Morgunblaðið - 28.02.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Tillaga að breytingu á
Aðalskipulagi Akraness 2005-2017
Tjaldsvæði við Kalmansvík
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar auglýsir hér með tillögu að
breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, samkvæmt
31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að afmarkað er svæði til sérstakra nota
O-16, sunnan Kalmansvíkur og norðan íbúðarbyggðar við
Esjubraut. Tjaldsvæðið er afmarkað sem afþreyingar- og
ferðamannasvæði. Íbúðasvæði Íb-21 norðan Kalmansvíkur
er minnkað úr 14 ha í 13 ha. Mörkum hverfisverndarsvæðis
Hv-1 er breytt og þau löguð að staðháttum.
Mörkin miðast nú við raskað land (sjóvarnargarð)
og stíga ofan fjörunnar í Kalmansvík.
Tillaga að nýju deiliskipulagi
við Kalmansvík
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. desember
2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi tjaldsvæðis við
Kalmansvík. skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðið liggur að stórum hluta að sjó, í suðaustur afmarkast
það af Kalmansbraut og til suðvesturs af lóðum við
Esjubraut. Tillagan fest í að skilgreina tjaldsvæði og gefa
kost á byggingu gistihýsa og stærri þjónustubyggingar.
Tjaldsvæðið er á jaðri hverfisverndarsvæðis og er hluti
nýs landnotkunarreits inn þess.
Tillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins
að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaup-
staðar frá og með 2. mars til og með 15. apríl 2020.
Tillagan er einnig til kynningar á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir / ábendingar við
tillögurnar til 15. apríl. Skila skal skriflegum athugasemdum
í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18,
eða á netfangið skipulag@akranes.is
Sigurður Páll Harðarson
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Morgunsagan kl. 11. Göngubretti,
æfingarhjól með leiðbeinanda kl. 12.30. Línudans kl. 13.30. Bókabíll-
inn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir
velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Hugvekja presta kl. 14.30, vöfflukaffi kl. 14.30, línudans kl. 15.
Dalbraut 27 Messa kl. 14 í parketsal, síðan messukaffi í bókastofu.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringboðið með kaffisopa og
spjalli kl. 8.50-11. Púslum saman kl. 9-16. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl.
10.15-11.20. Hæðargarðsbíó kl. 13. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Handaband kl. 13. Frjáls spilamenn-
ska kl. 13-16.30. Bingó kl. 13.30. Heitt á könnunni í setustofunni á 2.
hæð. Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í s. 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl.
14–17, allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 111 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjónakaffi kl.
10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Qigong kl. 10-11. Gönguhópur
um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing
kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist. ATH! Zumba hefst aftur þriðjudag-
inn 3. mars kl. 13.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Brids í handavinnustofu kl. 13. Bingó kl. 13.15. Verði
verkfall verður ekki hægt að kaupa mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9 Gönguhópur Korpúlfa kl. 10, gengið frá
Borgum og inni í Egilshöll, bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í dag og
hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Hið sívinsæla vöfflukaffi
kl. 14.30-15.30 í Borgum. Tréskurður í umsjón Davíðs kl. 13 á Korpúlfs-
stöðum. Skrautskriftarnámskeið með Þorvaldi kl. 13 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingó kl. 13.30. Uppl. í
síma 4112760.
Seltjarnarnes Kaffikrókur kl. 10.30. Leikfimi með Evu í salnum á
Skólabraut kl. 11, syngjum saman í salnum kl. 13. Spilað í króknum kl.
13.30 og brids í Eiðismýri kl. 13.30. Á morgun laugardag heldur dans-
inn áfram í dansskólanum Eiðistorgi kl. 14. Nýir nemendur velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, ÍSLENDINGASÖGUR, námskeið um Eyrbyggjasögu
kl. 10 og 13, umsjón Baldur Hafstað. Dansleikur Stangarhyl 4, sunnu-
dagskvöld 1. mars kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Hæstaréttardómar 1920 - 1966,
40 bindi, (120 þús) Fjámála-
tíðindi 1954 - 1974, 10 bindi,
Hagskýrslur Íslands 1914 - 1923,
4 bindi, Árbæku Espolins,
frumútgáfa, Egils saga 1809,
Kollsvíkurætt, Nýja Testamentið
1813, Nýjasta læknatalið 1, 2 og
3, lúið, Lögfræðingatal 1- 4,
Manntalið 1703, glæsiband með
kápum, Vesturfaraskrá, Ævisaga
Árna Þórainssonar 1- 6 gott
band. Íslensk bygging, Guðjón
Samúelsson, Skýrslur um lands-
hagi á Íslandi 1-5, Stafrófskver
handa börnum 1874, Eylenda 1-
2, Kötlugosið 1918, Ættir Austur-
Húnvetninga 1-4, Landsskjálftar
á Íslandi Þ.T.H., Veiðimaðurinn 1.
