Morgunblaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Fagleg þjónusta fyrir fólk í framkvæmdum
flugger.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þótt skil á ársreikningum sjálfs-
eignastofnana og sjóða hafi batnað
hafa stjórnvöldum aðeins borist
reikningar fyrir árið 2018 frá 500 af
liðlega 700 virkum stofnunum sem
falla undir þessa skilgreiningu. Í
skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur
jafnframt fram að 57 sjóðir hafa
aldrei skilað ársreikningum.
Sá sem ber ábyrgð á sjóði eða
stofnun með staðfesta skipulagsskrá
skal skila ársreikningi fyrir árið á
undan fyrir 30. júní ásamt skýrslu
um hvernig fé sjóðsins hefur verið
varið. Ríkisendurskoðun og Sýslu-
maðurinn á Norðurlandi vestra hafa
eftirlit með sjóðunum og senda út
ítrekanir. Í lögunum eru ákvæði um
að ef ekki er staðið í skilum með
reikninga og skýrslu eða reiknings-
skilin reynast ófullkomin getur
sýslumaður falið lögreglu að rann-
saka fjárreiður sjóðsins.
Ríkisendurskoðun hefur ítrekað
bent Alþingi og dómsmálaráðuneyti
á nauðsyn þess að lögfesta betri úr-
ræði til að taka á síðbúnum skilum
og vanrækslu.
Vantar betri úrræði
Bjarni Hrafnkelsson, fulltrúi
sýslumannsins á Norðurlandi vestra,
segir að endurskoða mætti lögin frá
1988 og taka þá ýmislegt til skoð-
unar. Meðal annars hvort rétt sé að
leggja á sektir ef ársreikningum er
ekki skilað. Það sé gert þegar einka-
hlutafélög skili ekki reikningum.
Álagning sekta geti leitt til fjárnáms.
Telur Bjarni að lögreglurannsókn
eins og heimild er fyrir í lögum sé
þeim annmörkum háð að ekki þurfi
að vera grunur um refsiverða hátt-
semi þótt ábyrgðarmaður sjóðs hafi
af einhverjum ástæðum ekki innt af
hendi lagaskyldur sínar um skil á
ársreikningum og skýrslum.
Sá elsti frá sautjándu öld
Sjóðir og stofnanir eru afar mis-
jafnar að stærð og aldri. Þar eru
hjúkrunarheimili og hússjóður ör-
yrkja með miklar eignir og tekjur og
síðan litlir styrktarsjóðir með litlar
tekjur og eignir. Eignir 55 sjóða sem
skiluðu ársreikningi fyrir 2018 eru
undir hálfri milljón.
Elstu sjóðirnir eru frá sautjándu
og átjándu öld, allt dánargjafir. Elsti
sjóðurinn, Reynislegat, er frá árinu
1662. Hann stofnaði Brynjólfur
Sveinsson Skálholtsbiskup tveimur
dögum áður en hann sótti Kópavogs-
fundinn. Lagði hann jörðina Reyni á
Akranesi til sjóðsins ásamt sex kú-
gildum og átti afgjaldið að ganga til
framfærslu ærlegrar og guðhræddr-
ar ekkju með þrjú skilgetin börn eða
þaðan af meiri ómegð.
Sjóðir og sjálfseignarstofnanir
Eignamestu sjóðir og stofnanir árið 2018 (heildareignir, milljónir kr.)
Elstu sjóðir og stofnanir á sjóðaskrá (stofnár)
Heimild: Ríkisendurskoðun
1849
Hjalte-
stedslegat
1854
Gjöf Þorleifs Kolbeinssonar
og Sigríðar Jónsdóttur
1662
Reynis-
legat
1874
Stsj. Christians
konungs IX
1882
Gjöf Jóns
Sigurðssonar
1889
Gullbrúðkaupslegat Bjarna Þorsteins-
sonar og Þórunnar Hannesdóttur
1693
Vallholts-
legat
1767
Kambs-
hólslegat
1832
Stsj. Þjóð-
jarðalandseta
1831
Legat Jóns Sigurðs-
sonar, Böggvist.
1839
Utanverðu-
neslegat
1840
Fiskimannasjóður
Kjalarnesþings
1848
Bræðrasjóður
Reykjavíkurskóla
Brynja, hússjóður ÖBÍ
Eir hjúkrunarheimili
Grund
Háskólasjóður H.F. Eimskipafélags Íslands
Skjól Hjúkrunarheimili
Msj. Ólafs Finnss. og Guðrúnar Tómasd.
Aurora velgerðarsjóður
Skógarbær, sjst. í þágu aldraðra og sjúkra í Rvík
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð
Msj. Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups
Sjst. Aurora Observatory
Watanabe styrktarsjóðurinn við Háskóla Ísl.
