nafnið Tukuma Arc-
tica. Eimskip og Royal Arctic Line
gengu frá samstarfssamningi í fyrra
sem ætlað er að tengja saman flutn-
ingaþjónustu frá Grænlandi, gegn-
um Ísland og þaðan til umheimsins.
Afhending skipa Eimskips gæti tafist
Óljóst hve mikil
áhrif kórónuveir-
unnar í Kína verða
Ljósmynd/Eimskip
Í smíðum Dettifoss má sjá hægra megin á myndinni. Við hlið hans er Tukuma Arctica (rautt), skip Royal Arctic Line.