- 86. tbl. Skák, Heimsmeistara-
einvígið 1972, 1-23, Leikhúsmál
1940-1950, Líf og list, Svarf-
dælingar 1-2, Ættir Austfirðinga
1-9, Félagsblað Nýalssinna, Inn
til fjalla 1-3, Vestur-Skaftfell-
ingar 1-4, Gestur Vestfirðingur
1-5, Íslensk Myndlist 1-2, Úr
fylgsnum fyrri alda 1-2, Vestur-
Skaftafellssýsla og íbúar hennar,
Húspostilla 1-2, 1838, Sjúkra-
liðatal, Súgfirðingabók, Íslensk
þjóðlög 1974, Rit um jarðelda á
Íslandi M.L. 1880, 130 bindi
Stjórnartíðindi. Á torgi lífsins.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Ýmislegt
Ekki má hafna bónorði
á hlaupársdegi
því er 10% afsláttur á hringa-
pöntunum framá hlaupársdag. Opið
11-18 virka daga og 11- 15 nk.
laugardag.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775.
Úrvalið er á www.erna.is
Húsviðhald
» Smíðavinna
» Múrvinna
» Málningarvinna
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Síðan ég fékk
þær hörmulegu
fréttir að þú værir
dáin, elsku Ester,
hafa minningarnar stanslaust
streymt fram í hugann og
dásamlegar og dýrmætar eru
þær! Við vorum óaðskiljanlegar í
æsku, bjuggum hliðina hvor á
annarri og ólumst báðar upp hjá
ömmum okkar á Akranesi sem
voru líka bestu vinkonur. Þú hjá
Ester ömmu og ég hjá ömmu
Rögnu og deildum við þeim
bróðurlega og leit ég alltaf á
ömmu þína sem mína eigin og ég
veit að það átti líka við þig og
ömmu mína. Þegar ég hugsa um
æsku okkar og hversu gott og
gaman við höfðum það upplifi ég
dásamlega sælutilfinningu og ég
brosi ósjálfrátt út að eyrum. Öll
ástin sem umlék okkur úr öllum
áttum og frelsið til að vera úti
langt fram á kvöld var og er
ómetanlegt. Það er skrítið að
hugsa til þess að þið þrjár hafið
nú allar kvatt þessa jarðvist.
Við brölluðum margt saman,
vorum í prakkarafélaginu DD
eða Drullugir draugar þar sem
þú varst Sóði og ég Subbi og bár-
um við meira segja hálsmen með
stöfunum DD sem pabbi þinn gaf
okkur. Í því félagi hrekktum við
ýmsa aðila á Stillholtinu, hentum
meðal annars drullu í hvítan
þvott sem hékk úti á snúru, tók-
um ventla úr hjólum og svo ég
tali nú ekki um öll dyraötin. Allar
sumarbústaðarferðirnar koma
líka upp í hugann og þá sérstak-
lega þegar mamma mín var ólétt
að systur minni og við löbbuðum
í tíkallasíma oft á dag til að at-
huga hvort hún væri nú ekki að
fara að eiga. Þú varst svo inni-
lega spennt með mér enda brun-
aðir þú með okkur til Reykja-
víkur á fæðingardeildina þegar
hún lét loksins sjá sig.
Það var líka dásamlegt hversu
gott tak við höfðum á honum Alla
afa þínum en ef amma þín neitaði
okkur um eitthvað þá sá hann
Ester Ósk Liljan
Óskarsdóttir
✝ Ester Ósk Lilj-an Óskars-
dóttir fæddist 21.
febrúar 1982. Hún
lést 14. febrúar
2020.
Útförin fór fram
25. febrúar 2020.
aumur á okkur í
hvert skipti og lét
undan.
Ég leit alltaf svo
upp til þín, þú varst
ári eldri en ég og
mér fannst þú alltaf
svo sniðug og uppá-
tækjasöm. Í einn
mánuð á ári vorum
við „jafn gamlar“ og
montaði ég mig
óspart þennan mán-
uð að ég væri jafn gömul og þú.
Við vorum ekki nógu duglegar að
vera í sambandi á fullorðinsárun-
um en þegar leiðir okkar lágu
saman þá var alltaf eins og að við
hefðum bara hist síðast deginum
áður. Þú varst alltaf svo ánægð
þegar við hittumst og ég fann
hversu mikils virði vinátta okkar
var þér og hún var það svo
sannarlega líka í mínum huga og
hjarta, elsku Ester.
Hvíldu í Paradís, kæra vin-
kona.
Ragna Stefánsdóttir.
Elsku frænka mín. Orð eru
svo fátækleg þegar mann langar
að minnast góðrar manneskju og
þakka fyrir allt og allt og allt. Ég
er þakklát fyrir allar minning-
arnar sem við bjuggum til saman
og ég mun geyma þær í hjarta
mér um aldur og ævi.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Gangan með þér æviárin
okkur líður seint úr minni.
Við sem fellum tregatárin
trúum varla brottför þinni.
Þína leið til ljóssins bjarta
lýsi drottins verndarkraftur.
Með kærleiksorð í klökku hjarta
kveðjumst núna, sjáumst aftur.
(Hákon Aðalsteinsson)
Ég votta elsku Arnari Óla,
fjölskyldu þinni, vinum og öllum
sem elskuðu þig alla mína sam-
úð.
Hvíldu í friði, elsku Ester Ósk
mín. Þín
Kristín Edda.
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát