Morgunblaðið - 28.02.2020, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Undir-skrifta-söfnun
fyrir íbúakosn-
ingu um deili-
skipulag við
Stekkjarbakka við
Elliðaárdal í
Reykjavík lýkur í dag. Ekki
er útlit fyrir að tilskilinn
fjöldi náist til að deiliskipu-
lagið verði að taka upp, en
18.000 íbúar þurfa að leggja
nafn sitt við málefnið til að
það nái fram að ganga.
Þessi undirskriftasöfnun
vekur ýmsar spurningar, til
að mynda þá hver raunveru-
leg afstaða meirihlutans í
Reykjavík er til þess að
hlusta á íbúana eða að leyfa
þeim að kjósa um mikilvæg
málefni. Meirihlutaflokkarnir
segjast fylgjandi auknu lýð-
ræði og gagnsæi og tala um
beint lýðræði á tyllidögum, en
fylgir hugur máli? Málefni
Elliðaárdalsins, sem er til-
valið til íbúakosningar sé fólk
á annað borð fylgjandi slíkri
leið, enda sameiginlegt hags-
munamál allra borgarbúa,
ætti að eiga greiða leið í beina
kosningu meðal borgarbúa.
„Elliðaárdalurinn er stoltið
okkar. Við þurfum að standa
vörð um hann. Það er lág-
mark að leyfa íbúum að kjósa
um hann,“ sagði Eyþór Arn-
alds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn í um-
ræðum um þetta mál, en fékk
engar undirtektir meiri-
hlutans.
Hvers vegna vill meirihlut-
inn ekki láta kjósa um þetta
mál? Getur verið að borgar-
fulltrúar meirihlutaflokkanna
hafi ekki trú á því að málstað-
ur þeirra, sem byggist á því
að rýra Elliðaárdalinn, njóti
stuðnings meðal borgarbúa?
Það skyldi þó ekki vera.
Á hinn bóginn má segja, þó
að það séu alls ekki röksemd-
ir sem meirihlutaflokkarnir
hafa haldið á lofti, að fólk hafi
ekki áhuga á beinu lýðræði.
Sú undirskriftasöfnun sem nú
stendur yfir sé enn ein stað-
festing þess. Afar erfitt sé að
fá fólk til að taka þátt í slíkum
undirskriftasöfnunum eða
kosningum um einstök mál,
eins og dæmin sanni.
Það er mikið til í slíkri rök-
semdafærslu, enda virðist
þurfa mál á borð við Icesave
til að fólk nenni að hafa fyrir
því að skrifa undir eða mæta á
kjörstað og kjósa. Þetta er
umhugsunarvert fyrir tals-
menn beins lýðræðis og bend-
ir ekki til að slík aðferð skili í
raun lýðræðislegri niðurstöðu
en að láta kjörna
fulltrúa um að
leysa úr ágrein-
ingsmálum.
Þetta breytir
því þó ekki að ef
meirihlutaflokk-
arnir segjast
fylgjandi beinu lýðræði og að
þeir vilji aukna aðkomu
almennings að málefnum
borgarinnar, þá ættu þeir að
hlusta þegar um það bil tíu
þúsund borgarbúar hafa fyrir
því að rita nöfn sín undir
hvatningu um að hlífa Elliða-
árdalnum.
Lítil von er þó til þess. Við-
brögð meirihlutans við þeirri
undirskriftasöfnun sem nú er
að ljúka verður eflaust miklu
frekar að fagna sigri og telja
sig geta vaðið áfram án þess
að hlusta á óánægjuradd-
irnar.
Þetta getur meirihlutinn
gert, enn um sinn. Hann hef-
ur nauman meirihluta í
borgarstjórn, þó að atkvæðin
hafi ekki fallið á þann veg í
borgarstjórnarkosningunum.
Hann mætti hafa í huga að at-
kvæðin á bak við meirihluta-
flokkana eru 27.328 en á bak
við flokkana sem skipa minni-
hlutann eru 28.028 atkvæði,
eða 700 atkvæðum meira. Sú
staðreynd þýðir ekki að
meirihlutinn eigi ekki rétt á
að stýra borginni vegna þess
að hann hafi færri Reykvík-
inga á bak við sig en minni-
hlutinn. Hann varð ofan á í
kosningum sem fóru eftir
settum reglum og ekkert er
við því að segja. Eða, öllu
heldur, fyrri meirihluti féll og
lenti út í skurði, en með hjálp-
ardekki Viðreisnar sem var til
sölu fyrir lítið fé var honum
komið aftur upp á veg og
skröltir þar af veikum mætti.
Og hann hefur rétt til að
skrölta áfram, en hann mætti
gera það í meiri sátt við
borgarbúa, ekki síst í ljósi
þess litla stuðnings sem hann
nýtur.
