Morgunblaðið - 28.02.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
mánudaginn 2. mars, kl. 18
Fold uppboðshús kynnir
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
LISTMUNAUPPBOÐ
Jóhannes S. Kjarval
Georg Guðni
Svavar Guðnason
Listmunauppboð nr. 118
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–16,
sunnudag kl. 12–16 og mánudag kl. 10–17
Forsýning á verkunum í Gallerí Fold
Tryggvi Ólafsson
Derringur Loga Einarssonar,formanns Samfylkingar, kall-
ar á þessa hugleiðingu Gústafs A.
Skúlasonar:
Núna stoppum viðfílahjörðina,“
var það síðasta sem
maurinn sagði við
vin sinn áður en fíla-
hjörðin tróð úr þeim
lífið.
Logi Einarsson erí sömu stöðu
með inngöngumiða í
heimsveldi ESB sem
tekur smáþjóðir í
nefið.
Eftir hrun Samfylkingarinnarþarf hæfileika a la Bagdad
Bob til að setja sig á háan hest og
skipa öðrum flokkum fyrir.
Ég vinn ekki með Sjálfstæðis-flokknum og Miðflokknum,“
segir Logi sem haldinn er kópíer-
ingsveiru á háu stigi með afritað
misheppnað landakort sænskra
sósíaldemókrata sem komnir eru
niður í sögulegt myrkur 22% fylgis.
Formaðurinn gleymir því líka, aðíslenska þjóðin hefur gott út-
sýni til SamfylkingarDags í Reykja-
vík með ljóskastara Miðflokksins og
Sjálfstæðisflokksins.
Væntanlega veitir þjóðin báðumþessum framámönnum logandi
fína útkomu í næstu kosningum.
Íslendingar elska lýðræðið en
ESB ekki.“
En það kúnstuga við andstöðuLoga formanns við haustkosn-
ingar og bráðsmitandi kópíerings-
veiru hans er að Svíar halda allar
sínar kosningar í september og taka
ekki annað í mál.
Logi Einarsson
Logar ekki á öllum?
STAKSTEINAR
Gústaf A.
Skúlason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými á
svæðinu er brýn. Við nýtum þetta ár
til undirbúnings og að fullhanna nýtt
hjúkrunarheimili. Síðan er gert ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist af full-
um krafti á næsta ári,“ segir Kjartan
Már Kjartansson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra og Kjartan Már undirrit-
uðu í gær samning um nýtt 60 rýma
hjúkrunarheimili í bæjarfélaginu.
Gert er ráð fyrir að heimilið verði
tekið í notkun um mitt ár 2023. Ný-
byggingin verður við hlið núverandi
hjúkrunarheimilis á Nesvöllum í
Njarðvík og byggingar samtengdar.
Er það í samræmi við áherslur
Reykjanesbæjar. Með tilkomu heim-
ilisins fjölgar hjúkrunarrýmum í
bæjarfélaginu um 30, en helmingur-
inn af rýmunum 60 kemur í stað
þeirra sem nú eru í hjúkrunarheim-
ilinu Hlévangi sem er við Faxabraut
í Keflavík í Reykjanesbæ. Hlévangi
verður lokað enda aðstæður þar ekki
lengur í samræmi við nútímakröfur.
Að flatarmáli verður hjúkrunar-
heimilið nýja um 3.900 fermetrar og
áætlaður framkvæmdakostnaður er
um 2,5 ma. kr. Reykjanesbær annast
fjármögnun en heilbrigðisráðuneytið
greiðir 85% en sveitarfélagið afgang-
inn. sbs@mbl.is
Reisa á nýtt hjúkrunarheimili
Samið í Reykjanesbæ 60 rými í
nýju húsi Kostar 2,5 milljarða kr.
Reykjanesbær Kjartan Már Kjart-
ansson og Svandís Svavarsdóttir.
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkurborgar hefur samþykkt tillögu
umhverfis- og skipulagssviðs
borgarinnar um að heimild verði
veitt til verkhönnunar og gerðar út-
boðsgagna fyrir sameiginlegan
göngu- og hjólastíg samsíða Flóka-
götu við Klambratún milli Rauðar-
árstígs og Lönguhlíðar. Kaflinn er
um 400 m langur. Stefnt er að fram-
kvæmdum á þessu ári.
Engin gangstétt er við Flókagötu
á þessum kafla og hefur lengi verið
óskað eftir henni af íbúum. For-
hönnun gerir er ráð fyrir um þriggja
metra breiðum stíg með bættri lýs-
ingu á gönguþverunum.
Verkið kosið 2018
Hluti stígsins var kosinn inn í
verkefninu „Hverfið mitt“ haustið
2018. Í stað þess að gera malarstíg
hluta leiðarinnar eins og tillagan þar
gerði ráð fyrir er nú gert ráð fyrir að
gera stíg alla leið með föstu yfir-
borði. Hluti kostnaðar við fram-
kvæmdina verður greiddur af verk-
efninu „Hverfið mitt“.
Göngu- og hjólastíg-
ur við Flókagötu
400 metra langur Hafist handa í ár
Göngu- og hjólastígur við Flókagötu
Fyrirhugað er að stígurinn nái frá Rauðarárstíg að Lönguhlíð
Stígurinn verður samsíða
Flókagötu við Klambratún,
um 400 m langur
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Flókagata
Klambratún
Kjarvalsstaðir