Morgunblaðið - 06.02.2020, Side 24
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Gerð nýrrar landfyllingar við
Klettagarða í Sundahöfn hefur
gengið framar vonum. Útlit er fyrir
að framkvæmdum ljúki í sumar,
mörgum mánuðum á undan áætlun.
Eins og fram hefur komið eru uppi
hugmyndir um að á landfyllingunni
verði höfuðstöðvar Faxaflóahafna í
framtíðinni.
Mikið magn af efni fer í landfyll-
inguna, eða allt að 380 þúsund rúm-
metrar. Jón Þorvaldsson, sem
gegndi stöðu aðstoðarhafnarstjóra
Faxaflóahafna þar til um síðustu
áramót, mun hafa umsjón með verk-
inu allt til loka. Jón áætlar að um 30
þúsund vörubílshlössum verði sturt-
að í sjóinn til að mynda landfyll-
inguna. Þar af koma um 25 þúsund
vörubílshlöss úr
grunni Nýja
Landspítalans við
Hringbraut.
Enda hafa vöru-
bílar verið í
stanslausum
ferðum mánuðum
saman með efni
úr grunninum.
Um 5 þúsund
hlöss koma frá Sundahöfn, þar sem
höfnin geymdi efni.
Í apríl 2018 tók stjórn Faxaflóa-
hafna sf. til afgreiðslu erindi Nýs
Landspítala dags. 23. mars 2018 þar
sem óskað var eftir að skoðað yrði
hvort mögulegt væri að nýta upp-
gröft af lóð spítalans til landfyll-
ingar. Jafnframt var lagt fyrir
minnisblað hafnarstjóra, þar sem
tekið var jákvætt í erindið.
Hafnarstjórn samþykkti að óska
heimildar Reykjavíkurborgar fyrir
landfyllingu við Klettagarða í sam-
ræmi við fyrirliggjandi minnisblað.
Fylling verði aðallega gerð úr efni
sem tekið er úr grunni nýja Land-
spítalans.
Mikill sparnaður er fólginn í
þessu fyrirkomulagi fyrir Nýja spít-
alann og þar með ríkissjóð, því ekki
þurfti að aka með efnið langar leiðir
út fyrir höfðuðborgina.
Þegar öll leyfi lágu fyrir var haf-
ist handa við landgerðina af fullum
krafti. Hafa framkvæmdir gengið
það vel að þeim mun ljúka langt á
undan áætlun, sem var á árinu 2021.
Jón Þorvaldsson segir að spreng-
ing í grunni Nýja Landspítalans sé
langt komin og henni ljúki vænt-
anlega í apríl nk.
Í haust buðu Faxaflóahafnir út
keyrslu á efni sem höfnin átti í
Sundahöfn. Þeirri efniskeyrslu á að
ljúka í marslok. „Það efni er fyrst og
fremst sjávargrús, sem var afgangs-
efni frá því við vorum að byggja
Sundabakkann. Þá vorum með farg-
hauga þar, 50-60 þúsund rúmmetra,
sem voru notaðir aftur og aftur til
að fergja væntanlegt athafnasvæði.
Þegar fergingu lauk fluttum við
hauginn suður fyrir bakkann. Nú
erum við að fjarlægja þann haug því
hann er fyrir á staðnum og honum
fylgir fokhætta og fleira. Þegar
þessum efnisflutningum öllum lýkur
núna í apríl verður öll fyllingin kom-
in í meginatriðum,“ segir Jón.
Þegar byrjað var að sprengja í
grunni spítalans við Hringbraut
kom á daginn að það fékkst mjög
mikið af völdu stórgrýti úr grunn-
inum.
„Við höfum flokkað þetta efni frá
og verið með í gangi grjótröðun í
sjóvörn samhliða efniskeyrslunni og
ég reikna með því að grjótröðun
verði að mestu leyti lokið á sama
tíma og efnisflutningunum lýkur,“
segir Jón, og reiknar með að þetta
verði í maí eða júní.
Ekki þarf að fergja neitt á nýju
landfyllingunni að sögn Jóns. Að
mestu leyti verður hún á hreinni
klöpp og þegar austar kemur í fyll-
inguna verður komið út á setlög og
laus botnlög. En þau eru ekki svo
þykk, kannski 3-4 metrar. Það þýðir
að sig verður öll á fyllingartímanum,
þ.e. þegar fyllingin er komin í fulla
hæð er sigi lokið. Þetta er mjög ólíkt
því þegar t.d. fyllingar eru gerðar á
10-12 metra setlögum, sem þá þarf
að fergja sérstaklega til að gera
landið byggingarhæft.
Ljósmynd/Hnit
Landfylling við Klettagarða Framkvæmd verksins hefur gengið vonum framar og verður að fullu lokið í sumar. Á fyllingunni verða höfuðstöðvar Faxaflóahafna mögulega reistar í framtíðinni.
Þrjátíu þúsund vörubílshlöss
Gerð nýrrar landfyllingar í Sundahöfn lýkur í sumar Framkvæmdin er langt á undan áætlun
Jón Þorvaldsson
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.is
ljósmyndastofa
FERMINGAR
MYNDIR Forstöðumenn
þriggja sendi-
skrifstofa í utan-
ríkisþjónustunni
munu flytja sig
um set í sumar.
Árni Þór Sig-
urðsson, sendi-
herra í Helsinki,
verður sendi-
herra í Moskvu
1. júní og leysir
Berglindi Ásgeirsdóttur sendi-
herra af hólmi sem kemur til
starfa í utanríkisráðuneytið. Auð-
unn Atlason verður sendiherra í
Helsinki 1. júní en hann hefur
gegnt stöðu deildarstjóra Norður-
landadeildar utanríkisráðuneytis-
ins. Þá verður Hannes Heimisson
sendiherra í Stokkhólmi 1. ágúst.
Estrid Brekkan, sem verið hefur
þar sendiherra undanfarin ár,
verður í stað hans prótókollsstjóri
utanríkisráðuneytisins.
Sendiherrar flytja
sig milli staða
Árni Þór
Sigurðsson