Morgunblaðið - 28.02.2020, Qupperneq 26
Á AKUREYRI
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Ísland er búið að tryggja sér verð-
laun í 2. deild B á HM kvenna í ís-
hokkí þegar ein umferð er eftir af
mótinu. Allir leikirnir eru spilaðir á
Akureyri og eftir vondan skell í
fyrsta leik hafa íslensku stelpurnar
valtað yfir hvern andstæðinginn á
fætur öðrum. Í fyrrakvöld vann Ís-
land Tyrki 6:0 en Morgunblaðið var
farið í prentun áður en þeim leik
lauk svo engin umfjöllun var um
hann í blaði gærdagsins.
Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði
þrennu gegn Tyrkjunum og er hún í
mikilli keppni um stigatitilinn á
mótinu en stig fást fyrir skoruð
mörk og stoðsendingar. Silvía Rán
hafði frekar hægt um sig í gær og
skoraði aðeins eitt mark. Hún er nú
með níu stig, fyrir sex mörk og þrjár
stoðsendingar. Ástralinn Michelle
Clark-Crumpton er með ellefu stig í
efsta sætinu.
Í gær voru það Króatar sem
fengu á baukinn en Ísland vann 7:0.
Ísland var í sókn allan leikinn en
framan af gekk illa að skapa góð
færi. Bæði var varnarmúr Króata
afar þéttur en svo var sóknarleikur
Íslands hægur og ómarkviss. Mark-
vörður Króata var líka vel vakandi
en Kolbrún María Garðarsdóttir sá
til þess að Ísland fór með forskot inn
í klefa eftir fyrsta leikhlutann. Hún
fann glufu á 17. mínútu og þrumaði
pökknum í markið af nokkuð löngu
færi. Seinni leikhlutarnir tveir voru
mun betur spilaðir og þá fjölgaði
mörkunum. Þrjú góð mörk bættust
við í næsta leikhluta. Skoruðu
Sunna Björgvinsdóttir, Hilma Bóel
Bergsdóttir og Silvía Rán mörkin. Í
lokaleikhlutanum komust nýir
markaskorarar á blað þar sem Sa-
rah Smiley, Kristín Ingadóttir og
Sigrún Árnadóttir skoruðu mörkin.
Sjö mörk og sjö markaskorarar.
7:0 varð niðurstaðan en Ísland átti
sjálfsagt um 100 skot að marki í
leiknum og um 60 þeirra fóru á
rammann. Króatinn Petra Mlin-
arevic varði haug af skotum og var
langbesti maður vallarins.
Leikmenn Íslands virkuðu nokkuð
þreyttir enda liðið að spila fjórða
leik sinn á fimm dögum. Mesti kraft-
urinn var í Kolbrúnu Maríu Garð-
arsdóttir og hefur verið einna
skemmtilegast að fylgjast með henni
á mótinu. Þar fer leikmaður sem er
fullur af orku og einbeitingu, fljótur,
sterkur og leikinn. Var Kolbrún út-
nefnd besti leikmaður Íslands í
leiknum.
Lokaumferðin verður leikin á
morgun og þá spilar Ísland við
Úkraínu kl. 17. Ástralía, Ísland og
Nýja-Sjáland eru búin að tryggja
sér þrjú efstu sætin og líklegast þyk-
ir að Ísland fái silfurverðlaunin.
Ástralía og Nýja-Sjáland mætast í
hreinum úrslitaleik þar sem Nýsjá-
lendingar verða að vinna stórsigur.
Sjö mörk og
sjö markaskor-
arar Íslands
Ísland fær verðlaun á heimavelli
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Læti Það urðu læti þegar Ísland og Króatía mættust á Akureyri í gær.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Evrópudeild UEFA
32ja liða úrslit, seinni leikir:
Celtic – FC Köbenhavn ........................... 1:3
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með
FC Köbenhavn.
FCK áfram, 4:2 samanlagt.
Malmö – Wolfsburg ................................. 0:3
Arnór Ingvi Traustason lék ekki með
Malmö vegna meiðsla.
Wolfsburg áfram, 5:1 samanlagt.
Basel – APOEL ........................................ 1:0
Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í
leikmannahópi APOEL.
Basel áfram, 4:0 samanlagt.
LASK Linz – AZ Alkmaar ...................... 2:0
Albert Guðmundsson hjá AZ er frá
keppni vegna meiðsla.
LASK áfram, 3:1 samanlagt.
Espanyol – Wolves ................................... 3:2
Wolves áfram, 6:3 samanlagt.
Porto – Bayer Leverkusen ...................... 1:3
Leverkusen áfram, 5:2 samanlagt.
Gent – Roma ............................................. 1:1
Roma áfram, 2:1 samanlagt.
Istanbul Basak. – Sporting Lissabon..... 4:1
Istanbul Basaksehir áfram eftir fram-
lengingu, 5:4 samanlagt.
Ajax – Getafe ............................................ 2:1
Getafe áfram, 3:2 samanlagt.
Arsenal – Olympiakos.............................. 1:2
Olympiakos áfram á útimörkum eftir
framlengingu, 2:2 samanlagt.
Benfica – Shakhtar Donetsk ................... 3:3
Shakhtar áfram, 5:4 samanlagt.
Inter Mílanó – Ludogorets...................... 2:1
Inter áfram, 4:1 samanlagt.
Manchester United – Club Brugge ........ 5:0
Man. Utd áfram, 6:1 samanlagt.
Salzburg – Eintracht Frankfurt...... frestað
Vegna veðurs, leikið í dag..
Sevilla – CFR Cluj ................................... 0:0
Sevilla áfram, 1:1 samanlagt.
Katar
Al-Sadd – Al-Arabi .................................. 1:1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið, sem er í fimmta sæti.
Meistaradeild N/M-Ameríku
16-liða úrslit, seinni leikur:
New York City – San Carlos .................. 1:0
Guðmundur Þórarinsson var ekki í hópi
New York, sem sigraði 6:3 samanlagt.
1. deild karla
Breiðablik – Sindri ............................... 96:78
Selfoss – Skallagrímur......................... 82:80
Staðan:
Höttur 19 17 2 1664:1408 34
Hamar 19 17 2 1872:1648 34
Breiðablik 20 16 4 1978:1678 32
Vestri 17 10 7 1498:1372 20
Álftanes 20 10 10 1702:1744 20
Selfoss 19 8 11 1476:1533 16
Skallagrimur 20 3 17 1616:1873 6
Sindri 17 2 15 1370:1578 4
Snæfell 19 2 17 1514:1856 4
Evrópudeildin
Alba Berlín – Anadolu Efes................ 86:99
Martin Hermannsson skoraði 10 stig
fyrir Alba, átti 8 stoðsendingar og tók 2 frá-
köst. Hann lék í 24 mínútur.
Anadolu Efes 23/3, Real Madrid 20/6,
Barcelona 20/6, Maccabi Tel Aviv 18/8,
CSKA Moskva 17/9, Panathinaikos 14/12,
Valencia 12/13, Khimki Moskva 11/14,
Fenerbahce 11/14, Olimpia Milano 11/14,
Olympiacos 11/15, Zalgiris Kaunas 10/15,
Baskonia 10/16, Rauða stjarnan 10/16,
Lyon 9/16, Alba Berlín 9/17, Bayern
München 8/18, Zenit Pétursborg 7/19.
NBA-deildin
Charlotte – New York...................... 107:101
Cleveland – Philadelphia ................... 108:94
Washington – Brooklyn ................... 110:106
Miami – Minnesota........................... 126:129
Atlanta – Orlando ............................. 120:130
Houston – Memphis ......................... 140:112
San Antonio – Dallas ........................ 103:109
Phoenix – LA Clippers....................... 92:102
Utah – Boston ................................... 103:114
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Höllin Ak.: Þór Ak. – Valur U ............. 19.30
Dalhús: Fjölnir U – Víkingur .............. 19.45
Hertz-höllin: Grótta – KA U..................... 20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – HK U .................... 18
Kaplakriki: FH – Selfoss ..................... 19.30
Víkin: Víkingur – ÍBV U........................... 20
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Stykkishólmur: Snæfell – Höttur ....... 19.15
Ísafjörður: Vestri – Hamar ................. 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Víkingsv.: Víkingur R. – Fylkir................ 19
Egilshöll: Leiknir R. – Afturelding ......... 19
Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍA ........ 19.15
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Samsung-völlur: Stjarnan – Valur...... 19.15
Í KVÖLD!
Martin Hermannsson var sterkur
hjá þýska liðinu Alba Berlín er það
varð að sætta sig við 86:99-tap fyrir
Anadolu Efes frá Tyrklandi í Evr-
ópudeildinni í körfubolta í gær-
kvöld, sterkustu deild Evrópu. Mart-
in var stigahæstur í sínu liði með 19
stig og þá gaf hann átta stoðsend-
ingar, eins og Luke Sikma, og voru
þeir með flestar stoðsendingar hjá
þýska liðinu. Martin tók einnig tvö
fráköst. Martin og félagar eru í 15.
sæti deildarinnar með 9 sigra og 17
töp. Anadolu Efes er í toppsætinu
með 23 sigra og 3 töp.
Með stórleik
gegn toppliðinu
Ljósmynd/Euroleague
Bestur Martin Hermannsson var
besti leikmaður Alba Berlín.
Lemgo vann góðan 32:27-heima-
sigur á Wetzlar í þýsku 1. deildinni í
handbolta í gærkvöld. Bjarki Már
Elísson skoraði fimm mörk fyrir
Lemgo og Viggó Kristjánsson gerði
tvö mörk fyrir Wetzlar. Lemgo er
búið að vinna fjóra leiki og gera eitt
jafntefli í fimm leikjum á árinu.
Bjarki hefur nú skorað 194 mörk á
tímabilinu og er hann markahæstur
allra í deildinni. Lærisveinar Geirs
Sveinssonar í Nordhorn unnu
gríðarlega óvæntan 32:30-útisigur á
Füchse Berlin, en Nordhorn var að
vinna annan sigur sinn á leiktíðinni.
Markahæstur og
á mikilli siglingu
Ljósmynd/@tbvlemgolippe
Sigurganga Bjarki Már Elísson og
Lemgo eru á sigurbraut.
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ragnar Sigurðsson verður eini Ís-
lendingurinn í 16-liða úrslitum Evr-
ópudeildarinnar í fótbolta eftir
frækinn sigur hans og liðsfélaga
hans í FC Kaupmannahöfn á Celtic
á útivelli í 32-liða úrslitunum í gær-
kvöldi. Lokatölur í gær urðu 3:1 og
samanlögð niðurstaða í einvíginu
4:2. Ragnar slapp með skrekkinn
því hann fékk dæmda á sig hendi
inni í vítateig og Celtic jafnaði í 1:1
í kjölfarið á 83. mínútu. Danska lið-
ið skoraði hins vegar tvö mörk á
lokakaflanum og fór áfram.
Manchester United fór auðveld-
lega áfram með 5:0-sigri á heima-
velli gegn Club Brugge. Simon Deli
hjá Brugge fékk beint rautt spjald á
22. mínútu og United fékk víti í
kjölfarið sem Bruno Fernandes
skoraði úr. Eftirleikurinn var auð-
veldur hjá lærisveinum Ole Gunn-
ars Solskjær. Fernandes hefur gef-
ið United mikinn kraft síðan hann
kom til félagsins frá Sporting í
Portúgal í janúar. Miðað við þau lið
sem eftir eru hljóta United-menn að
gera sér vonir um að fara alla leið í
ár.
Arsenal, sem tapaði í úrslitum
fyrir Chelsea á síðustu leiktíð, er úr
leik eftir 1:2-tap fyrir Olympiakos á
heimavelli eftir framlengingu. Ars-
enal vann fyrri leikinn í Grikklandi
og komst áfram í framlengingu, en
þrátt fyrir það var það Olympiakos
sem fagnaði sigri eftir að Youssef
El Arabi skoraði sigurmark á 119.
mínútu.
Þrjú Íslendingalið féllu úr leik í
gær, en þó öll án Íslendinga. Björn
Bergmann Sigurðarson var ekki í
leikmannahópi APOEL sem féll úr
leik gegn Basel. Albert Guðmunds-
son og Arnór Ingvi Traustason
voru svo fjarverandi vegna meiðsla.
Liðsfélagar Alberts í AZ Alkmaar
töpuðu fyrir LASK og Arnór Ingvi
horfði á liðsfélaga sína í Malmö
tapa fyrir Wolfsburg.
Ragnar slapp með skrekkinn
AFP
Tilfinningar Leikmenn Manchester United fagna kátir á meðan Simon Mignolet í marki Club Brugge er svekktur.
Fékk á sig víti en fór áfram Auðvelt hjá United Arsenal fallið úr leik