Sjóður samtaka sparifjáreigenda
Menningar- og framfarasj. Ludvig Storr
24.245
11.661
7.128
3.272
2.167
1.065
1.021
955
824
767
741
605
574
528
Hafa skilað ársreikn-
ingum 2018, 500
Ekki skilað 2017
og fyrr, 159
Aldrei skilað árs-
reikningum, 57
Nýjar skipulags skrár, 12
Sjóðir lagðir niður, 26
Virkar sjálfseignarstofnanir
og sjóðir árið 2018
Alls
716
Virkar sjálfseignar-
stofnanir og
sjóðir
57 sjóðir hafa aldrei
skilað ársreikningi
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson
lagðist í fyrradag að bryggju við
Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn,
framan við hús sem brátt verður
höfuðstöðvar Hafrannsóknastofn-
unar. Skipið var þar í sólarhring en
hélt í gær í árlegt vorrall stofn-
unarinnar.
Tengist við hitaveitu
Hafnarfjarðarhöfn hefur gert
viðlegukant framan við húsið
Fornubúðir 5. Þangað er búið að
leggja rafmagn, vatn og heitt vatn
enda eru skip Hafró kynt með
heitu vatni þegar þau liggja við
bryggju. Sigurður Guðjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, seg-
ir að skipið hafi lagst þarna að
núna til að hægt væri að reyna
búnaðinn. Árni og Bjarni Sæ-
mundsson munu fá varanlega að-
stöðu þar þegar stofnunin fær
hluta af skemmu sem þarna er til
afnota. Það gerist á næstu vikum.
Við Háabakka á að vera pláss fyrir
tvö skip, jafnvel eftir að Bjarna
hefur verið skipt út fyrir nýtt skip.
Eftir er að leggja timburgólf á
bryggjuna.
Afhending hússins við Fornubúð-
ir hefur dregist en Sigurður telur
að það verði afhent í maí.
helgi@mbl.is
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir
Hafnafjarðarhöfn Árni Friðriksson mátar sig við nýju aðstöðuna við Háa-
bakka. Höfuðstöðvar Hafró flytjast í fimm hæða húsið í vor.
Við nýjar höfuðstöðvar
Árni Friðriksson lagðist í fyrsta
skipti að bryggju við Háabakka
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Skóla- og frístundasvið Reykja-
víkurborgar mælir ekki með því að
Vesturland, sá hluti Fossvogsskóla
sem verið hefur
til viðgerðar
undanfarnar vik-
ur, verði tekinn í
notkun að svo
komnu máli.
Þetta segir sviðs-
stjórinn, Helgi
Grímsson, í svar-
bréfi til fulltrúa
foreldra og
starfsfólks skól-
ans á miðvikudaginn. Morgunblaðið
fékk afrit af bréfinu. Foreldrar og
starfsfólk höfðu látið í ljósi áhyggjur
af því af þetta kennsluhúsnæði yrði
opnað að nýju án fullnaðarviðgerðar
eins og fram kom hér í blaðinu í
gær.
„Framkvæmdum við Fossvogs-
skóla er ekki að fullu lokið. Lokafrá-
gangur er eftir í nokkrum rýmum,“
segir í bréfi Helga. Til dæmis hafi
það verið öllum vonbrigði að þak-
gluggi í Vesturlandi tók upp á því að
leka undir lok seinasta árs í kjölfar
mikilla rigninga og illviðris. Nú hafi
verið komið í veg fyrir lekann, raka-
skemmt efni verið fjarlægt og
lokafrágangur á stórum þakglugga
sé á áætlun í vor.
Helgi segir að Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur hafi farið í eftirlitsferð
um skólann í vikunni sem leið og
hafi komið með nokkrar athuga-
semdir um frágang sem ráðist verði
í að ljúka sem og öðrum atriðum
sem borist hafi frá skólanum.
Þá segir í bréfinu að ljóst sé að
skóla- og frístundasvið muni ekki
koma með tilmæli þess efnis að
hefja eigi starf á ný í Vesturlandi að
svo komnu máli. „Fyrst er að bregð-
ast við öllum ábendingum og síðan
að gera úttekt á húsnæðinu. Þá
verða tekin sýni á ný í byggingunni
t.d. í Vesturlandi og heimilisfræði-
stofu til þess að taka af allan vafa.
Skóla- og frístundasvið og umhverf-
is- og skipulagssvið hafa einsett sér
að tryggja gæði skólahúsnæðisins
og lagfæra allt sem gagnreyndar
sýnatöku- og ræktunaraðferðir leiða
í ljós að þurfi að lagfæra,“ segir
Helgi Grímsson, sem kveðst munu
senda fulltrúum foreldra og starfs-
fólks frekari upplýsingar um gang
framkvæmda innan tíðar.
Morgunblaðið/Hari
Fossvogur Viðgerðir standa enn yfir í skólahúsnæðinu.
Vesturálman ekki
strax tekin í notkun
Viðgerðum ekki lokið í Fossvogsskóla
Helgi Grímsson