Morgunblaðið - 28.02.2020, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2020
Ævintýri Carlos Collodium spýtustrákinnGosa hefur notið fá-dæma vinsælda frá
því það birtist fyrst á prenti á árunum
1881-83. Mun það hafa verið þýtt á
um 300 tungumál, gerðar hafa verið
fjölmargar kvikmyndir sem byggja á
sögunni, þar sem teiknimynd Disneys
frá 1940 er tvímælalaust þeirra fræg-
ust, auk þess sem ævintýrið hefur
reglulega ratað á svið. Sem dæmi má
nefna að Leikhópurinn Lotta setti
upp eigin leikgerð á Gosa sumarið
2018 og veturinn 2007 sýndi Borg-
arleikhúsið nýjan söngleik um spýt-
ustrákinn.
Efniviður ævintýrsins er marg-
brotinn og fantasían skemmtileg, auk
þess sem áhugavert er að skoða
þyngri undirtón verksins sem snýr að
fátækt, arðráni og kúgun. Í grunninn
er Gosi þó fyrst og fremst þroskasaga
þar sem spýtustráknum lærist að til-
veran snýst ekki einvörðungu um eig-
in hag, hagnað og skemmtun, heldur
um samveruna með þeim sem okkur
þykir vænt um. Mennskan felst nefni-
lega í mannúðinni, hugrekkinu, heið-
arleikanum og ósérdrægninni.
Í samvinnu við Karl Ágúst Úlfsson
og leikhópinn leitar Ágústa Skúla-
dóttir leikstjóri beint í frumgerð
Collodis í leikgerðarvinnu sinni. Stikl-
að er á stóru í ævintýrinu, enda rúm-
ast sýningin á aðeins 90 mínútum
með hléi, en vel er valið. Dregið er úr
óhugnaði sögunnar með aðstoð húm-
ors, eins og þegar kötturinn missir
aðra loppu sína í viðureign við Gosa
og Halldór Gylfason leikur blóðgus-
urnar leikhúsgestum til skemmtunar.
Áhorfendur njóta þess að sjá
hvernig Jafet smíðar spýtustrákinn
Gosa úr talandi trédrumbi sem hleyp-
ur stjórnlaust af stað um leið og Jafet
hefur kennt honum að ganga. Við
sjáum hvernig Gosi hrífst af brúðu-
leikhúsinu og skiptir á leikhúsmiða
fyrir stafrófskverið sem Jafet keypti
dýrum dómi fyrir vetrarjakka sinn
svo Gosi gæti gengið menntaveginn.
Samskipti Gosa við refinn og köttinn
sem hafa af honum gullpeninga með
klækjum eru sorglega fyndin og
kenningin sem bláa dísin veitir hon-
um fyrir að ljúga frábærlega útfærð.
Þroskinn sem Gosi öðlast í hlekkjum
á bóndabænum opnar augu hans fyrir
mikilvægi þess að snúa til betri vegar
með heiðarleika og samviskusemi að
leiðarljósi, en í framhaldinu velur
Gosi að sækja skóla þar sem hann
reynist góður nemandi. Mikilvægasta
þroskaskrefið birtist hins vegar þeg-
ar Gosi ákveður að leggja allt í söl-
urnar til að bjarga Jafeti sem fastur
er í maga stóra hundfisksins.
Aðeins fimm þátttakendur segja
söguna og bregða sér öll í fjölmörg
hlutverk, nema Haraldur Ari Stef-
ánsson sem leikur titilhlutverkið.
Undir styrkri og hugmyndaríkri
stjórn Ágústu blómstrar frásagnar-
leikhúsið í Gosa. Leikararnir stökkva
léttilega inn og út úr hlutverkum sín-
um og ávarpa áhorfendur, sem dreg-
ur okkur enn betur inn í frásögnina.
Þrátt fyrir að mikið gangi á á sviðinu
og hættur steðji að einkennist and-
rúmsloft sýningarinnar ávallt af létt-
leika og hlýju, sem skilar sér í góðri
hlustun áhorfenda, sem voru á frum-
sýningunni allt frá fjögurra ára aldri.
Tónlist Eiríks Stephensen og
Eyvindar Karlssonar við afbragðs
söngtexta Karls Ágústs leikur stórt
hlutverk. Leikhópurinn brestur
reglulega í söng og miðlar bæði til-
finningum persóna og framvindu á
skemmtilega lifandi hátt. Gaman var
líka að fylgjast með því hvernig
Eiríkur og Eyvindur framkölluðu hin
ýmsu leikhljóð á hljóðfæragallerí sitt.
Umgjörðin öll er mikið sjónarspil.
Frábæru myndefni Elmars Þórarins-
sonar er varpað á tjald úr hvítum
strimlum, sem gerir það að verkum
að leikendur geta auðveldlega stokkið
inn og út úr senum og ýmist setið í
fangelsi eða synt í sjónum. Búningar
Þórunnar Maríu Jónsdóttur eru
mikið fyrir augað hvort heldur er
töfrandi kjóll bláu dísarinnar sem
lýsir í myrkri, frábær útfærslan á
brúðunum Hallikinn og Pulsupinn
sem bornir eru á herðum smávax-
inna manna í brúðuleikhúsinu eða
hugvitsamleg lausnin á gervi spýtu-
stráksins. Grímur Elínar S. Gísla-
dóttur gerðu mikið fyrir persónu-
galleríið og leikgervi Þórunnar
Maríu og Guðbjargar Ívarsdóttur
voru til fyrirmyndar. Lýsing Þórðar
Orra Péturssonar studdi vel við
stemninguna hverju sinni, sem og
hljóðmynd Þorbjörns Steingríms-
sonar.