Og borgarfulltrúar meiri-
hlutans ættu að íhuga að líkur
eru á að smám saman safnist
upp óánægja með öll þau mál
þar sem meirihlutinn hunsar
athugasemdir og umkvart-
anir borgarbúa og þröngvar
sérvisku sinni upp á þá. Sú
óánægja kann að birtast með
skýrum hætti í næstu kosn-
ingum og þá er ekki ósenni-
legt að borgarfulltrúar meiri-
hlutans velti því fyrir sér
hvort þeir hefðu ef til vill átt
að leggja betur við hlustir
þegar fjöldi Reykvíkinga hóf
upp raust sína.
Samfylking,
Viðreisn, Píratar
og VG fara sínu fram
í Reykjavík.
Ennþá}
Meirihlutinn
mætti hlusta
F
lestir kannast við þá fleygu setn-
ingu „að fjórðungi bregði til föður,
fjórðungi til móður, fjórðungi til
fósturs og fjórðungi til nafns“.
Þarna kemur fram sú sýn að nöfn
skipti miklu máli. Það sé heillavænlegt að skíra
barnið í höfuðið á einhverri ákveðinni fyrir-
mynd. Þetta geta verið afar eða ömmur, frænd-
ur eða frænkur eða einhverjir allt aðrir sem
búa yfir einhverjum þeim kostum sem prýða
viðkomandi einstakling í huga þeirra sem velja
nafn fyrir barnið.
Ég nefni þetta til að undirstrika að engum sé
betur treystandi til að velja barni nafn en ein-
mitt þeim sem bera ábyrgð á uppvexti og öllu
atlæti þess. Rétturinn til nafns er mjög ríkur
og einnig rétturinn til að velja og ákveða nafn
viðkomandi einstaklings.
Í samráðsgátt stjórnvalda er frumvarp sem
ég hyggst leggja fram um ný mannanafnalög. Með frum-
varpinu er stefnt að því að draga úr afskiptum opinberra
aðila af nafngiftum með hliðsjón af friðhelgi einkalífs.
Frelsi við nafngjöf verður aukið og takmarkanir afnumdar
varðandi skráningu nafna, bæði eiginnafna og kenninafna.
Núgildandi lög um mannanöfn hafa verið í gildi í tæpan
aldarfjórðung. Lögin hafa sætt töluverðri gagnrýni og
hafa þótt helst til ströng. Snýr gagnrýnin ekki síst að
erfiðleikum við að fá nöfn skráð hér á landi ef þau eru ekki
fyllilega í samræmi við íslenska málhefð og rithátt. Mörg
ákvæði í lögunum þykja ekki hafa fylgt þeim miklu breyt-
ingum sem orðið hafa á síðustu árum á sam-
setningu þjóðfélagsins.
Í frumvarpinu er lagt til að ekki verði tak-
mörk á fjölda eiginnafna og kenninafna. Þeim
sem eru 15 ára og eldri er tryggður sjálfs-
ákvörðunarréttur þegar kemur að nafnbreyt-
ingum, auk þess sem leitast er við að tryggja
betur rétt yngri barna til að taka þátt í slíkri
ákvörðun. Felldar verða niður reglur um að
eiginnöfn skuli geta tekið íslenska eignarfalls-
endingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku
máli. Einnig er fellt brott ákvæði um að nafn
megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi og
að það skuli ritað í samræmi við almennar rit-
reglur. Takmarkanir á notkun erlendra nafna
falla niður og ættarnöfn verða leyfð að nýju.
Loks er lagt til í frumvarpinu að manna-
nafnanefnd verði lögð niður.
Ef við treystum fólki til að ala upp börn sín
verðum við líka að treysta því til að gefa þeim nafn. Fjöl-
mörg dæmi eru um nöfn sem ekki hafa fengist samþykkt
og dæmi um nöfn sem þegar eru leyfð, eins og vísað er í
hér í fyrirsögn. Enn verður þó ákvæði í lögunum um að
nafn barns megi ekki vera því til ama.
Íslensk mannanafnahefð varð ekki til og verður ekki
viðhaldið með lagasetningu. Réttur einstaklings til nafns
er ríkari en réttur ríkisvaldsins til að takmarka hann.
aslaugs@althingi.is
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Ljótur en ekki Skallagrímur
Höfundur er dómsmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Dekkstu spár norskra yfir-valda gera ráð fyrir því aðallt að einn af hverjumfjórum Norðmönnum geti
smitast af kórónuveirunni, en fyrsta
tilfellið í Noregi greindist á miðviku-
daginn þegar kona í Tromsø reyndist
smituð. Þá hafa ítalskir miðlar greint
frá norskum námsmanni meðal smit-
aðra á Ítalíu þar sem smittilfellin
hrannast nú upp.
