Morgunblaðið - 28.02.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Ten Points Pandora
25.990 kr.
Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
NÝJAR VÖRUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta breytir miklu. Við verðum
komnir með miklu öflugra tæki og
það á að auka öryggi til mikilla
muna,“ segir Gísli Jóhann Hallsson,
yfirhafnsögubátur Faxaflóahafna,
um dráttarbátinn Magna. Hann
lagðist að bryggju í Reykjavíkur-
höfn í gærmorgun eftir rúmlega 10
þúsund sjómílna siglingu frá Víet-
nam þar sem báturinn var smíðaður.
Haki sigldi með Gísla Gíslason
hafnarstjóra og Gísla Jóhann út á
móti Magna. Haki sprautaði úr vatni
til heiðurs nýja bátnum sem sigldi í
kjölfar hans til hafnar.
Áhöfn á vegum skipasmíða-
stöðvarinnar sigldi bátnum til Ís-
lands og munu menn úr henni að-
stoða við þjálfun íslenskrar áhafnar.
Þá á eftir að taka bátinn út, ganga
frá pappírum og skrá hann á Ís-
landi.
Faxaflóahafnir hafa átt marga
dráttarbáta og hafa allir borið
Magnanafnið. Er því nokkuð ljóst
hvaða nafn verður notað við form-
lega afhendingu skipsins í næsta
mánuði. helgi@mbl.is
Faxaflóahafnir taka á móti öflugasta dráttarbát landsins
Nýr Magni
kominn í
heimahöfn
Morgunblaðið/Eggert
Dráttarbátur Nýi Magni hefur jafn mikinn togkraft og fjórir dráttarbátar Faxaflóahafna sem fyrir eru. Það mun auka öryggi við móttöku stórra skipa.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Svona katastrófuumræða hefur af-
skaplega vond áhrif á fólk, sér-
staklega á börn. Börn verða mjög
kvíðin við svona
aðstæður. Við
geðlæknar sjáum
víða merki um
aukinn kvíða í
samfélaginu,“
segir Óttar Guð-
mundsson geð-
læknir, spurður
um áhrif allra
þeirra neikvæðu
frétta sem dunið
hafa yfir að
undanförnu á andlega líðan fólks.
Nægir þar að nefna kórónuveiruna,
verkföll, óveður, snjóflóð, loðnu-
brest, jarðskjálfta og hættuna á eld-
gosum.
„Þessar fréttir valda framtíðar-
kvíða, fólk horfir fram á að ef það er
ekki inflúensa sem drepur það á
næstu dögum þá er það eldgos í
Grindavík. Ef það lifir þetta af þá er
það mengun og hamfarahlýnun sem
drepur mann, þannig að maður verði
dauður fyrir árið 2025. Svona hugs-
anir og endalausar hrakspár valda
auðvitað miklum kvíða,“ segir Óttar
og bætir við að á sama tíma aukist
neysla lyfja, læknar þurfi í auknum
mæli að gefa fólki róandi lyf.
Eins og lýsing á íþróttakeppni
„Ég kalla þetta hamfarablæti sem
ríkir núna í fjölmiðlum. Þar eru blás-
in upp öll þessi ótíðindi. Frásagnir
um kórónuveiruna eru orðin eins og
lýsing á íþróttakeppni, hversu marg-
ir hafa veikst og hve margir dáið.
Þetta er fyrsta frétt í öllum frétta-
tímum. Jafnvel þó að einhver þús-
und manna hafi sýkst vitum við að
það eru milljarðar manna sem hafa
ekki sýkst,“ segir Óttar og tekur
sem dæmi fregnir fjölmiðla af jarð-
skjálftunum við Grindavík. Þar hafi
verið fjallað um hvernig bæjarbúar
ættu að koma sér í skjól þegar eld-
gosið yrði. „Þegar fréttirnar eru
orðnar eins og framtíðarspár fer fólk
í baklás. Fólk fer að ímynda sér að
engin von sé fram undan. Þetta hef-
ur áhrif á fólk,“ segir Óttar, sem hef-
ur fundið fyrir kvíða og hræðslu hjá
skjólstæðingum sínum. Mikilvægt sé
að fólk haldi ró sinni, andi djúpt með
nefinu og láti ekki fréttirnar stjórna
lífi sínu.
