Morgunblaðið - 28.02.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
FULL BÚÐ AF NÝJUM
OG FALLEGUM VÖRUM
6.990 kr.
Peysur
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS
Fataskiptimarkaður verður í Borgar-
bókasafninu í Árbæ sunnudaginn 1.
mars kl. 13-15. Þar verður hægt að
koma með notaðar eða ónotaðar flík-
ur, skótau og fylgihluti og fá jafnvel
flíkur í staðinn sem henta.
„Komið með fatnað sem þið eruð
hætt að nota eða jafnvel hafið aldrei
notað og viljið láta ganga áfram til
annarra sem geta nýtt sér flíkina,“
segir m.a. í tilkynningu frá Borgar-
bókasafninu.
Skipst á föt-
um í Árbæ
á sunnudag
Fataskipti Nú er ráð að taka til í fataskápnum og láta aðra njóta þess.
ASÍ og Isavia hafa gert með sér
samstarfssamning um miðlun upp-
lýsinga til erlends launafólks um ís-
lenskan vinnumarkað, kjarasamn-
inga, réttindi og skyldur. Drífa
Snædal, forseti ASÍ, og Sveinbjörn
Indriðason, forstjóri Isavia, undirrit-
uðu samninginn í Leifsstöð í gær.
„Markmiðið með samningnum er
að stuðla að heilbrigðum vinnumark-
aði á Íslandi, þar sem allir njóti kjara
og annarra réttinda í samræmi við
kjarasamninga og lög og þar sem
launafólki er ekki mismunað á
grundvelli þjóðernis. Þetta er liður í
baráttunni fyrir heilbrigðum vinnu-
markaði, að kjarasamningar séu
virtir og fólk af erlendum uppruna
sem kemur til landsins að vinna fái
upplýsingar um réttindi sín,“ segir
meðal annars í fréttatilkynningu um
samstarfið.
Miðla upplýsingum
til erlends launafólks
Isavia og ASÍ með samstarfssamning
Icelandair býður upp á beint flug á
milli borgarinnar Verona á Ítalíu og
Keflavíkur, en borgin er í héraðinu
Venetó sem skilgreint hefur verið
með mikla smitáhættu af Land-
lækni.
Sóttvarnalæknir segir ekki tilefni
til þess að takmarka ferðir til og frá
Verona vegna þessa en fjórtán
manns eru í sóttkví hér á landi
vegna veru sinnar í bænum Cortina
í Venetó-héraði.
Einn þeirra setti sig í samband
við Morgunblaðið en vildi ekki láta
nafns síns getið. Hann sagði það
skjóta skökku við að fólk sem hefði
dvalið í bænum Selva sem er í ná-
grannahéraði Venetó þyrfti ekki að
fara í sóttkví við komuna til Íslands
þrátt fyrir að skíðasvæði Selva og
Cortina lægju saman og fólk bein-
línis skíðaði á milli héraða.
Spurður hvers vegna þetta væri
sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir:
„Við vitum að innan þessa héraða
eru mismunandi rauð svæði. Þau
eru að breytast og við höfum ekki
nokkur tök á að vita nákvæmlega
hvernig skilgreiningarnar breytast.
Það er bara fræðilega ómögulegt.“
Ekki hefur verið mælst til þess að
fólk sem flýgur frá Verona til Ís-
lands fari í sóttkví.
Einkennin sakleysisleg
Spurður hvort það sé eðlilegt að
Verona og flugvöllurinn þar séu
undanskilin því sem gildir annars
um Venetó-hérað segir Þórólfur:
„Það er mjög ólíklegt að smit eigi
sér stað þegar fólk dvelur á svæðinu
í stuttan tíma, þá til dæmis fólk sem
hefur dvalið fyrir utan héraðið en
fer á flugvöllinn til þess að fljúga til
Íslands.“
Einkenni kórónuveiru geta virst
saklaus til að byrja með og geta ein-
staklingar sem eru smitaðir en ein-
kennalausir smitað aðra. Líkurnar á
því eru þó takmarkaðar, að sögn
Kjartans Hreins Njálssonar, að-
stoðarmanns landlæknis.
ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kórónuveira Þórólfur í skugga einkennismerkis almannavarnadeildar.
Skíða milli mis-
mikillar hættu
Smitáhætta veirunnar breytist hratt
„Það eru mikil vonbrigði að við
höfum ekki náð að þokast nær
ásættanlegri niðurstöðu. Það er
stutt í að verk-
fallsaðgerðir
hefjist og mörg
stór mál sem
bíða úrlausnar,“
segir Sonja Ýr
Þorbergsdóttir,
formaður BSRB.
Í tilkynningu á
heimasíðu BSRB
er greint frá því
að lítið hafi þok-
ast í samkomu-
lagsátt í kjaraviðræðum BSRB við
viðsemjendur undanfarna daga.
„Rætt hefur verið um útfærslu
styttingu vinnuvikunnar hjá vakta-
vinnufólki og jöfnun launa milli
markaða án þess að niðurstaða
hafi náðst,“ segir þar, en verkföll
aðildarfélaga bandalagsins munu
hefjast mánudaginn 9. mars ef
kjarasamningar nást ekki fyrir
þann tíma.
Greint er frá því að einstök að-
ildarfélög hafi átt fundi með við-
semjendum. Þannig hafi Sameyki
undirritað kjarasamning við Faxa-
flóahafnir vegna rúmlega tuttugu
félagsmanna. Samninganefnd
Sjúkraliðafélags Íslands kveðst
vera „hóflega bjartsýn“ eftir samn-
ingafund í vikunni, en næsti fund-
ur er eftir helgi.
Fundur bæjarstarfsmannafélaga
með samninganefnd Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga var afboð-
aður stuttu áður en hann átti að
hefjast á þriðjudag.
BSRB lýsir vonbrigð-
um með stöðu mála
Sonja Ýr
Þorbergsdóttir