Morgunblaðið - 06.02.2020, Side 52

Morgunblaðið - 06.02.2020, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Fullt af nýjungum í grænmetis- og vegan vörulínunni okkar Kynntu þér málið hjá söludeild okkar Veisluþjónustur Skólar • Mötuneyti Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Nína Dagbjört Helgadóttir flytur lagið Ekkó í Söngvakeppninni í ár og freistar þess að fara með það lag alla leið til Rotterdam. Nína er aðeins 19 ára gömul og tiltölulega óreynd. Hún hefur að vísu gefið út nokkur lög á YouTube, m.a. með Javi Valiño, en það myndband hefur fengið yfir 200.000 áhorf. Eins og með svo marga aðra sem taka þátt í keppninni í ár var það ekki í plönunum hjá henni að taka þátt í Söngvakeppninni. „Þetta var mjög óvænt. Ég þekkti lagahöfund- inn ekki neitt, hann hafði bara sam- band við mig á Facebook eftir að hafa séð myndböndin mín á You- tube,“ segir hún en þrátt fyrir að þetta sé hennar fyrsta skipti í Söngvakeppninni er reynsla á bak við atriðið. „Mamma mín tók þátt í keppninni 2001 og 2006. Svo fór hún og söng bakraddir með Selmu árið 1999. Hún verður með mér á sviðinu núna og syngur bakraddir,“ segir Nína en auk þess nýtur hún leiðsagnar og stuðnings reynsluboltans Einars Bárðarsonar en hann semur íslensk- an texta lagsins. Nína stígur á svið laugardags- kvöldið 15. febrúar, í seinni undan- riðlinum, með mömmu, og vonandi þjóðina alla, sér við hlið. Mamma með í bakröddum Til í júró Nína er tilbúin að takast á við áskorunina að syngja í Söngva- keppninni. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Ég myndi vilja taka út stundatöfl- ur. Einhvers staðar einhvern tím- ann ákvað einhver að 40 mínútur væri hentugur tími. Við erum enn þá að nota þetta form. Það stoppar allt flæði milli kennara og nem- enda,“ sagði Sigríður Karlsdóttir sem hefur stundað kennslu síðan 2006 í samtali við Síðdegisþáttinn á K100 í vikunni. Sagði hún grunnskólakerfið í landinu vera ónýtt og þörf vera á kúvendingu á kerfinu. Hún hefur að eigin sögn verið dugleg að skrifa og gagnrýna grunnskólakerfið og „rugga bátn- um“ en hún birti meðal annars skoðanapistil um málefnið undir nafninu „Fokk jú ALLIR“á Vísi.is í síðustu viku. Sagðist Sigríður í þættinum einnig vilja taka út námsmat og hætta með próf. „Ég er búin að halda því fram í tvö ár. Maðurinn minn er í doktors- námi og er búinn að vera í fimm ár að rannsaka námsmat en ég held því samt fram að við eigum að taka út námsmat. Ég vil að við hættum að leika í þessu písa leikriti og þessum samræmdu-prófasirkus. Við erum stanslaust að bera saman nemendur,“ sagði Sigríður og bætti við að kennarar væru einnig oft á tíðum bugaðir út af námsmatskerf- inu. Er ekki að fría foreldra „Af hverju mælum við ekki ár- angur í vellíðan. Af hverju erum við alltaf í þessu leikriti að mæla hvað við erum klár. Af hverju horf- um við ekki á þetta frá allt öðrum vinkli,“ sagði hún. Sagðist hún vilja taka fram að hún væri ekki að fría foreldra með gagnrýni sinni á skólakerfið. „Flest vandamál sem börn eru að kljást við eru foreldravandamál. Við vitum það alveg sem höfum alið upp börn að þau spegla okkur og annað. Ég er ekki að fría foreldr- ana með þessu en ég er samt að gagnrýna skólakerfið,“ sagði hún. Spurði hún þáttastjórnendur í framhaldinu hvort þeir hefðu séð börn koma út af sjálfstyrking- arnámskeiðum eins og Dale Carne- gie og benti á hversu sjálfsörugg þau væru og fullviss um getu sína. „Svo horfi ég á mína nemendur og þeir bara: „Ég get ekkert“. Það er eitthvað beyglað þarna. Ef grunnskólinn væri 70% eitt stórt sjálfstyrkingarnámskeið þar sem væri verið að efla þrautseigju, efla náungakærleikann og öll þessi gildi sem við þurfum til þess að vera virkir samfélagsþegnar. Svo gæt- um við lagt inn þekkingu,“ sagði hún. „Nemendum sem líður illa og eru full kvíða geta ekki lært mik- ið.“ Barst talið þá að stærðfræði- kennslu og Sigríður spurði þátta- stjórnendur hvort þeir hefðu notað algebru mikið eftir grunnskólann og svöruðu þeir neitandi. „Jói sem hefur ekki náð tökum á plús og mínus situr samt í sex tíma í kennslustund að reyna að ná tök- um á algebru. Af því að það eru samræmd próf handan við hornið,“ sagði hún og bætti við að betur færi fyrir Jóni ef grunnskólinn myndi taka honum sem einstaklingi og einblína á að styrkja hann. Mikil þekking í skólum tilgangslaus „Segjum að það sé sól sem skín í gegnum eldhúsgluggann hjá mér og það er súkkulaði á borðinu sem er að bráðna. Það er vandamál. Grunnskólinn, eins og hann er í mörgum grunnskólum, ég ætla ekki að segja öllum, myndi segja: „Ókei Sigga, hvernig er gard- ínustöng búin til? Hvaða ár var hún búin til? Hvenær voru gardínu- stangirnar fluttar til landsins?“ og svo framvegis. Þetta er þekking sem nýtist ekki,“ sagðir Sigríður. „Þekkingin sem myndi nýtast mér væri: Hefur þú hugrekki og þor til að biðja um aðstoð. Grunnskólinn gæti kennt það. Hefur þú þor til að fara á Youtube til að leita þér upp- lýsinga um það hvernig þú getur sett upp gardínur.“ „Það er svo mikil þekking inni í grunnskólanum sem er verið að kenna og mata sem er tilgangs- laus,“ sagði hún. Sagði Sigríður nauðsynlegt fyrir grunnskólana að mæta nemendum. „En við getum það ekki ef við erum með 28 nemendur í bekk og einn kennara og menningu. Það er fyrst og fremst þessi menning sem skap- ast. Ef við ætlum að prófa eitthvað nýtt þá er það fjöldinn og menn- ingin sem kæfir það af því að við höfum alltaf gert eitthvað öðruvísi. Við þorum ekki að kúvenda þessu.“ Segir grunnskólakerfið ónýtt Sigríður Karlsdóttir kennari heimsótti Síðdegisþáttinn á K100 í vikunni. Hún telur að kúvenda þurfi í skólakerfinu. Ljósmynd/K100 Árangur Sigríður Karlsdóttir kennari: „Flest vandamál sem börn eru að kljást við eru foreldravandamál.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.