Tekur allt saman enda
„Það hafa alltaf verið vond veður á
Íslandi og við höfum upplifað verk-
föll, jarðskjálfta og eldgos áður.
Þetta tekur allt saman enda, þannig
verður á endanum samið í þessum
verkföllum og veiran virðist til dæm-
is ekki vera neitt í líkingu við
spænsku veikina. Það er ekkert sem
bendir til þess að það verði eldgos í
Grindavík, þannig að við ættum að-
eins að reyna að horfa raunsæjum
augum á allar þessar hamfarafréttir.
Þó að fréttirnar séu eins og þær eru
þýðir það ekki að hér verði bara
dauði og djöfull og heimur á helvegi.
Við þurfum bara að anda með nefinu
og anda djúpt. Það er ekkert sem
bendir til að hér verði einhver far-
aldur eins og í spænsku veikinni.“
Óttar segir dánarhlutfall kórónu-
veiru ekki vera nærri eins hátt og í
spænsku veikinni. Samfélagið sé
miklu betur búið til að takast á við
svona sóttir í dag.
„Við erum ekki að sjá fyrir okkur
Miðbæjarskólann fullan af deyjandi
fólki,“ segir hann og hvetur fólk til
að taka því rólega, lesa góða bók,
hreyfa sig, hlusta á tónlist og horfa á
góða bíómynd.
„Það hafa áður komið spár um að
allt sé á heljarþröm. Jón krukkur
spáði því á 15. öld að allt væri að fara
til helvítis. En heimurinn stendur
enn.“
Meiri lyfjaneysla og aukinn kvíði
AFP
Kórónuveiran Margar neikvæðar
fréttir hafa borist að undanförnu.
Læknar finna aukinn kvíða meðal fólks vegna neikvæðra frétta Kórónuveira, verkföll, óveður,
loðnubrestur og jarðskjálftar Aukin neysla róandi lyfja Geðlæknir hvetur fólk til að anda rólega
Óttar
Guðmundsson
Síðustu verslun Nóatúns, sem er í
Austurveri við Háaleitisbraut í
Reykjavík, verður í sumar breytt í
Krónubúð og opnuð undir þeim
merkjum í ágústmánuði. „Við ætlum
að einbeita okkur að rekstri lágvöru-
verðsverslana, enda kalla neytendur
eftir slíku. Á síðustu árum höfum við
oft fengið óskir frá íbúum í Háleitis-
hverfi um Krónu í hverfið sitt og nú
erum við að svara því kalli,“ segir
Gréta María Grétarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Krónunnar.
Fyrr á tíð var Sláturfélag Suður-
lands með verslun í Austurveri, en
um 1990 kom Nóatún í hennar stað.
Þeirri verslun verður lokað um mitt
sumar og breytingar gerðar á hús-
næðinu svo þar megi opna Krónu-
búð. „Í Austurveri verður Króna
með því hefðbundna sniði sem við-
skiptavinir þekkja þær; fjölbreytt
vöruúrval með áherslu á hollustu og
tilbúna rétti. Þrátt fyrir þessar
breytingar munum við svo áfram
halda í vörumerki Nóatúns og bjóð-
um undir þeim merkjum t.d. grill-
kjöt, páskalambið, hamborgarhrygg
fyrir jólin, þorramat og fleira gott,“
segir Gréta María.
Krónubúðin í Austurveri verður
sú 21. í röðinni. Sú 22. verður á Völl-
unum í Hafnarfirði og verður
væntanlega opnuð í september. Þá
er Krónan með í undirbúningi að
opna snjallverslun á netinu, þar sem
viðskiptavinir geta pantað vörur og
nálgast þær á völdum stöðum. Sú
þjónustuleið kemst væntanlega í
gagnið í sumar eða haust, en próf-
anir á hugbúnaði sem þessu fylgir
eru þegar hafnar. sbs@mbl.is
Verslun Nóatúns í Austur-
veri verður lokað í sumar
Síðasta búðin Vörumerkið lifir Krónan kemur í staðinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nóatún Sagan er senn á enda.