Morgunblaðið - 10.03.2020, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 59. tölublað 108. árgangur
EIGUM GÓÐA
MÖGULEIKA
Á SÆTI Á HM
NETÖRYGGI
MÆLIST MIKIÐ
HÉRLENDIS
FJÖLMENNING
Á́ SVIÐI OG ÍS-
LAND PÓLERAÐ
ÍSLAND Í 5. SÆTI 14 LEIKSÝNING PÁLÍNU 28MÆTUM SVISS 27
Betolvex
Fæst án
lyfseðils
1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur
Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin
(B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti
og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/
fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag.
Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið
vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja-
fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp-
lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
B-12
A
c
ta
v
is
9
1
4
0
3
2
Hlutabréfamarkaðir um allan heim
féllu skarpt í gær vegna falls á verði
hráolíu á heimsmarkaði. Lækkunin
er rakin til ótta fjárfesta um afleið-
ingar kórónuveirufaraldursins, sem
og ákvörðunar Rússa fyrir helgi um
að taka ekki þátt ásamt OPEC-ríkj-
unum í að draga úr olíuframleiðslu til
að mæta minnkaðri eftirspurn vegna
faraldursins. Ákváðu Sádi-Arabar að
svara með því að auka framleiðslu
hjá sér, og féll hráolíuverð mjög
skarpt í gærmorgun. Er verðið nú
um helmingur þess sem það var í
janúarmánuði.
Hér á landi lækkuðu hlutabréf
allra félaga í Kauphöllinni í viðskipt-
um gærdagsins, og lækkaði úrvals-
vísitalan um 3,51%. Markaðurinn féll
skarpt við opnun kauphallarinnar og
stefndi um miðjan dag í að um 50
milljarðar króna myndu þurrkast út.
Markaðurinn náði sér hins vegar á
strik undir lok dags, en engu að síður
glötuðust um 35,5 milljarðar króna í
markaðsverðmæti fyrirtækjanna.
Lækkun dagsins varð því minni en
á föstudaginn, en þá nam hún 4,45%,
en sú lækkun var hin mesta á einum
degi frá 1. febrúar 2017. Samkvæmt
upplýsingum frá Kauphöllinni var
samanlögð lækkun föstudags og
mánudags því 7,81%, sem er mesta
tveggja daga lækkun frá 9. mars
2009.
Lækkuðu á bilinu 7-8%
Erlendis varð þróunin enn skarp-
ari, og féllu flestar úrvalsvísitölur
um meira en 7% í viðskiptum gær-
dagsins. Nikkei-vísitalan í Japan féll
niður fyrir 20.000 og nam lækkunin
um 5%. Hefur vísitalan ekki verið
lægri í 14 mánuði. Sömu þróun mátti
sjá í Evrópu þar sem franska CAC
40 vísitalan féll um rúm 8% og þýska
DAX-vísitalan um 7,9%.
Í Lundúnum féll FTSE 100 vísital-
an um 7,69% í viðskiptum gærdags-
ins, og markaði fallið upphaf svo-
nefnds dumbungsmarkaðar í
Bretlandi, þar sem vísitalan lækkaði
um meira en 20% frá þeim hæðum
sem hún náði í janúar. Þá var fallið á
mörkuðum í Wall Street svo skarpt
við opnun, að lokað var fyrir öll við-
skipti í um stundarfjórðung aðeins
fimm mínútum eftir að þeir opnuðu.
Hafði S&P 500 vísitalan þá fallið um
7%, sem var mesta lækkun hennar
frá falli Lehman Brothers í septem-
ber 2008. Endaði vísitalan 7,6%
lægri.
Giuseppe Conte, forsætisráðherra
Ítalíu, tilkynnti í gærkvöld að al-
menningssamkomur yrðu bannaðar
og eins ferðir á milli staða, sem ekki
væru vegna vinnu eða í neyð. Þetta
eru sömu ráðstafanir og voru gerðar
á rauða svæðinu svonefnda í norður-
hluta landsins þar sem kórónuveiru-
smit hefur breiðst hratt út. Frétta-
stofa Reuters hafði eftir Conte að
þessi ákvörðun væri nauðsynleg til
að vernda viðkvæmustu borgara
landsins. Það rétta fyrir Ítali núna sé
að halda kyrru fyrir heima hjá sér.
Ferða- og samkomubannið nær til
meira en 60 milljóna manna. Útför-
um, brúðkaupum og íþróttaviðburð-
um er aflýst, svo nokkuð sé nefnt.
Svartur mánudagur
Mesta lækkun á mörkuðum
frá falli Lehman Brothers 2008
MKórónuveiran »2, 4, 8, 10, 11 og 12
„Eins og allir sjá, þá eru hraðar sviptingar í stöðunni,
bæði á heimsvísu og í Evrópu,“ sagði Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi, þegar leitað var viðbragða hennar við ferða- og
samkomubanninu á Ítalíu.
Sagði Svandís aðspurð að verið væri að grípa til
mjög harðra aðgerða hér á landi miðað við það sem
gengi og gerðist í nágrannalöndum okkar, þar sem ver-
ið væri að prófa þá sem komi heim frá áhættusvæðum
og tryggja sóttkví þeirra sem hafa umgengist það fólk.
„Ég vonast til þess að það verði til að hjálpa okkur að
ná árangri á Íslandi.“ ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
65
staðfest tilfelli
kórónuveirusmits
á Íslandi
500+
einstaklingar
í sóttkví
60 milljónir
Ítala í samkomu-
og ferðabanni
Höfum gripið til mjög harðra aðgerða
Samninganefndir Eflingar og Reykjavíkurborgar sátu
lengi við samningaborðið hjá ríkissáttasemjara í gær.
Var sagður góður gangur í viðræðunum, en sáttafundur
þeirra hófst kl. 13 í gær og stóð enn yfir þegar Morg-
unblaðið fór í prentun. Ekki var vitað hvenær fundi
myndi ljúka í nótt, en samningafundur þeirra í fyrrinótt
stóð yfir í um fjórtán klukkutíma.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir
í samtali við Morgunblaðið að ákveðin breyting hefði orð-
ið á viðræðunum um helgina þannig að þær hefðu orðið
lausnamiðaðri og að raunverulegur gangur væri í þeim.
Náðu að afstýra verkfallsaðgerðum BSRB
Sextán aðildarfélög BSRB sömdu við ríkið og sveit-
arfélög í fyrrinótt, en verkföll nokkurra þeirra hófust á
miðnætti mánudags. Var verkföllunum aflýst hverju af
öðru alla nóttina þegar samningar náðust.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir í
samtali við Morgunblaðið í dag að með samningunum sé
m.a. skerpt á skilum milli vinnu og einkalífs og að það
séu mikil gleðitíðindi að samningar hafi náðst. »2 og 6
Viðræðurnar fram á nótt
Viðræður lausnamiðaðri
eftir helgi BSRB samdi
Morgunblaðið/Eggert
Börn Verkfall Eflingar hefur staðið yfir í þrjár vikur.
Ísrael ætlar að krefjast þess að
allir sem koma til landsins frá og
með morgundeginum fari í tveggja
vikna heimasóttkví. Þetta tilkynnti
forsætisráðherrann Benjamin Net-
anyahu í gær. Ráðstöfunin snertir
alla sem koma erlendis frá.
„Eftir dag af erfiðum ákvörð-
unum höfum við tekið ákvörðun —
allir þeir sem koma til Ísraels að ut-
an munu fara í einangrun í fjórtán
daga,“ sagði Netanyahu á Twitter.
„Þetta er erfið ákvörðun en hún er
nauðsynleg til að viðhalda heilsu al-
mennings,“ bætti hann við. Þessar
ráðstafanir munu gilda að minnsta
kosti næstu tvær vikur.
Útlendingum sem ekki geta sýnt
fram á að þeir geti farið í 14 daga
heimasóttkví verður snúið frá land-
inu. Nærri 40 tilfelli kórónusmits
höfðu greinst í Ísrael í gær.
Ísrael setur alla
ferðalanga í sóttkví
Úrvalsvísitalan 9. mars 2020
London, FTSE 100 9. mars 2020
New York, S&P 500 9. mars 2020
Brent hráolíuverð 9. mars 2020
$/tunnu
1.850
1.800
1.750
1.700
1.827.46
1.763.30
6.600
6.400
6.200
6.000
5.800
Opnunargengi Lokagengi
Opnunargengi Lokagengi
Opnunargengi Lokagengi
6.462,55
5.994,04
3.000
2.900
2.800
2,700
2.972,37
2.774,99
50
45
40
35
30
Opnunargengi Lokagengi
45,27
34,36
24,55%
7,6%
7,69%
3,5%
Ítölsk stjórnvöld setja ferða-
og samkomubann á alla Ítalíu
35,5 milljarðar þurrkuðust út í
Kauphöllinni í viðskiptum dagsins