Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
✝ Óskar Jónssonfæddist á Þor-
valdsstöðum í
Breiðdal 24. maí
1932. Hann lést
23. janúar 2020.
Foreldrar Ósk-
ars voru hjónin
Jón Björgólfsson,
bóndi á Þorvalds-
stöðum, f. 1881 d.
1960, og Guðný
Jónasdóttir hús-
freyja, f. 1891, d. 1956. Fóst-
urforeldrar frá 1932-1948 þau
hjónin Guðjón Jónsson, bóndi
í Tóarseli í Breiðdal, f. 1874,
d. 1966, og Jónína S. Eiríks-
dóttir húsfreyja, f. 1879, d.
1944.
Óskar var næstyngstur í
röð eftirtalinna systkina: Sig-
urður, f. 1916, d. 1986, Krist-
ín, f. 1917, d. 1993, Árni
Björn, f. 1918, d. 2010, Björg-
ólfur, f. 1919, d. 2001, Helga
Björg, f. 1920, d. 2010, Einar,
f. 1921, d. 2006, Oddný Aðal-
björg, f. 1923, d. 2005, Hlíf
Þórbjörg, f. 1924, d. 2009,
Jónas, f. 1926, d. 1980, Pétur,
f. 1929, d. 2020. Guðmundur,
f. 1930, Þórey, f. 1936 d. 2011.
ára aldurs en flytur þá búferl-
um með fósturforeldrum
ásamt fóstursystur sinni, Unni
Guðjónsdóttir, og eiginmanni
hennar, Pétri T. Oddssyni
presti, í Hvamm í Dölum. Þar
dvelur Óskar til 1948 er hin
ramma taug til átthaganna
dregur hann til Þorvalds-
staða, þar sem hann dvelur
hjá foreldrum sínum næstu
tvö árin. 1950 lá leiðin til
Reykjavíkur þar sem Óskar
stundaði í fyrstu verkamanna-
vinnu og sjómennsku. Nam
járnsmíði hjá Landsmiðjunni
og síðar húsasmíði hjá Einari
bróður sínum og lauk sveins-
prófi í þeirri iðn 1961, en
meistararéttindi hlaut hann
1976. Óskar kom að uppbygg-
ingu Breiðholts og Árbæjar,
meðal annars hjá Ármanns-
felli hf. og Sveinbirni Sigurðs-
syni byggingameistara. Frá
1968-1970 í vinnu við fram-
kvæmdir á suðurhluta Græn-
lands. Starfaði sem húsasmið-
ur hjá Steypustöðinni frá
1982-2002 og lauk þar form-
lega starfsævi sinni sem húsa-
smiður, sjötugur að aldri.
Útför Óskars fer fram frá
Seltjarnarneskirkju í dag, 6.
febrúar 2020, kl. 13. Jarðsett
verður í heimagrafreit á Þor-
valdsstöðum í Breiðdal.
Óskar kvæntist
30. desember
1956 Hólmfríði
Þorsteinsdóttur
frá Reykjavík, f.
21. maí 1937, d.
19. nóv. 2000.
Foreldrar hennar
voru Þorsteinn
Þórðarson vél-
stjóri, f. 1892, d.
1944, og Jódís
Pálsdóttir
húsmóðir, f. 1895, d. 1982.
Börn þeirra Óskars og Hólm-
fríðar: 1) Guðni Már, f. 1955,
kvæntur Prayin Sorrnoy. 2)
Þorsteinn Jón, f. 1956, d.
2012. 3) Guðjón Hróar, f.
1960. 4) Brynjólfur, f. 1964,
unnusta hans Harpa Jak-
obsdóttir. 5) Hlíf Berglind, f.
1966, synir hennar og Leifs
Þorleifssonar eru Þorleifur
Óskar, f. 1993, og Arnar
Gabríel, f. 2000.
