Morgunblaðið - 06.02.2020, Page 55
DÆGRADVÖL 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2020
Vandaðar vörur þurfa umbúðir til að
komast ferskar í hendur kröfuharðra
kaupenda. Hver sem varan þín er þá
höfum við umbúðirnar sem henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar
tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt
og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum
samstarfsaðilum. Þannig getum við
tryggt þér lausnir sem auka árangur
þinn í rekstri, í sátt við umhverfi
og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi
umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu
okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum.
Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
„ÞEIR SEGJA AÐ FALL SÉ FARAR HEILL.” „VIÐ NEYÐUMST TIL ÞESS AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA, BRAUÐRISTIN ER BILUÐ.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... styrkur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG KLÁRA ALLTAF
ÞAÐ SEM ÉG BYRJA Á
OG LÍKA ÞAÐ
SEM JÓN
BYRJAR Á
LÁTTU
STEIKINA
VERA
VIÐ HÖFUM SIGLT UM ÖLL
HEIMSINS HÖF!
HVERT HÖLDUM
VIÐ NÆST?
TIL VALHALLAR?!
REYNDU AÐ
GETA
Sigrún Gunnarsdóttir, f. 5.10. 1921, d.
9.3. 2005, rjómabússtýra á Brúum í
Aðaldal, síðar verkakona og gæslu-
maður hjá Akureyrarbæ, og Hákon
Pálsson, f. 19.6. 1910, d. 7.11. 2004,
trésmiður og vélsmiður, var vél-
gæslumaður í Laxárvirkjun og síðar
rafveitustjóri á Sauðárkróki.
Hákon
Hákonarson
Helga Júlíana Illugadóttir
húsfreyja
Sigurjón Jónsson
bóndi á Krossi í
Ljósavatnshr., S-Þing.
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir
húsfreyja
Gunnar Jón Sigurjónsson
bóndi á Vatnsenda, Grenjaðarstað
og Illugastöðum, S-Þing.
Helga Sigrún Gunnarsdóttir
gæslumaður hjá Akureyrarbæ
Þóra Friðriksdóttir
húsfreyja
Sigurjón Jóhannesson
bóndi í Eyjafirði og S-Þing.
Rögnvaldur Reynisson
húsasmíðam. á
Akureyri
Þóra Gunnarsdóttir
húsfr. og iðnverkakona
á Akureyri
Sigurbjörg Níelsdóttir
vann í KA-heimilinu
Gunnar Níelsson
auglýsingasölum. á
Akureyri
Birna Gunnarsdóttir
húsfr. og iðnverkakona
á Akureyri
Aðalsteinn Baldursson
verkalýðsleiðtogi á Húsavík
Björn Gunnar Jónsson
rafvirkjam. á Húsavík Líney Gunnarsdóttir
húsfr. og verkakona
á Húsavík
Helgi Þór Arason
frkvstj. Landsbréfa
Ari Gunnarsson
verkamaður á
Akureyri
Einar Sveinn Arason
byggingameistari í Rvík
Elínborg Jónsdóttir
húsfreyja
Bergvin Þórðarson
bóndi á Húsabakka og
Brekku í Aðaldal, S-Þing.
Karólína Hansína Bergvinsdóttir
húsfreyja
Páll Jónsson
bakari á Akureyri og Húsavík
Guðrún Þorláksdóttir
húsfreyja
Jón Jónasson
bóndi á Geirhildargörðum
í Öxnadal
Úr frændgarði Hákonar Hákonarsonar
Hákon Pálsson
rafveitustjóri á
Sauðárkróki
Pálmi Hannes
Karlsson
skipstjóri í Rvík
Arnþrúður
Karlsdóttir
útvarpsstjóri
Ragnar Karlsson
skólastj. tæknid.
Icelandair
Karl Pálsson
útvegsbóndi í Flatey
á Skjálfanda
Það fer vel á því að opna Vísna-horn með þessari stöku Dag-
bjarts Dagbjartssonar á Boðnar-
miði:
Líkt og hlaði stein á stein
stundum vísa fæðist
þegar hending ein og ein
inn í hugann læðist
Guðjón D. Gunnarsson segir að
sjaldan sé góð vísa of oft kveðin:
„Fyrir þá mörgu, sem hefur orðið
kalt í vetur, vil ég til hughreyst-
ingar rifja upp vísu Eysteins Gísla-
sonar í Skáleyjum þegar Jóhannes
Stefánsson á Kleifum kvartaði und-
an kulda:“
Þó að núna þér sé kalt
þarftu engu að kvíða.
Þér mun hitna þúsundfalt
þegar tímar líða.
Jón Atli Játvarðarson segir, að
þessi vísa rataði inn sem svar við
hvatningu frá einum sagnaþuli
Boðnarmjaðar. Læt hana hér sem
færslu:
Andóf ræsir úfinn sæ
aldrei næs hjá leiðum.
Ef ég læsi Andra Snæ
andast gæs á heiðum.
Þetta var upphaf að vísnaleik,
sem hélt áfram með því að Dag-
bjartur Dagbjartsson kvað:
Andóf þæfa ýmsir hér.
Enginn virðist gáfnatregur,
þó er ljóst að Andri er
ýmsum gæsum hættulegur.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
hélt áfram:
Enn sem fyrr þá er ég - dæs
umræðu- vart tækur
því að ég hef Andra Snæs
engar lesið bækur
Jón Atli Játvarðarson átti síðasta
orðið:
Engum vonin víkur frá
vel ef á er haldið.
Leggst því gæsin alltaf á,
er Andri reisir tjaldið.
Það sem Andri yfirtók
upphóf málaþungann.
Hent í skyndi í heila bók
þá hirti refur ungann.
Gunnar J. Straumland sendi til-
kynningu frá „Veðurstofu Hval-
fjarðarsveitar“ um veðrið á hádegi
á sunnudag:
Urtir frosnar eiga bágt,
árstíð svarar kalli.
11 gráður urra lágt
undir Hafnarfjalli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Steinn á stein og
gæs eftir gæs