Morgunblaðið - 06.02.2020, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Demókratar íBandaríkj-unum hafa
Trump á heilanum
og geta ekki leynt
því. Trump var all-
þekktur athafna-
maður og sjónvarpsfígúra en
þótti aldrei líklegur forseti
þeirra. Hann kynnti framboð
sitt úr rúllustiga í Trump-
turninum í New York og við-
brögðin voru fyrirsjánleg.
Valdakjarni repúblikana sá
Trump ekki sem ógnun við sig
og sumir þar töldu að Trump
kynni að ná athygli að flokknum
en aðrir óttuðust að sú yrði ekki
endilega til góðs og best að
Trump yrði áfram demókrati.
En Hillary Clinton fagnaði
framboði Trumps, án þess að
segja það, sem pólitískum stór-
vinningi og það gerði hinn öflugi
valdakjarni í kringum hana.
Þessi hópur spurði sjálfan sig
hvort hann verðskuldaði virki-
lega slíka pólitíska forgjöf. Hin-
ir „stóru“ og „virtu“ fjölmiðlar
ákváðu að nýta hinn óvænta
vinning út í æsar sínum flokki í
hag. Þetta voru New York Tim-
es, Washington Post og sjón-
varpsstöðvarnar, CNN, NBS,
CBS og ABC. Og þótt FOX sé
stærsta einstaka stöðin mátti
hún sín lítils gegn öllum hinum.
Stöðvarnar mættu á alla kosn-
ingafundi Trumps svo hann
þurfti litlu að kosta til. Þær voru
með beinar útsendingar frá
Trump og þurftu ekki að kvarta,
enda fengu þær bragðmikla bita
til að kjamsa á. Við umræðu-
háborð stöðvanna sátu stjórn-
andinn sem aldrei sýndi skort á
hlutdrægni og svo 3-4 valin-
kunnir demókratar úr fjölmiðla-
eða stjórnmálaheiminum og svo
einn repúblikani úr hinum bitr-
ari armi flokksins. Demókrötum
þótti þetta of gott til að geta ver-
ið satt. Trump slengdi ekki að-
eins stóryrðum á bæði borð um
ólöglega innflytjendur heldur
bætti við alls kyns „sleggjudóm-
um“ sem þóttu handan við þekkt
mörk. Slíks góðgætis mátti
vænta á hverjum fundi. Stór-
stöðvarnar þorðu því ekki að
sleppa nokkrum fundi.
Fox, sem hallaðist að repúbli-
könum, var enn fjarri því á fyrri-
hluta prófkjörs að telja Trump
fullgildan frambjóðanda. Stöðin
fékk að senda út eina kappræðu
nærri 20 frambjóðenda. Fyrsta
spurning þar var hvort fram-
bjóðendur flokksins myndu
virða niðurstöðu prófkjörsins.
Allar hendur á loft … nei, ekki
ein. Trump á móti. Hávær stuna
fór um salinn. Þar fór hann end-
anlega, með það sögðu frétta-
skýrendur og ekki í fyrsta sinn.
Þeir sögðu það líka er hann lof-
aði ógildingu kjarnorkusamn-
ings við Íran, um að Íran myndi
sæta takmörkunum og eftirliti
með kjarnorkuvæð-
ingu sinni í 10 ár en
réði framhaldinu
sjálft eftir það!
Hver fræðimað-
urinn af öðrum
mætti í sett allra
stöðva, bæði klappliðs demó-
krata og hjá Fox, og sögðu þetta
óráðstal, sem sýndi vanþekk-
ingu Trumps á alþjóðlegum sátt-
málum. Aðrir samningsaðilar,
svo sem Frakkland, Bretland,
Þýskaland, Rússland og Kína og
auðvitað Sameinuðu þjóðirnar,
myndu aldrei samþykkja slíka
ógildingu.
Trump sagðist ætla að blása
Parísarsamkomulagið um lofts-
lagsmál út af borðinu og þá ærð-
ist góða fólkið um veröld víða.
En það róaðist fljótt og taldi
ljóst að þótt Trump næði kjöri,
sem væri óhugsandi eftir Íran-
ruglið og nú alþjóðlegt guðlast í
loftslagsmálum, að hann næði
kjöri. Það mat staðfestu banda-
rískar kannanir alla kosninga-
baráttuna. Alþjóðlegar kannanir
sýndu að allt að 80% kjósenda í
Evrópu myndu styðja Hillary
mættu þeir kjósa. En það máttu
þeir ekki. Trump vann kosning-
arnar. Frá kjördegi hafa demó-
kratar unnið að því fá úrslitin
afturkölluð!
Æðstu menn leyni- og ríkis-
lögreglu í Bandaríkjunum tóku
þátt í þeim ljóta og leik. Óvænt-
ur hluti af andófinu hefur verið
dónaframkoma við stuðnings-
menn Trumps. Þingmenn repú-
blikana þurfa að sæta því að með
þeim sé fylgst og setjist þeir við
borð á veitingastað svífur þang-
að skömmu síðar hópur með sví-
virðingum og ógnandi fram-
komu. Tugir þingmanna
demókrata mættu ekki við inn-
setningu forseta, sem er ein-
stakt. Frú Clinton leitaði til
Bush yngri, sem var enginn
aðdáandi Trumps eftir fram-
göngu hans við Jeb Bush og
kannaði hvort þau gætu sýnt að
þeim væri misboðið með því að
mæta ekki við innsetningu.
