Morgunblaðið - 28.02.2020, Síða 27
KÓRÓNUVEIRAN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Við fylgjumst auðvitað bara grannt
með aðstæðum og framvindu mála,“
sagði Guðni Bergsson, formaður
KSÍ, í samtali við Morgunblaðið í
gær þegar hann var spurður út í kór-
ónuveirufaraldurinn sem nú geisar
meðal annars á Ítalíu og hvaða áhrif
hann hefur á íslenskan fótbolta.
Íslenska karlalandsliðið mætir
Rúmeníu í umspilsleik um laust sæti
á EM 2020 á Laugardalsvelli þann
26. mars næstkomandi. Birkir
Bjarnason og Emil Hallfreðsson
hafa báðir verið lykilmenn í landslið-
inu undanfarin ár en þeir spila báðir
á Ítalíu. Þar hefur mörgum knatt-
spyrnuleikjum verið frestað vegna
kórónuveirunnar en í gær höfðu ná-
lægt 500 manns smitast í landinu og
þar af voru tólf látnir.
„Við fylgjumst vel með því sem er
að gerast á meginlandi Evrópu og
svo auðvitað bara því sem er að ger-
ast hér á Íslandi í tengslum við veir-
una. Við munum virða tilmæli og
fyrirmæli stjórnvalda þegar nær
dregur umspilsleikjunum og auðvit-
að vonumst við til þess að málin þró-
ist í rétta átt. Að sjálfsögðu vonumst
við til þess að allir leikmenn Íslands
verði tilbúnir fyrir þennan tiltekna
leik og ég á ekki von á neinu öðru.
Eftir því sem maður best veit þá eru
aðstæður að breytast núna með
hverri vikunni sem líður. Við höldum
áfram að fylgjast vel með og munum
gera allar þær ráðstafanir sem við
þurfum til þess að bæði spila þá leiki
sem eiga að fara fram og eins nota
alla þá leikmenn sem okkur standa
til boða.“
Í gær greindi KSÍ frá því að Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir gæti ekki
ferðast með kvennalandsliðinu á æf-
ingamót á Spáni í byrjun mars þar
sem hún fær ekki ferðaleyfi vegna
kórónuveirunnar en hún spilar með
AC Milan á Spáni.
„Það var AC Milan sem tók fyrir
það á endanum að hún myndi ferðast
til Spánar en aðstæðurnar voru erf-
iðar fyrir okkur líka. Miðað við þau
fyrirmæli sem hafa verið gefin út
hérlendis þá hefur fólk sem er að
koma frá þessum smitsvæðum verið
beðið um að halda
sig afsíðis í tvær
vikur við komuna
til landsins. Við
vorum búin að
velta þessu þó-
nokkuð fyrir okk-
ur en að lokum
var það ítalska fé-
lagið sem tók
lokaákvörðun um
að Berglind ætti
ekki heimagengt í leikinn og ég held
satt best að segja að það hafi verið
það skynsamlegasta í stöðunni.
Vissulega hefði verið gaman að fá
hana í þetta verkefni en aðstæður
eru eins og þær eru og við verðum
bara að virða það.“
Hægir vonandi á sér fyrir EM
EM í knattspyrnu fer fram um
alla Evrópu dagana 12. júní til 12.
júlí en Guðni vonast að sjálfsögðu til
þess að mótinu verði ekki frestað
vegna veirunnar en nú þegar hefur
það komið til tals að fresta Ólympíu-
leikunum í Tókýó sem fara eiga fram
í Japan í júlí og ágúst.
„Menn eru auðvitað byrjaðir að
ræða sumarið á ýmsum vettvangi,
ekki bara stjórnvöld og heilbrigðis-
stofnanir heldur líka fólk innan
íþróttahreyfingarinnar. Það er verið
að spila kappleiki fyrir luktum dyr-
um á Ítalíu sem dæmi þannig að
staðan er alvarleg. Það er erfitt að
svara einhverjum spurningum um
framhaldið á þessum tiltekna tíma-
punkti því þetta er eitthvað sem þarf
bara að koma betur í ljós þegar nær
dregur sumri. Það mun þá eins koma
í ljós til hvaða ráðstafana þarf að
grípa ef allt fer á versta veg en auð-
vitað vonar maður að veiran verði
búin að hægja eitthvað á sér á þess-
um tíma.
Við munum halda áfram að fylgj-
ast grannt með gangi mála eins og
önnur knattspyrnusambönd eru að
gera. Ég trúi því og vona að sjálf-
sögðu að Evrópumótinu verði ekki
frestað en þegar allt kemur til alls þá
eru íþróttir til þess fallnar að
skemmta okkur og öðrum. Ef veiran
ógnar öryggi fólks og heilsu þá er
það auðvitað mikilvægasti útgangs-
punkturinn í þessu og eitthvað sem
þarf að taka lokaákvörðun út frá,“
sagði Guðni við Morgunblaðið.
Aðstæður breytast í hverri viku
Guðni Bergsson segir að KSÍ fylgist grannt með veirunni og muni fylgja öllum tilmælum
Guðni
Bergsson
ÍTALÍA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Tíu Íslendingar leika um þessar
mundir með ítölskum knattspyrnu-
liðum og níu þeirra búa í norðurhér-
uðum Ítalíu þar sem kórónuveiran
hefur geisað harðast að und-
anförnu.
Flest þeirra hafa leikið með hin-
um ýmsu íslensku landsliðum og
hætta er á að þau geti ekki leikið
fyrir Íslands hönd á næstunni
vegna öryggisráðstafana sem gerð-
ar hafa verið og eiga mögulega eftir
að vera gerðar vegna veirunnar.
Eins og fram kom í fréttum í gær
getur Berglind Björg Þorvalds-
dóttir ekki farið til móts við íslenska
landsliðið sem tekur þátt í Pinetar-
mótinu á Spáni 4. til 10. mars. Hún
leikur með AC Milan, sem er frá
borginni Mílanó í miðju Lombardy-
héraði (Langbarðalandi) og tveimur
síðustu leikjum liðs hennar hefur
verið frestað vegna veirunnar.
Berglind hefði þurft að vera hálf-
an mánuð í sóttkví áður en hún
hefði komið til móts við landsliðið.
Andrea Mist Pálsdóttir, sem leik-
ur með Orobica frá Bergamo á
Norður-Ítalíu, var ekki í þessum
landsliðshópi en hefði verið á sama
stað og Berglind. Leikjum hjá
henni hefur ekki verið frestað enn
sem komið er og nú er komið hlé á
ítölsku kvennadeildinni til 21. mars.
Þá leikur markvörðurinn Selma Líf
Hlífarsdóttir með Napoli í B-
deildinni en hún er utan hættu-
svæðisins sunnar í landinu.
Birkir Bjarnason og Emil Hall-
freðsson hafa verið fastamenn í A-
landsliðinu sem leikur gegn Rúm-
eníu á Laugardalsvellinum 26. mars
í umspilinu fyrir EM. Þeirra lið,
Brescia og Padova, eru bæði á
Norður-Ítalíu og tveimur leikjum
hjá Emil hefur verið frestað.
Ef sömu sóttvarnareglur gilda
áfram þyrftu Emil og Birkir að vera
komnir til Íslands í síðasta lagi 12.
mars til að eiga möguleika á að taka
þátt í leiknum.
Sveinn Aron Guðjohnsen leikur
með Spezia sem er í Lígúríu-héraði
þar sem veirunnar hefur orðið vart.
Hann leikur með 21-árs landsliði Ís-
lands sem á að spila gegn Írlandi og
Armeníu 26. og 31. mars. Þátttaka
Sveins í þeim leikjum gæti verið í
hættu.
Fjórir piltar á aldrinum 16 til 18
ára leika með liðum í norðurhluta
Ítalíu. Andri Fannar Baldursson er
farinn að spila með aðalliði Bologna,
Ari Sigurpálsson er þar í unglinga-
liði og með unglingaliði SPAL leika
Mikael Egill Ellertsson og Anton
Logi Lúðvíksson.
Þeir Mikael og Andri eru fæddir
2002 og eru báðir í U19 ára landsliði
Íslands sem á einmitt að leika í milli-
riðli Evrópukeppninnar í Veneto-
héraði á Norður-Ítalíu gegn Noregi,
Ítalíu og Slóveníu dagana 25. til 31.
mars. Ari og Anton Logi eru árinu
yngri, fæddir 2003, og hafa spilað
með U17 ára landsliðinu en gætu
mögulega verið í hópnum. UEFA
mun gefa út nánari upplýsingar
varðandi milliriðilinn og mögulegt
mótshald á Ítalíu um eða eftir
helgina.
Að sjálfsögðu munu fleiri landslið
en þau íslensku verða fyrir barðinu á
kórónuveirunni, enda ekki fyrirséð
hvernig staðan verður á útbreiðslu
hennar seinnipart marsmánaðar.
Hvað Ítalíu varðar þá leika fjöl-
margir landsliðsmenn ýmissa þjóða í
deildunum þar í landi og þar á meðal
þrír Rúmenar sem hafa leikið með
sínu landsliði á undanförnum mán-
uðum. Þeir spila með Perugia,
Parma og Sassuolo, og gætu því
misst af leiknum á Laugardalsvelli.
Tíu íslensk spila á Ítalíu
Níu þeirra í norðurhéruðunum þar sem kórónuveiran geisar Getur haft
áhrif á þátttöku margra í landsleikjum Berglind Björg fer ekki til Spánar
Morgunblaðið/Eggert
Brescia Birkir Bjarnason leikur og
býr í Lombardo-héraði.
Mílanó
Padova
Brescia
Bologna
La Spezia
Ferrara
Bergamo
Napoli
Íslendingar með félagsliðum á Ítalíu
Andri Fannar Baldursson
og Ari Sigurpálsson
Bologna (Emilia-Romagna)
Mikael Egill Ellertsson
og Anton Logi Lúðvíksson
SPAL (Emilia-Romagna)
Berglind Björg
Þorvaldsdóttir
AC Milan (Lombardy)
Leikmenn
Félagslið (hérað)
Emil Hallfreðsson
Padova (Veneto)
Birkir Bjarnason
Brescia (Lombardy)
Sveinn Aron Guðjohnsen
Spezia (Liguria)
Andrea Mist Pálsdóttir
Orobica (Lombardy)
Selma Líf Hlífarsdóttir
Napoli (Campania)SKÝRINGAR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Padova Emil Hallfreðsson leikur og
býr í Veneto-héraði.
Morgunblaðið/Eggert
Mílanó Berglind Björg Þorvalds-
dóttir fer ekki til Spánar.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta
hringinn á NSW Open golfmótinu í
Ástralíu í fyrrinótt á pari, 72 höggum,
og var þar með í 22.-39. sæti að
hringnum loknum. Guðrún Brá Björg-
vinsdóttir lék hins vegar á 77 höggum,
fimm yfir pari, og var í 96.-112. sæti af
156 keppendum. Þær léku annan
hringinn í nótt og á mbl.is/sport/golf
má sjá hvernig þeim gekk og hvort
þeim tókst að komast í gegnum niður-
skurðinn á mótinu en þetta er annað
mót tímabilsins á Evrópumótaröðinni.
Jóhann Berg Guðmundsson verður
ekki með Burnley gegn Newcastle í
ensku úrvalsdeildinni á morgun. Sean
Dyche, knattspyrnustjóri Burnley,
sagði á fréttamannafundi í gær að
smá bakslag hefði komið upp hjá Jó-
hanni og það myndi tefja hann um ein-
hverja daga. Jóhann var í hópi gegn
Bournemouth um síðustu helgi, í
fyrsta sinn síðan hann meiddist í
bikarleik 4. janúar.
Selfyssingurinn Teitur Örn Einars-
son var í miklu stuði í 30:16-sigri
Kristianstad á Guif á heimavelli í
sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í
gærkvöld. Teitur skoraði níu mörk og
var markahæstur allra. Ólafur Andrés
Guðmundsson skoraði eitt mark.
Kristianstad hefur verið á mikilli sigl-
ingu undanfarið og er liðið í þriðja sæti
deildarinnar með 40 stig eftir 27 leiki.
Ágúst Elí Björgvinsson varði eitt skot
fyrir meistara Sävehof í 25:28-
heimatapi fyrir Ystads IF.
Handknattleiksfólkið Sunna Jóns-
dóttir og Fannar Þór Friðgeirsson
framlengdi í gær samninga sína við
ÍBV um tvö ár. Komu þau bæði til fé-
lagsins fyrir tveimur árum og eru lykil-
menn í Vestmannaeyjum.
Eitt
ogannað
Grill 66 deild karla
FH U – Þróttur..................................... 24:31
Staðan:
Þór Ak. 14 12 2 0 432:359 26
Haukar U 14 9 1 4 417:370 19
Valur U 14 8 2 4 408:398 18
Grótta 14 8 1 5 408:387 17
Þróttur 15 7 2 6 444:416 16
FH U 15 7 1 7 448:435 15
Víkingur 14 6 1 7 381:387 13
KA U 14 4 1 9 403:432 9
Fjölnir U 14 2 1 11 346:412 5
Stjarnan U 14 1 2 11 353:444 4
Þýskaland
Lemgo – Wetzlar ................................. 32:27
Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir
Lemgo.
Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir
Wetzlar.
Melsungen – Bergischer..................... 28:25
Guðmundur Þ. Guðmundsson tekur við
þjálfun Melsungen í dag.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 1.
Balingen – Magdeburg ....................... 32:34
Oddur Gretarsson skoraði 2 mörk fyrir
Balingen.
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Magde-
burg er frá keppni vegna meiðsla.
Füchse Berlín – Nordhorn ................. 30:32
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Frakkland
Nantes – París SG................................ 29:29
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk
fyrir PSG.
Svíþjóð
Kristianstad – Guif.............................. 30:16
Teitur Örn Einarsson skoraði 9 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 1.
Sävehof – Ystad IF .............................. 25:28
Ágúst Elí Björgvinsson varði eitt skot í
marki Sävehof.