Morgunblaðið - 10.03.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.03.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020 Hrossaflengs Þessi kátu hross heilsuðu hvort öðru með því að stinga snoppum saman, enda hafa engin tilmæli komið til hrossa um að þau eigi ekki að heilsast með slíkum virktum. Eggert Nú eru 30 ár liðin frá stofnun Stíga- móta. Stígamót voru stofnuð sem Samtök kvenna gegn kyn- ferðisofbeldi. Að- dragandi þess var að það voru nokkrir sjálfboðaliðahópar kvenna sem höfðu komið að álíka mál- um og ákváðu að taka höndum saman og stofna samtökin. Stígamót, staðurinn þar sem stígar mæt- ast, voru svo stofnuð á baráttudegi kvenna árið 1989. Þarna var stigið stórt og mik- ilvægt skref í rétt- indabaráttu kvenna. Núna starfa Stíga- mót sem ráðgjafar- og stuðningsmiðstöð fyrir bæði konur og karla sem hafa verið beitt hvers kyns kyn- ferðisofbeldi. Takk, takk Mig langar til að nota þennan vettvang til að segja: Takk, þið konur sem stiguð þetta skref, takk fyrir hönd þeirra kvenna sem fengu þarna tækifæri til að stíga fram og létta af sér þungri byrði og fengu áheyrn og þar með bata. Takk, þið konur sem stiguð þetta skref og stöðvuðuð þá þöggun sem viðhöfð var á þessum tíma í samfélaginu okkar. Fyrir 30 árum hafði þessu mál- efni ekki verið sinnt af heilbrigð- iskerfinu og lítt af dómskerfinu þrátt fyrir að sannarlega mætti finna viðurlög vegna kynferð- islegs ofbeldis í lögum. Þá þurftu þeir sem lentu í kynferðislegu of- beldi að klífa sex- tugan hamarinn í leit að réttlæti. Enn er við hamarinn að eiga en umræðan hefur skilað okkur fram á veginn. Umræðan bætir samfélagið Fyrsta áratug Stígamóta unnu þau að mikilvægasta verkefninu en það var að standa upp og opna þessa um- ræðu og berjast þar með fyrir bættu samfélagi og að um- ræðan um kyn- ferðisofbeldi væri opin og viðurkennd. Þegar sú umræða fór af stað tók sam- félagið við sér og sem betur fer í dag hafa félagsmála- og heilbrigðisyfirvöld styrkt sitt umhverfi í átt að heilbrigðari umræðu í þessum málum. Umræðan hefur líka opnað á afleiðingar ofbeldisins og þar með opnað á fjölbreytta meðferð til að styrkja þolendur til að lifa með því. Þrátt fyrir að markmið Stíga- móta hafi náðst með því að opna þessa umræðu í þjóðfélaginu og viðurkenna skelfilegar afleiðingar þessa ofbeldis þá verður sam- félagið stöðugt að halda þessum boltum á lofti. Við náum því sennilega seint að uppræta kyn- ferðislegt ofbeldi úr samfélaginu en stöðug umræða heldur því niðri og forðar okkur frá þöggun og meðvirkni með ofbeldinu Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur » Takk, þið konur sem stiguð þetta skref, takk fyrir hönd þeirra kvenna sem fengu þarna tækifæri til að stíga fram og létta af sér þungri byrði Halla Signý Kristjánsdóttir Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Stígamót á tímamótum Rétt viðbrögð ráða mestu um áhrif áfalla. Yfirvofandi hættu þarf að mæta með mikilli rögg- semi, en einnig er mikilvægt er að horfa á samhengi hlutanna svo fyrstu viðbrögð verði ekki þau einu. Fyrsta skrefið í baráttunni við kórónaveiruna sem orsakar CO- VID-19 snýr að heilsuvernd, enda nauðsynlegt að hefta útbreiðslu henn- ar. Samhliða þarf að huga að efna- hagslegum og ekki síður félagslegum viðbrögðum. Neikvæð efnahagsleg áhrif veirunnar eru einhver þau mestu sem alþjóðakerfið hefur séð í langan tíma. Þess vegna þarf umfang efna- hagsaðgerða ríkisstjórnarinnar að vera verulegt. Heilbrigði og fólkið okkar Óværan hefur veruleg áhrif á allt daglegt líf okkar. Sumir verða veikir, en allir þurfa að breyta hegðun sinni og venjum; forgangsraða með hliðsjón af eigin heilsu og annarra og skil- greina hvað skiptir mestu máli. Heil- brigðisyfirvöld hafa staðið sig vel. Þau sýna ábyrgð og leggja nótt við dag við að