Vegna veikinda móður
sinnar eftir erfiða fæðingu
fer Óskar í fóstur hjá hjón-
unum Jónínu Sigurbjörgu Ei-
ríksdóttir húsfreyju og Guð-
jóni Jónssyni bónda í Tóarseli
í Breiðdal. Þar er hann til 11
Ég hef verið mjög heppin í
lífinu að eiga Óskar Jónsson
sem pabba og besta vin því við
mæðginin vorum mjög sam-
rýnd. Það voru ansi margar
veiðiferðir sem við fórum ásamt
systkinunum og mömmu sem
sat oftast og prjónaði.
Því hún hafðir takmarkaðan
áhuga á veiði en fannst gaman
að komast út í náttúruna með
prjónana sína. Pabbi kenndi
mér snemma að bera virðingu
fyrir náttúrunni og dýrum.
Pabbi var mikill dýravinur og
öll dýr soguðust að honum, það
kom máfur reglulega á svalirn-
ar til pabba á Melabrautina og
fékk að éta, hann kallaðir hann
Mása og ekki megum við
gleyma Krumma (kisa) sem
pabbi átti til að ofdekra en hann
var ákveðinn í því að við gætum
aldrei dekrað of mikið við bless-
uð dýrin eða börnin.
Pabbi var kletturinn í lífi
okkar systkina og afastrákanna
sinna sem hann var mjög hreyk-
inn af og eyddi miklum tíma
með þeim, var fastur partur í lífi
þeirra.
Pabbi var mikill húmoristi og
skaut föstum skotum, síðan var
hlegið mikið. Ein skemmtileg
minning um pabba var að hann
var aðeins farinn að tapa minni
og var hann að tala um það.
Segi ég þá við hann: „Pabbi
minn, þú ert nú með miklu betra
minni en ég.“ Hann horfir á mig
segir svo: „Hlibba mín, þú verð-
ur nú að hugsa um að þú fékkst
nú heilahimnubólgu svo þú
gengur nú ekki heil til skógar.“
Ég öskraði úr hlátri. „Pabbi þú
varst hreinlega að segja að ég
væri heimsk.“
Mikið hlógum við að þessu og
ég minnti hann nú oft á þetta, þá
skellihló hann.
Pabbi hafði líka mjög sterkar
skoðanir á hlutunum, ég lærði
fljótt að tala ekki um stjórnmál
við pabba, hann var með þau
viðhorf að við ættum öll að hafa
skoðun í þessum efnum.
Það var oft ansi glatt á hjalla
á Melabrautinni í denn, við vor-
um fimm systkinin og vinir okk-
ar ásamt mörgu fólki. Ótrúlegt
hvað pabbi var alltaf þolinmóður
því bræður mínir voru nú ekki
lágværustu börn í heimi en for-
eldrar mínir voru ótrúlega sam-
stilltir þannig að þetta gekk allt
upp og mamma eldaði alltaf fyr-
ir sirka fimmtán manns því hún
bjóst alltaf við auka fólki í mat.
Ein af mínum bestu minning-
um er frá því að sumri til og við
Binni bróðir ásamt vinum okkar
biðum eftir að pabbi kæmi heim
úr vinnunni og færi með okkur
að veiða í Elliðavatni. Hann
veiddi nú minnst sjálfur en var
aðallega að beita fyrir okkur.
Pabbi var mjög söngelskur
maður, ef hann var ekki syngj-
andi var hann flautandi. Notaði
hann þá tækni ef við vorum að
suða um eitthvað, þá fór hann að
syngja eða flauta.
Nú er ferðalaginu lokið hér,
við tekur nýtt ferðalag þar sem
mamma, Steini bróðir ásamt
öllu góða fólkinu sem er farið
tekur vel á móti þér.
Söknuður er mikill
þegar ég kveð þig
veiðiferðirnar mörgu
sátum við þögul í kyrrðinni
biðum eftir þeim stóra
hann lét oft bíða eftir sér.
