Morgunblaðið - 28.02.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
B
irt
m
eð
fyrirvara
u
m
m
yn
d
-
o
g
textab
ren
g
l
Þetta flytur sig ekki sjálft!
Sixt langtímaleiga einfaldar reksturinn
ÞjónustuskoðanirTryggingar og gjöld Hefðbundið viðhaldDekk og dekkjaskipti
Kynntu þér kosti langtímaleigu á
sixtlangtímaleiga.is eða hafðu samband
við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222
eða á vidskiptastjori@sixt.is
(Atvinnubílar á langtímaleigu koma hreyfingu á hlutina)
Innifalið í langtímaleigu:
Verð frá:
63.900 kr. á mán án vsk.
Verð með vsk. frá: 79.236 kr. á mánuði.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Aðeins 10 prósent 15 ára ungmenna
ná átta klukkustunda viðmiðunar-
svefni á virkum dögum og óregla í
svefnlengd hópsins tengist hærri
fituprósentu og hærra hlutfalli á
kviðfitu. Þá eru þau ungmenni sem
verja minni tíma en jafnaldrar við
tölvu- og símaskjái og hreyfa sig oft-
ar ólíklegri til að greina frá einkenn-
um um andlega vanlíðan.
Þetta er meðal þess sem viðamikil
langtímarannsókn á heilsuhegðun
ungra Íslendinga leiðir í ljós. Að-
standendur rannsóknarinnar úr hópi
vísindamanna og doktorsnema í
íþrótta- og heilsufræði við Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands kynntu
helstu niðurstöður hennar á fundi í
Bratta í Stakkahlíð í gær.
Rannsóknin er framhald rann-
sóknarinnar „Lífsstíll 7 og 9 ára ís-
lenskra barna – íhlutunarrannsókn
til bættrar heilsu“, sem fram fór á
árunum 2006 og 2008 meðal stórs
hóps barna fæddra 1999. Sömu
börnum var boðið að taka þátt í
framhaldsrannsókninni við 15 og 17
ára aldur og hafa alls um 500 nem-
endur tekið þátt í rannsóknunum
tveimur, sem samanlagt spanna
nærri áratug í lífi nemendahópsins.
Markmiðið með rannsóknunum er
að varpa ljósi á þær breytingar sem
verða á holdafari, hreyfingu, svefni,
þreki, andlegri líðan og almennum
lifnaðarháttum ungs fólks frá æsku
fram á unglingsár og sambandi þess-
ara þátta við ýmsa heilsufarsþætti og
námsárangur. Rannsóknin hefur not-
ið forystu Erlings Jóhannssonar, pró-
fessors í íþrótta- og heilsufræði við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
en að henni kemur stór hópur vís-
indamanna og doktorsnema við Há-
skóla Íslands í samstarfi við Reykja-
víkurborg, Hjartavernd, mennta- og
menningarmálaráðuneytið og Lýð-
heilsustöð Bandaríkjanna.
Aðeins 6 tíma nætursvefn
Þrír doktorsnemar eru langt
komnir með rannsókn sína innan
verkefnisins. Einn þeirra, Vaka
Rögnvaldsdóttir, hefur verið að
rannsaka tengsl svefns og hreyf-
ingar við holdafar meðal 15 og 17 ára
þátttakenda í rannsókninni. Sífellt
fleiri vísindamenn beina sjónum sín-
um að mikilvægi svefns og tengslum
hans við heilsu og líðan fólks en
Vaka segir það nýnæmi að nýta
hreyfimæla í rannsóknum til þess
að meta svefn. „Helstu niðurstöður
mínar eru að 15 ára ungmenni sofa
aðeins um 6,2 klst. á skólanóttum
og aðeins lengur um helgar, eða 7,3
klst. Stuttan svefn má rekja til
þess hversu seint þau fara að sofa
virka daga (00:22) og um helgar
(01:58). Þá gefur skólabyrjun
snemma morguns heldur ekkert
svigrúm til þess að sofa lengur á
skóladögum,“ er haft eftir Vöku í
kynningu á málinu á vefsíðu Há-
skóla Íslands.
Þurfa 8 tíma svefn
Miðað er við að 15 og 17 ára ung-
menni þurfi að minnsta kosti átta
klukkutíma svefn á nóttu en fæst
þeirra uppfylla það viðmið yfir vik-
una, „Aðeins um 23% stúlkna og
20% drengja uppfylla viðmiðin við
15 ára aldur og enn færri þegar lit-
ið er til virkra daga, eða 10,7%,“
segir Vaka. „Í niðurstöðum kemur
einnig fram að óregla á svefnlengd
virka daga tengist hærri fitupró-
sentu og hærra hlutfalli á kviðfitu
meðal 15 ára ungmennanna.“
Niðurstöður Vöku sýna að þeir
sem stunda íþróttir og/eða heilsu-
rækt sofa ekki endilega lengur en
þeir sem stunda þær ekki. „Ung-
menni í íþróttum þurfa svefn sem
hluta af endurheimt og þeir sem
stunda íþróttir virðast ekki sofa
lengur en þeir sem ekki stunda
íþróttir. Mikilvægt er fyrir íþrótta-
hreyfinguna að vera meðvituð um
æfingatíma ungmenna og að
íþróttaiðkun seint að kvöldi geti
spillt fyrir svefnlengd,“ segir Vaka
m.a. um niðurstöðurnar.
Um 43% þátttakenda stunda
íþróttir og heilsurækt a.m.k. sex
klukkustundir í viku og fleiri
drengir en stúlkur æfa svo mikið.
„Áhugavert er þó að stúlkur hreyfa
sig meira en drengir um helgar,“ er
enn fremur haft eftir Vöku.
Ungt fólk fær ekki nægan svefn
Ný rannsókn sýnir að aðeins tíu prósent 15 ára ungmenna ná átta klukkustunda viðmiðunarsvefni
Tengsl eru á milli tíma sem varið er við tölvu- og símaskjái og einkenna um andlega vanlíðan
Morgunblaðið/Eggert
Heilsa og svefn Niðurstaða viðamikillar rannsóknar á heilsuhegðun íslenskra ungmenna var kynnt í gær.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur vísað frá kröfu land-
eiganda Húsafells 1 um ógildingu
ákvörðunar sveitarstjórnar Borgar-
byggðar um að fela byggingarfull-
trúa að samþykkja umsókn um
byggingarleyfi fyrir legsteinaskála að
Bæjargildi í landi Húsafells. Hins
vegar felldi nefndin úr gildi ákvörðun
byggingafulltrúans að veita bygg-
ingarleyfi fyrir þessu sama húsi.
Rök nefndarinnar fyrir því að vísa
frá kröfu um ógildingu ákvörðunar
sveitarstjórnar frá 9. maí á síðasta
áru eru þau að það hafi ekki verið
lokaákvörðun því það sé hlutverk
byggingafulltrúa að taka endanlega
ákvörðun um samþykkt byggingar-
áforma og útgáfu byggingarleyfis.
Ástæðan fyrir því að ákvörðun
byggingafulltrúa frá 28. maí í fyrra
um útgáfu byggingarleyfisins var
felld úr gildi er hins vegar sú að
bygging legsteinaskálans samræmist
ekki aðalskipulagi, þar sem umrætt
land er skilgreint sem landbúnaðar-
svæði.
Málið á sér langan aðdraganda og
hefur nokkrum sinnum komið fyrir
úrskurðarnefndina. Það hófst með
vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyr-
ir Steinhörpuna í landi Húsafells 2 og
var það samþykkt í sveitarstjórn á
árinu 2015. Byggingarfulltrúi sam-
þykkti umsókn um að flytja gamalt
pakkhús úr Borgarnesi og setja upp
á lóðinni Bæjargili og í byrjun árs
2016 samþykkti byggingafulltrúi leyfi
til byggingar húss fyrir legsteina-
safn. Skaut eigandi Húsafells 1
ákvörðun um legsteinasafnið til úr-
skurðarnefndarinnar sem og sam-
þykkt sveitarstjórnar um deiliskipu-
lagið. Úrskurðarnefndin vísaði frá
kröfu um ógildingu deiliskipulagsins
vegna þess að kæran hefði verið of
seint fram komin og hafnaði einnig
kröfu um ógildingu byggingarleyfis-
ins.
Umboðsmaður skarst í leikinn
Nefndin synjaði síðar kröfu kær-
anda um endurupptöku málsins.
Kvartaði hann þá til umboðsmanns
Alþingis, sem taldi að nefndinni hefði
borið að taka rökstudda afstöðu til
þess hvort deiliskipulagið hefði verið
gilt. Þá samþykkti úrskurðarnefndin
að taka málið aftur fyrir og eftir um-
fjöllun ákvað hún að vísa frá kröfu
um ógildingu varðandi leyfi til að
flytja pakkhúsið á lóðina, þar sem
krafan væri of seint fram komin.
Einnig var vísað frá kröfu um ógild-
ingu ákvörðunar sveitarstjórnar um
deiliskipulagið, þar sem skipulagið
hefði enn ekki tekið gildi með lög-
formlega réttri birtingu í Stjórnar-
tíðindum. Aftur á móti var felld úr
gildi ákvörðun byggingafulltrúans
um að veita leyfi fyrir legsteinasafn-
inu á þeim forsendum að leyfið ætti
sér ekki stoð í gildu deiliskipulagi.
Enn einn snúningur málsins hófst í
byrjun síðasta árs þegar sótt var að
nýju um leyfi til að reisa skála til að
varðveita legsteina og minnimerki úr
steini. Fram fór grenndarkynning
sem sneri aðallega að eiganda Húsa-
fells 1, kærandanum í öllum þessum
málum. Viðkomandi nefnd sveitar-
félagsins og sveitarstjórn samþykktu
að fela byggingarfulltrúa að afgreiða
umsóknina og það gerði hann 28. maí
2019. Sú ákvörðun hefur nú verið
felld úr gildi, eins og áður segir.
Ein af kröfum kærandans í málinu
var að þeir nefndarmenn í úrskurðar-
nefndinni sem fjallað hefðu um málið
á fyrri stigum væru vanhæfir og aðrir
yrðu fengnir til að úrskurða. Fullyrti
að úrskurðarnefndin hefði margsýnt
að hún drægi taum leyfishafa með því
að komast ítrekað að augljóslega
rangri lagalegri niðurstöðu. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu að svo
væri ekki því maður teldist ekki van-
hæfur fyrir það eitt að hafa fjallað um
sömu deilumál aðila í fyrri úrskurði.
Legsteinaskáli stöðvaður öðru sinni
Langvarandi deilur tveggja landeigenda í Húsafelli um byggingar Úrskurðarnefnd margoft fjallað
um málið Nú var byggingarleyfi skála fyrir legsteina ógilt Fellur ekki að landbúnaðarnotum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Steinharpan Uppbygging í þágu Páls Guðmundssonar, listamanns í Húsa-
felli, hefur tafist mjög vegna ágreinings við nágranna og málareksturs.