Íbúar níu norskra fylkja, um 50
manns, sitja nú í einangrun vegna
gruns um smit og vinnur heilbrigðis-
starfsfólk á hverjum stað að því að
taka sýni til greiningar.
Hvatti til aðgerða
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
forstöðumaður Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO, vakti at-
hygli á því í gær að nýsmit greindust
nú fleiri utan landamæra Kína en inn-
an þeirra og nú væri það heilbrigðis-
yfirvalda að grípa til þeirra aðgerða
sem þyrfti til að bjarga mannslífum.
Í Danmörku hefur sjónvarps-
stöðin TV2 beðið 16 starfsmenn sína
að halda sig heima í tvær vikur eftir
að starfsmaður stöðvarinnar greind-
ist með veiruna í fyrradag og varð
fyrsta tilfellið þar í landi. Mette
Frederiksen forsætisráðherra hefur
kallað almannavarnanefnd danska
ríkisins saman til að samhæfa störf
viðbragðsaðila í landinu og bregðast
við vágestinum.
Reyna að framleiða bóluefni
Svíar gera ráð fyrir að á fimmta
tug þarlendra gætu verið smitaðir eft-
ir að annað kórónutilfelli landsins
kom upp í fyrradag. Maður á fertugs-
aldri veiktist þremur dögum eftir
heimkomu frá Norður-Ítalíu og liggur
nú á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í
Gautaborg. Kristina Nyström, dósent
í örverufræði við Háskólann í Stokk-
hólmi, hefur rannsakað sýni úr fyrri
sjúklingnum, sem greindist með veir-
una í Svíþjóð, og hyggst freista þess
með sjö manna teymi að framleiða
bóluefni gegn kórónuveirunni.
Í Finnlandi hafa einnig tvö smit-
tilfelli komið upp, það síðara í fyrra-
dag, og er þar um að ræða konu sem
var á ferð í Mílanó á Ítalíu skömmu
áður en hún veiktist. Asko Järvinen,
yfirlæknir við Háskólasjúkrahúsið í
Helsinki, sagði við finnska ríkis-
útvarpið YLE í fyrradag að sjúkra-
húsið væri mjög vel í stakk búið fyrir
átök við kórónuveiruna og teldi hann
ólíklegt að veiran næði að dreifa sér
að ráði í Finnlandi.
Hava eina avbjóðing
Í Færeyjum hefur Føroyska
sjúkrahúsverkið allt sem til þarf, ógni
kórónusmit samfélaginu þar. Fær-
eyska ríkisútvarpið KVF greindi frá
því í síðustu viku að nægar birgðir
andlitsgríma væru til, léki grunur á
smiti, eða „nógvar maskur at brúka,
um illgruni er um, at coronavirusið er
komið til Føroya,“ eins og útvarpið
greindi frá því.
Heilbrigðisráðherrann Kaj Leo
Holm Johannesen sagði í óundir-
búnum fyrirspurnatíma í Lögþinginu
á miðvikudagsmorgun að heilbrigðis-
yfirvöld væru vel undirbúin en fylgj-
ast þyrfti vel með þeim sem kæmu til
eyjanna, svo sem með skemmtiferða-
skipum. Hann sagði samfélagið
standa frammi fyrir áskorun sem
taka þyrfti af alvöru, „[...] vit hava
eina avbjóðing, sum vit skulu taka í
álvara,“ sagði ráðherrann.
Smituðum fjölgar
á Norðurlöndum
Kórónuveira í Evrópu
Frakkland
Bretland
Grikkland
Belgía
Danmörk
Þýskaland
Finnland
Svíþjóð
Eistland
Rússland
Spánn
Króatía
Rúmenía
Noregur
N. Makedónía
Sviss
tilfelli
27. febrúar
kl. 15
Ítalía
Heimildir: stjórnvöld viðkomandi ríkja
dauðsföll
2
14 andlát
Austurríki
17
18
26
528
15
Norska landlæknisembættið
biður almenning í landinu að
hringja ekki í neyðarnúmerið
113 til að leita sér upplýsinga
um kórónuveiruna, en símalín-
ur 113-vaktarinnar hafa verið
rauðglóandi undanfarið.
Númerið 113 er eitt þriggja
neyðarnúmera í Noregi og er
ætlað þeim sem þurfa sjúkra-
flutning og öðru bráðveiku
fólki. Johan Torgersen, deildar-
stjóri hjá landlæknisembætt-
inu, biður almenning að finna
hjá sér þá ábyrgðartilfinningu
að hringja ekki í 113 með al-
mennar fyrirspurnir um
kórónuveiru heldur hafa sam-
band við heimilislækni sinn
eða læknavakt.
Ekki hringja
hingað
113 Í NOREGI