Höndin þín stóra
klappaði létt á kollinn minn
faðmlag þitt þétta
þegar þú huggaðir mig
hlátur þinn mikli
bræddi hjarta mitt
nú kveð ég þig pabbi
stóra klettinn minn
fullt er mitt hjarta
af góðum minningum um þig.
Fátækleg orð um yndislegan
pabba.
Þín dóttir
Hlíf Berglind Óskarsdóttir.
Faðir minn var náttúrubarn,
fæddist í sveit.
Stangveiði var hans aðal-
áhugamál alla tíð og ég var ekki
gamall þegar ég byrjaði að veiða
með pabba og svo komu afa-
strákarnir 2, 3 ára byrjaðir að
veiða líka.
Góðar stundir, þrír ættliðir
saman.
Þegar pabbi veiktist fyrir
sirka 7 árum var það mjög erfitt
fyrir hann náttúrubarnið. Hann
gat ekki stundað veiðiskapinn
eins mikið og hann var vanur.
Hann náttúrubarnið þrjósk-
aðist þangað til fyrir sirka þrem
árum, þá fór hann í sína síðustu
veiðiferð.
Pabbi sagði við mig: Núna
verður þú að fara einn hér eftir.
Veikindin drógu smám saman
úr honum máttinn. Ég vissi í
hvað stefndi, hann var orðinn
gamall og þreyttur, margir sam-
ferðamennirnir farnir.
Þegar þetta er orðið svona er
best að fara að kveðja og fara
heim á Þorvaldsstaði undir hlíð-
um fagurra fjalla og hvíla sig við
hliðina á mömmu.
Þegar Steini bróðir dó var
það mikið högg fyrir pabba, eins
og hann sagði: Enginn á að
jarða barnið sitt. Hann beit á
jaxlinn og hélt áfram og eins
ætla ég að gera og kveðja þig
stoltur og þakka fyrir alla ást-
ina, umhyggjuna og allar sam-
verustundirnar í veiðinni og í líf-
inu.
Hvíl í friði, elsku pabbi.
Með þökk fyrir allt.
Þinn sonur,
Guðni Már Óskarsson.
Óskar Jónsson var í augum
okkar bræðra mikilmenni, afi
var klettur sem alltaf var hægt
að treysta á. Hann var ábyrgur
fyrir mörgum af skemmtileg-
ustu minningum okkar í
bernsku. Þær minningar eru frá
því úti í náttúrunni í stangveið-
inni og munum við bræður halda
því áfram um ókomin ár. Afi var
líka mikill spilakall, við bræð-
urnir mxunum báðir vel eftir því
að spila klukkutímum saman við
hann rommý. Hann passaði sig
samt að vinna ekki of oft í röð
svo við myndum ekki hætta.
Við bræðurnir erum á einu
máli um að án afa hefði bernska
okkar verið tómleg og margar
góðar lífslexíur ekki lærst.
Það er tómlegt að koma á
Melabrautina núna, það er eins
og húsið hafi misst alla sál.
Það er sárt að sakna mikil-
mennis eins og þín. Takk fyrir
allar góðu minningarnar og von-
andi er stutt í veiði þar sem þú
hvílir núna.
Veiðiferð
Vaknaði snemma
og beint út í bíl
Leiðin lá suður
fjöllin fuku framhjá blíð
Kastaði taumi
og settist með þér
Tíminn sat kjurr
og þögnin urraði að mér
Brýtur mér kleinu
og býður mér öl
Síðan bognar stöng
samt ekki mín því hún var of löng
Samt mér leyfir að draga
kannski hjálpar smá til
Og segir: Þessi er þrjú pund
eða þar um bil
Ástarkveðja,
Þorleifur Óskar og
Arnar Gabríel.
Óskar Jónsson
Okkar ástkæri sonur, bróðir, barnabarn,
systursonur og vinur,
SIGURÐUR DARRI BJÖRNSSON,
Erluási 31, Hafnarfirði,
lést af slysförum 29. janúar. Útförin fer fram
frá Víðistaðakirkju föstudaginn 7. febrúar og
hefst athöfnin klukkan 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Björgunarsveit Hafnarfjarðar.
Björn Arnar Magnússon Rannveig Sigurðardóttir
Salvör Svanhvít Björnsdóttir Hinrika Salka Björnsdóttir
Sigurður Þórðarson
Gróa Guðbjörnsdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
fjölskyldur og vinir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN BJARKAR VALDIMARSDÓTTIR
ferðaþjónustubóndi,
Dæli, Víðidal,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga laugardaginn 1. febrúar.
Víglundur Gunnþórsson
Hrafnhildur Ýr Víglundsd. Davíð Stefán Hanssen
Vilmar Þór Víglundsson Anna Nordberg
Kristinn Rúnar Víglundsson Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
Eva Rún, Óskar Freyr, Gabríel Þór og Víglundur Bolli
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
RAGNAR SIGURÐSSON,
Krókahrauni 8,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 3. febrúar.
Útför hans verður auglýst síðar.
Hjördís Jónsdóttir
Reynir Þ. Ragnarsson Þórunn B. Tryggvadóttir
Ragnar V. Reynisson Fríða Kristjánsdóttir
Tryggvi Þ. Reynisson Javiera I. Rámila
Hjördís H. Reynisdóttir Rafn Emilsson
Hrafn I. Reynisson Kristín B. Hallvarðsdóttir
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN SIGÞRÚÐUR
GUNNARSDÓTTIR,
Hulduborgum 5, Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 4. febrúar á
hjúkrunarheimili Hrafnistu.
Útförin verður auglýst síðar.
Óli Örn Tryggvason
Tryggvi Ólason Hugrún Hansen
Bryndís Óladóttir Sævar Skaptason
Gunnar Ólason
Hilmar Þór
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN GRÓA VALDIMARSDÓTTIR,
Droplaugarstöðum, Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 29. janúar.
Valdimar Bjarnason Unnur Edda Müller
Berta Karen Rumens
Kristmundur Már Bjarnason
Bjarni Steinar Bjarnason
Arnar Bjarnason Áslaug Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma í Gröf,
GERÐUR GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Fellaskjóli, Grundarfirði, sunnudaginn
2. febrúar. Útförin fer fram frá
Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 15. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á minningarsjóð Dvalarheimilisins Fellaskjóls,
reikningsnúmer
0321-13-301300, kt. 460110-1300.
Guðrún H. Bjarnadóttir Þorgeir Már Reynisson
Hjördís H. Bjarnadóttir Ingi Þór Guðmundsson
Jón Sverrisson
Sjöfn Sverrisdóttir Sigurður Ólafur Þorvarðarson
Lárus Sverrisson Kristín Halla Haraldsdóttir
Halldóra Sverrisdóttir Eyleifur Ísak Jóhannesson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Elsku mamma okkar, tengdamamma og
amma,
ÓLÖF SIGRÍÐUR RAFNSDÓTTIR,
Hátúni 10, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 30. janúar.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 10. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarkort Geðhjálpar.
Sólveig Halldórsdóttir
Kristín Auður Halldórsdóttir
Þorsteinn Sigurður Guðjónsson
Gunnar Páll Ingvarsson
Ólöf Jóhanna Ingvarsdóttir
Mats Anderson
og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BENEDIKT ÓLAFSSON,
fyrrverandi forstjóri Glófaxa,
áður til heimilis í Langagerði 114,
lést þriðjudaginn 28. janúar á LSH,
Fossvogi.
Útförin fer fram frá Kristskirkju Landakoti föstudaginn
14. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Ólafur Benediktsson
Kristín Benediktsdóttir
Birna E. Benediktsdóttir Hilmar Þórarinsson
barnabörn og barnabarnabörn