Morgunblaðið - 06.02.2020, Síða 48
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
„Blaðamenn fá þrjú upphrópunarmerki til að nota á ferli sínum,“ sagði
reyndur blaðamaður við mig þegar ég byrjaði í blaðamennsku fyrir sjö ár-
um. Ég passaði því vel að nota einfaldlega punkt aftan við setningar þótt
samband mitt við snyrtivörur sé auðvitað mun tilfinningaríkara en svo.
Helst langar mig að nota öll þrjú upphrópunarmerkin í þessari umfjöllun
svo lesendur átti sig á þeim tilfinningum sem hrærast innra með mér eftir
að hafa prófað vorlínu Chanel. Þeir sem fylgjast með mér á Instagram
hafa kannski tekið eftir því að ég hef verið að dást að þessari vorlínu síðan
í nóvember síðastliðnum, eða frá því myndir af línunni komu fyrst fram.
Eftir að Lucia Pica tók við sem alþjóðlegur listrænn stjórnandi förð-
unar- og litasviðs Chanel höfum við séð förðunarlínurnar verða listrænni
og stundum mitt á milli þess að vera förðunarvörur og listaverk. Sjálf á ég
ósnertar Chanel-snyrtivörur sem eru einfaldlega sýningargripir. Í ár er
förðunarlína Chanel fyrir vorið þó öllu klassískari og hef ég ekki oft heyrt
af jafnmikilli eftirvæntingu fyrir förðunarlínu áður.
Desert Dream eða Eyðimerkurdraumur nefnist línan og sækir Lucia
Pica innblástur í fágaða og róandi tóna eyðimerkurinnar. Í eyðimörkinni
ríkir friður á milli þess sem vindurinn blæs upp landslagið og það verður
eitt með himninum. Blanda af ferskjulitum, bleikum og brúnum tónum
endurspeglast í þessari mjúku og munúðarfullu línu.
Fljótandi augnskuggar með stórfenglega áferð
Chanel Ombre Premiere Laque eru fljótandi augnskuggar sem mikil
spenna ríkir fyrir. Áferðin er einstaklega létt, örlítið kælandi, og endast
þeir í átta klukkustundir á augnlokinu. Augnskuggarnir koma í fimm mis-
munandi litum sem eru hver öðrum fallegri.
Náttúrulegur ljómi sem hentar öllum
Chanel Éclat Du Désert er fölbleikt ljómapúður sem veitir húðinni nátt-
úrulegan ljóma. Engin gróf glimmerkorn eða málmkennda endurspeglun
er að finna í þessari formúlu svo hún hentar vel öllum húðgerðum. Eins og
margir vita getur reynst erfitt að finna ljómapúður sem ýkir ekki misfell-
ur húðarinnar en með áferð eins og þessari heyrir það vandamál sögunni
til.
Chanel Baume Essentiel Multi-Use Glow Stick er önnur ljómavara í lín-
unni en þetta efni er einstakt fyrir það að það veitir húðinni frekar gljáa en
ljóma. Þótt þessi vara virki bronslituð er hún nánast litlaus á húðinni.
Formúlan er rakagefandi og blandast fullkomlega saman við húðina. Slík-
an gljáa má nota á margvíslegan hátt, til dæmis undir farða, yfir farða eða
einan og sér til að fá ferskari ásýnd.
Augnskuggar sem fara öllum vel
Chanel Les 4 Ombres-augnskuggapalletturnar koma í tveimur litum:
Elemental (352) og Warm Memories (354). Litirnir eru aðeins út í ferskju-
litaða og bleika tóna og eru þessar augnskuggapallettur sérlega klass-
ískar.
Chanel Stylo Ombre Et Contour eru kremaugnskuggar sem lesendur
Smartlands ættu að þekkja en þeir voru útnefndir augnskuggar ársins að
mati blaðamanna. Tveir nýir litir líta dagsins ljós innan línunnar og eru
þeir báðir brúnleitir.
Varalitir í náttúrulegum litatónum
Innan förðunarlínunnar má finna tvo varaliti í náttúrulegum litatónum
en með mismunandi áferð. Chanel Rouge Allure er með kremaða og ljóm-
andi áferð en Chanel Rouge Allure Velvet Extréme býr yfir mattri áferð.
Naglalakkið á sínum stað
Margir bíða alltaf spenntir eftir naglalakkinu sem kemur í takmörkuðu
upplagi í förðunarlínum Chanel. Í ár eru sérlega fallegir litir af Chanel Le
Vernis í boði í klassískum litum.
Fljótlegt og
fljótandi!
Chanel Ombre
Premiere Laque
eru fljótandi
augnskuggar
sem koma í fimm
litum.
Ljómandi
Tvær ljómavörur er að
finna í förðunarlínu Chanel.
Láttu þig dreyma
Vorlína Chanel kallast
Desert Dream eða Eyði-
merkurdraumur.
Ein fallegasta
förðunarlína ársins
Aukin fegurð
Chanel Stylo Ombre
Ét Contour-
kremaugnskugga
og augnlínufarða
er að finna í nokkr-
um litum í línunni.
Sjaldan hefur ríkt jafnmikil eftirvænting fyrir förðunarlínu Chanel. Línan er
innblásin af litum eyðimerkurinnar sem eru mjúkir en munúðarfullir í senn.
Chanel
vor 2020
Heillandi Chanel Les 4 Ombres
í litnum Warm Memories (354).
Keyrðu upp fegurðina
Chanel Les 4 Ombres
í litnum Elemental (352).
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020