Sem fyrr segir skiptu leikararnir
fimm með sér fjölda hlutverka. Ei-
ríkur Stephensen var góður sem
snikkarinn Kirsir og skemmtileg
ugla. Eyvindur Karlsson var
mynduglegur í hlutverki eldgleyp-
isins í brúðuleikhúsinu, góður hrafn
og ákveðinn hænsnabóndi. Halldór
Gylfason skapaði skemmtilegan
Jafet sem í upphafi sýningar var
uppstökkur en mýktist þegar á leið í
föðurhlutverkinu. Auðvelt var að
finna til með Jafet þegar hann sökum
fátæktar átti ekkert nema eina peru
að bjóða svöngum syni sínum eða
þegar hann reyndi árangurslaust að
innræta spýtustráknum góða siði.
Halldór var reffileg krybba og
skemmtilega aumkunarverður ræn-
ingjaköttur.
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
hreinlega blómstrar í sýningunni.
Hún nýtur sín vel sem sögumaður,
geislar í hlutverki bláu dísarinnar
þar sem hún syngur líka eins og eng-
ill, er skemmtilega lymskufullur ref-
ur og dásamlegur Pulsupinn á móti
Halldóri sem Hallikinn. Samleikur
Kötlu og Halldórs var fyrsta flokks.
Haraldur Ari Stefánsson fær það
vandasama hlutverk að túlka Gosa,
sem er ekkert sérstaklega við-
kunnanlegur framan af meðan hann
hugsar fyrst og fremst um sjálfan
sig. En í meðförum Haraldar varð
þroskaferli spýtustráksins bæði trú-
verðugt og áhugavert svo að áhorf-
endur gátu ekki annað en samglaðst
Gosa þegar hann loks varð
mennskur.
Gosi er allt í senn falleg, fyndin og
töfrandi sýning sem enginn leikhús-
unnandi ætti að láta framhjá sér
fara.
Mennskan felst í mannúðinni
Ljósmyndun/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson
Töfrandi „Gosi er allt í senn falleg, fyndin og töfrandi sýning sem enginn
leikhúsunnandi ætti að láta framhjá sér fara,“ segir í rýni um Gosa.
Borgarleikhúsið
Gosi bbbbm
Eftir Carlo Collodi. Leikgerð: Ágústa
Skúladóttir, Karl Ágúst Úlfsson og leik-
hópurinn. Íslensk þýðing: Þorsteinn
Thorarensen. Leikstjórn: Ágústa Skúla-
dóttir. Söngtextar: Karl Ágúst Úlafsson.
Leikmynd og búningar: Þórunn María
Jónsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Péturs-
son. Tónlist: Eiríkur Stephensen og
Eyvindur Karlsson. Hljóð: Þorbjörn
Steingrímsson. Leikgervi: Þórunn María
Jónsdóttir og Guðbjörg Ívarsdóttir.
Grímugerð: Elín S. Gísladóttir. Mynd-
band: Elmar Þórarinsson. Leikarar:
Eiríkur Stephensen, Eyvindur Karlsson,
Halldór Gylfason, Haraldur Ari Stefáns-
son og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.
Frumsýning á Litla sviði Borgarleik-
hússins sunnudaginn 23. febrúar 2020.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Brynhildur Guðjónsdóttir, leik-
hússtjóri Borgarleikhússins, mun
leikstýra Makbeð eftir William
Shakespeare sem áætlað er að
frumsýna á Stóra sviði Borgarleik-
hússins haustið 2021. Brynhildur
vann Grímuverðlaunin sem leik-
stjóri ársins árið 2019 fyrir upp-
færslu sína á Ríkharði III eftir
Shakespeare. „Ég er mjög spennt
fyrir því að halda áfram á þeirri
vegferð sem ég hef verið á sem leik-
stjóri, að vinna með texta og verk
klassísku leikskáldanna,“ segir
Brynhildur, sem síðast leikstýrði
Vanja frænda eftir Anton Tsjekhov
sem er enn í sýningu í Borgarleik-
húsinu. „Við lögðum upp með að
fara óhefðbundnar leiðir með Rík-
harð III og hugmyndin er að gera
slíkt hið sama með Makbeð.“
Morgunblaðið/Eggert
Leikstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir.
Leikstýrir Makbeð
Nemendur
Menntaskóla í
tónlist halda
þjóðlagatónleika
á sunnudaginn
kemur kl. 17 í
hátíðarsal FÍH að
Rauðagerði 27.
Tónlistarstjórn
er í höndum
Ragnheiðar
Gröndal og
Ásgeirs Ásgeirssonar, sem völdu
lögin sem óma. „Í æfingaferlinu
voru nemendur hvattir til að nálgast
lögin út frá eigin tilfinningu, því
þannig eru þjóðlög. Þau eru okkar
allra og hver og einn getur nálgast
þau í gegnum sína eigin rödd,“ segir
í tilkynningu. Fjórtán söngvarar og
fimm manna hljómsveit flytur lögin.
Miðar eru seldir við innganginn og
er miðaverð 1.000 kr.
Heyri ég hljóm
Ragnheiður
Gröndal
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
WHAT YOU CAN’T SEE
CAN HURT YOU
ELISABETH MOSS
FEBRUARY 28
T H E
INV I S I B LE
MAN
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell
ADifferent Kind of Disaster Movie.
★★★★★
Rás 2
★★★★★
FBL
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3
BESTA KVIKMYNDATAKAN
BESTA MYNDIN
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN4