Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 50
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Það voru sex vinir sem ákváðu einn góðan
veðurdag að þeir ætluðu að opna bakarí –
sem væri samt ekki hefðbundið bakarí.
Allir voru þeir úr hverfinu og höfðu því
sterkar rætur og skýra sýn á hvernig þeir
vildu sjá hverfið þróast og hvaða þjónusta
yrði að vera í boði. Úr varð Brauðkaup
sem hefur notið mikilla vinsælda og hefur
áfram að stækka og dafna í höndum þeirra
félaga.
Af hverju ákváðuð þið að bæta þessu við?
„Við eignuðumst húsið í maí 2018, en þá
var Kornið og sjoppa með rekstur þarna. Í
lok desember 2018 fer Kornið svo á haus-
inn og við setjum allt á fullt að hefja rekst-
ur á Brauðkaupum, sem hófu starfsemi
sína 6. febrúar 2019. Í lok september rann
svo leigusamningur sjoppunnar út og við
förum þá aftur á fullt með að stækka
Brauðkaup sem voru opnuð eftir viðbæt-
urnar í lok nóvember. Okkar framtíðarsýn
á þetta fallega hús við inngang Kársness
er að hafa veitingarekstur í öllu húsinu,
þannig að þetta var bara eðlilegur þáttur í
okkar framtíðarsýn,“ segir Jóhannes Hlyn-
ur Hauksson, einn eigenda staðarins.
Með stækkun Brauðkaupa er ekki bara
boðið upp á súrdeigsbrauð, kaffi, bakkelsi
og úrvals samlokur. „Nú höfum við bætt
við steikarhamborgurum, pönnukökum,
djúpsteiktum vængjum, kúluís og sjeikum.
Þannig bjóðum við upp á þrjá mismunandi
borgara, en allir eru þeir 120 g steik-
arborgarar sem innihalda chuck-nauta-
steik, lund og fillet ásamt 25% fituhlutfalli,
sem gerir þá extra djúsí. Þetta grillum við
alltaf medium/medium rare þannig að
borgarinn er safaríkur og meyr. Svo not-
um við cheddarost og Óðals-Búra til að
fullkomna þetta. Og auðvitað erum við
áfram með grilluðu súrdeigssamlokurnar
okkar, Don Heffe, De Niro og Kylie Jen-
ner. Höfum svo bætt við Nelson, sem er
lambakjötsloka, og Rocky Ribeye, sem
segir sig dálítið sjálf. Þessu er hægt síðan
að breyta í máltíð (franskar og gos) fyrir
litlar 400 kr. Við höfum reynt eftir megni
að vera sanngjarnir í verði og þannig er
enginn réttur yfir 2.000 kr. – nema fjöl-
skyldutilboðið okkar. Vonandi geta núna
þá flestir fundið eitthvað við hæfi sem
koma í heimsókn til okkar í Brauðkaupin
litlu.“
Eins og fram hefur komið er Brauðkaup
verkefni sex félaga sem búa nánast allir á
Kársnesinu. Það er margt búið að ræða og
pæla og dreyma. En Brauðkaup eru hægt
og rólega að þróast í að vera eitthvað sem
á engan sinn líka; svona hverfisstaður með
þægilegu andrúmslofti og alls konar fyrir
alla, súrdeigsbrauð, bakkelsi, kaffi, ham-
borgara, samlokur, ís og sjeik. „Við köll-
um þetta oft fyrsta „burger joint bakery“
á Íslandi. Við erum allavega mjög ánægð-
ir með það sem við höfum og ekki síður
það sem við stefnum að.“
Eitthvað sem hefur komið á óvart?
„Viðtökurnar. Þær hafa verið æðislegar
og umfram vonir. Kársnesingar og aðrir
sem sækja okkur heim hafa tekið þessu
mjög vel og gera það klárlega að verkum
að við getum haldið áfram að þróa okkar
framtíðarsýn,“ segir Jóhannes.
Hver eru næstu skref?
„Næstu skref eru að reka Brauðkaup
vel og bjóða upp á úrvals mat og þægilega
stemningu. Við viljum halda vel utan um
hlutina á næstu mánuðum og misserum.
Kannski bæta einu og einu við matseð-
ilinn, svo gerum við eitthvað skemmtilegt
þegar sólin fer að rísa og sumarið kemur.“
Hvernig sjáið þið framtíðina fyrir ykkur?
„Rekstur og starfsemi í öllu húsinu.
Brauðkaup stækki og dafni vel. Og við fé-
lagarnir allir bestu vinir áfram.“
Brauðkaup bætir verulega í
Ein skemmtilegasta hverfisbúlla landsins, Brauðkaup á Kársnesinu, er sannarlega orðin mátt-
arstólpi í hverfinu. Hún vex og dafnar og hefur nú bætt við sig heitum mat svo að nú mætti
með réttu kalla staðinn hverfisbúllubakarí – sem er auðvitað ekki orð en á engu að síður svo
vel við hugmyndafræðina sem liggur að baki og svínvirkar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ómótstæðilegir
Grillaðir lím-
ónukjúklinga-
vængir með lím-
ónuberki og
sjávarsalti.
Oinkers chili cheese
bacon fries. Stökkar
franskar með ostasósu,
chipotle-chilimajói, vor-
lauk, chili og beikoni.
Ostborgari draumanna
Grófhakkað rib eye, nautalund
og chuck-steik og hárrétt magn
fitu. Cheddarostur, Búri, dill-
gúrkur, pikklaður laukur, tóm-
atur, lambhagasalat, japanskt
majó, sætt sinnep.
Spennandi tímar Það
er nóg að gera í
Brauðkaupum og hér
má sjá hinn brosmilda
Ásgeir Þór Jónsson.
Þéttur hópur Á bak við Brauðkaup standa sex strákar
sem eiga sterkar rætur í Kópavogi. Þar af búa fimm þeirra
á Kársnesinu og sá sjötti er sagður á leiðinni þangað.
Skemmtileg stemning Stað-
urinn er skemmtilega hannaður
og stemningin þykir frábær.
Eldgrilluð rib-eye-súrdeigsloka:120 g
rib eye-steik, steiktir sveppir og rauð-
laukur með béarnaisesósu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020