Bush tók því fjarri.
Svo hófst tveggja ára skrípa-
leikur um að Pútín hefði ráðið
úrslitum kosninganna 2016. Það
rann allt á rassinn. Þá var það
símtalið við kollegann í Kiev
sem reyndist sama dellan. Og í
fyrradag þegar forsetinn flutti
sterka ræðu í þinginu um stöðu
þjóðarbúsins stóð Pelosi gamla
þingforseti fyrir aftan hann og
reif ræðu forsetans í tætlur!
En vandinn er að þessi ólík-
indalæti virka ekki. Samkvæmt
NYT hefur Trump aldrei á ferli
sínum mælst með meira fylgi en
nú.
Klúður demókrata við fram-
kvæmd prófkjörsins í Iowa bæt-
ir ekki úr skák en ræður auðvit-
að engum úrslitum. Allt getur
því enn gerst.
Trump elskar að
vera rauð dula
framan í demókrata
sem alltaf virkar}
Er Trump prúði
karlinn hjá Pelosi?
H
ugmyndafræði lýðvísinda bygg-
ist á sjálfsprottnum áhuga al-
mennings á að taka þátt í vís-
indum, oftast í sjálfboðaliða-
starfi. Hugtakið er tiltölulega
nýtt af nálinni en lýðvísindi á Íslandi hafa nú
þegar skilað miklu til rannsókna. Gott dæmi
um slíkt samstarf vísindamanna og almenn-
ings er starfsemi Jöklarannsóknafélags Ís-
lands. Þetta samstarf hefur notið verðugrar
athygli og eflt jöklarannsóknir á Íslandi.
Sjálfboðaliðar á vegum félagsins hafa stundað
mælingar á hopi og framskriði jökla frá miðri
síðustu öld, og þannig safnað mikilvægum
gögnum um áhrif loftslagsbreytinga á ís-
lenska jökla um áratuga skeið.
Auk þess má nefna mörg dæmi um frjáls fé-
lagasamtök og félög aðstandenda sjúklinga
sem hafa lagt mikið af mörkum til vísinda með því að
safna fé og hvetja til umræðu um algenga jafnt sem sjald-
gæfa sjúkdóma og þannig stutt dyggilega við og hvatt til
rannsókna á þeim. Vísinda- og tækniráð hefur í stefnu
sinni jafnframt lagt sterka áherslu á opin vísindi og miðl-
un vísindalegra gagna og niðurstaðna til samfélagsins.
Þess má einnig geta að ný stefna ráðsins er nú í smíðum
og mun birtast á vormánuðum. Þar er miðlun vísinda-
starfs og þátttaka almennings í vísindastarfi eitt af leið-
andi stefum stefnunnar.
Það er hlutverk okkar sem störfum á þessum vett-
vangi, hvort sem það er við stefnumótun um vísindamál
eða framkvæmd rannsókna, að virkja og efla þekkingu al-
mennings á vísindastarfi og hvetja til samtals
milli vísindamanna og borgaranna. Ég tel einn-
ig mikilvægt að auka sýnileika lýðvísinda í vís-
indaumræðunni og hvetja til þátttöku almenn-
ings í vísindastarfi í breiðasta skilningi þess
orðs.
Ísland stendur jafnframt framarlega í
alþjóðlegu vísindasamstarfi og hafa stjórnvöld
lagt áherslu á að bæta stoðkerfi rannsókna og
vísinda enn frekar ásamt því að auka mögu-
leika íslenskra vísindamanna í alþjóðlegu sam-
starfi. Íslenskir vísindamenn og stofnanir búa
yfir dýrmætri reynslu og þekkingu á fjölmörg-
um sviðum. Það eru miklir hagsmunir fólgnir í
því fyrir Ísland að taka þátt í alþjóðlegu vís-
indasamstarfi tengdu norðurslóðum.
Rannsóknir, vísindi og hagnýting hugvits
eru forsendur fjölbreytts atvinnulífs, velferðar
og styrkrar samkeppnisstöðu þjóða. Á tímum fjórðu iðn-
byltingarinnar og loftslagsbreytinga verða lýðvísindi
þjóðum sífellt mikilvægari. Þau hvetja til læsis á vísinda-
legum upplýsingum, þjálfa gagnrýna hugsun og færa vís-
indin til fólksins í landinu. Einnig geta lýðvísindi vakið
áhuga unga fólksins okkar á vísindum og starfsframa inn-
an þeirra. Síðast en ekki síst eru lýðvísindi mikilvæg í að
auka færni vísindamanna í að miðla upplýsingum um
rannsóknir og niðurstöður þeirra til almennings og eins
að hlusta á raddir hins almenna borgara um áherslur í
vísindastarfi.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Vísindi fólksins í landinu
Höfundur er menntamálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Mun 38 ára gamall „dreng-ur“ etja kappi við Don-ald Trump í haust umhvor þeirra verður kjör-
inn forseti Bandaríkjanna? Trump er
í það minnsta langlíklegastur repú-
blikana og þá varð drengurinn, Pete
Buttigieg, nokkuð óvænt efstur í for-
vali Demókrataflokksins í Iowa.
Vel er fylgst með þessu fyrsta ríki í
forvali demókrata fyrir forsetakosn-
ingarnar en úrslit þar eru sögð góð
vísbending um hver verður forseta-
frambjóðandi flokksins. Vissulega á
þó mikið vatn eftir að renna til sjávar
áður en það verður endanlega ljóst.
Eftirnafnið, Buttigieg, gæti vafist
fyrir fólki í framburði en það er borið
fram „boot edge edge“ en á vefnum
má finna myndskeið af frambjóðand-
anum við framburðarkennslu. Stuðn-
ingsmenn hans eru oft í bolum þar
sem stendur „Boot edge edge.“ Nafn-
ið er maltneskt en faðir „Boot“ er frá
Möltu.
Fer „Obama-leiðina“
Þrátt fyrir að vera ekki nema 38
ára og fremur lítt þekktur meðal al-
mennings í Bandaríkjunum áður en
forvalið hófst hefur Buttigieg verið
vonarstjarna innan Demókrataflokks-
ins í nokkur ár. Barack Obama, frá-
farandi forseti landsins, sagði í blaða-
viðtali fyrir fjórum árum að Buttigieg
lofaði góðu og hafa stuðningsmenn
frambjóðandans líkt honum við for-
setann fyrrverandi.
Framboði Buttigieg hefur einnig
verið líkt við fyrra framboð Obama til
forsetaembættisins árið 2008. Stuðn-
ingsmenn Buttigieg segja hann fara
„Obama-leiðina“ en þar er átt við að
hann hafi komið sem nokkuð óþekkt-
ur frambjóðandi á landsvísu inn í for-
valið, vinni sigur í Iowa-ríki og noti
það síðan sem stökkpall til frekari af-
reka.
Ætlar að skáka Trump
Buttigieg var kjörinn borgarstjóri í
borginni South Bend í Indiana-ríki
2011, þá 29 ára gamall. Hann varð þar
með yngsti borgarstjórinn í borg þar
sem íbúar eru fleiri en 100 þúsund.
„Bandaríkin eiga skilið forseta sem
einblínir á að gera líf vinnandi fjöl-
skyldna betra en ekki þeirra ríkustu
eða stærstu fyrirtækjanna,“ hefur
Buttigieg meðal annars skrifað á
Twitter-síðu sína. Þar hefur hann
einnig lýst því yfir að Bandaríkja-
menn fái einn möguleika til að velta
Donald Trump úr sessi og hann sé sá
möguleiki, enda eru helstu keppinaut-
ar hans í forvali Demókrataflokksins
komnir af léttasta skeiði.
Snýst meira um persónutöfra
Buttigieg yrði ekki eingöngu yngsti
forseti Bandaríkjanna næði hann
kjöri heldur yrði hann einnig sá fyrsti
sem væri opinberlega samkyn-
hneigður, en Buttigieg tilkynnti op-
inberlega að hann væri samkyn-
hneigður í júní 2015 og giftist
eiginmanni sínum, Chasten Glezman
16. júní 2018.
Kosningabarátta Buttigiegs hefur
til þessa snúist meira um persónu-
töfra hans heldur en einstök málefni.
Hann er fylgjandi rétti kvenna til
þungunarrofs, segist munu láta
Bandaríkin standa við skuldbindingar
Parísarsamkomulagsins um loftslags-
mál ef hann næði kjöri og vill afnema
dauðarefsingar. Þá vill Buttigieg gera
öllum Bandaríkjamönnum kleift að fá
opinberar sjúkratryggingar. Hann er
ósammála stefnu Trumps í innflytj-
endamálum og segir að það hafi verið
rétt af félögum sínum í Demókrata-
flokknum að ákæra forsetann til emb-
ættismissis.
„Drengurinn“ óvænt
í forystusætinu
AFP
Vonarstjarnan Hinn 38 ára gamli Pete Buttigieg leiðir baráttu demókrata
eftir fyrstu forkosningarnar sem fram fóru í Iowa á mánudagskvöldið.
Aldur Peters Buttigiegs er tölu-
vert til umfjöllunar en hann yrði
fyrsti forsetinn í sögu Banda-
ríkjanna sem tæki við embætti
á fertugsaldri. Nýr forseti, eða
Donald Trump ef hann verður
endurkjörinn, verður formlega
settur í embætti 20. janúar á
næsta ári. Daginn áður heldur
Buttigieg upp á 39 ára afmælið
sitt.
Helstu keppinautar hans í
forvali demókrata eru mun
eldri; Bernie Sanders er 78 ára,
Joe Biden er 77 ára og Elizabeth
Warren er sjötug.
Sá fyrsti á
fertugsaldri
ALDUR FRAMBJÓÐENDA
AFP
Reynslan Sanders er fjörutíu árum
eldri en Buttigieg.