rekja smitleiðir, miðla upplýsingum og halda veirunni í skefjum. Sam- félagið allt hefur lagst á árarnar með yfirvöldum, sett sjálfu sér strangar reglur og dregið tímabundið úr nánum samskiptum. Hundruð einstaklinga í sóttkví hafa verndað heilsu annarra og lágmarkað álag á heilbrigðiskerfið með einangrun sinni. Það er lofsvert framlag. Aðgerðunum fylgir þó verulegur kostnaður, bæði beinn og óbeinn. Hjól hagkerfisins hægja á sér og geta stöðvast ef stjórnvöld eru ekki með augun á veginum og fótinn á bens- íngjöfinni. Ríkisstjórnin er meðvituð um þessa hættu og hefur undirbúið mótvægisaðgerðir sem hrint verður í framkvæmd á réttum tíma, í samstarfi við lykilaðila, fagstéttir, at- vinnulíf og samtök. Menntakerfið: Kennsla heldur áfram Eitt mikilvægasta sam- félagsverkefnið á þessum tímapunkti er að tryggja að skólastarf raskist sem minnst. Skólastjórnendur og kennarar hafa sýnt mikla yf- irvegun við þessar óvenju- legu aðstæður, þar sem markmiðið er að halda uppi starfseminni eins lengi og unnt er. Í uppfærðum áætlunum skól- anna er gert ráð fyrir ýmsum að- stæðum; hlutverki kennara í fjar- kennslu og heimanámi ef samkomubann tekur gildi, líðan nem- enda og stuðningi við þá sem mest þurfa á að halda. Vonandi þarf ekki að grípa til þeirra aðgerða sem hafa verið undirbúnar, en það er mjög traustvekj- andi að vita af þeirri undirbúnings- vinnu sem þegar hefur verið unnin. Efnahagslífið: Innspýting og súrefni Ófærð og ítrekuð óveður hafa verið táknræn fyrir krefjandi aðstæður í efnahagslífinu í vetur. Ofan á þungan vetur bætist heilsufarsógnin sem nú steðjar að og vafalaust þykir mörgum nóg. En það dugar lítt að sitja með hendur í skauti og bíða vorsins. Við þurfum að ráðast í almennar og sér- tækar aðgerðir, þar sem áfallið er bæði á framboðs- og eftirspurnarhliðinni. Virðiskeðja alþjóðahagkerfisins hefur verið rofin. Fyrir nokkrum vikum benti ég á brýna þörf á heildstæðri efnahaghagsáætlun sem næði til inn- viðafjárfestinga, atvinnulífs og fjár- málakerfisins. Viðbrögðin við þeim hugmyndum voru afar ánægjuleg og á skömmum tíma hafa litið ljós fram- kvæmdaáætlanir. Í góðu árferði und- anfarinna ára höfum við greitt niður skuldir, safnað í góðan gjaldeyrisforða og komið okkur í kjöraðstæður til að bregðast við vandanum sem nú blasir við okkur. Við erum í dauðafæri að auka innviðafjárfestingar og styrkja með þeim samfélagið til frambúðar. Við getum fært atvinnulífinu aukið súrefni með almennum aðgerðum, lækkað tryggingargjald fyrirtækja og endurskoðað gistináttaskatt. Á sama hátt eiga sveitarfélög að leggjast á ár- arnar, til dæmis með endurskoðun fasteignagjalda sem hafa skilað veru- lega auknum tekjum vegna hækkandi eignaverðs. Við eigum óhikað að grípa til aðgerða til hjálpar ferðaþjónust- unni, sem glímir við fordæmalausar aðstæður. Tugþúsundir einstaklinga hafa atvinnu af ferðaþjónustu og greinin hefur skapað yfir 40% af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins. Útlánavextir fjármálakerfisins hafa ekki lækkað í takt við meginvexti Seðlabanka Íslands. Þetta verður að breytast og huga verður að greiðslu- frestum fyrirtækja sem lenda í vand- ræðum vegna ástandsins. Peninga- málayfirvöld og ríkissjóður verða að ganga í takt svo aðgerðirnar heppnist samfélaginu til heilla. Þá ætti bankinn einnig að auka laust fé í umferð og endurskoða niðurgreiðsluferil skulda ríkissjóðs Íslands. Hlutdeildarlán sem félags- og barnamálaráðherra hefur kynnt geta einnig haft mikil áhrif, unnið með hagkerfinu og aðstoðað fólk til að eignast eigin íbúð. Veturinn er að hopa og fram undan eru jafndægur að vori. Ég er sann- færð um að í sameiningu náum við tökum á COVID-19. Við verðum að forgangsraða í þágu samfélagsins, því eins og John Stuart Mill sagði: „Þegar til lengdar lætur, veltur gildi ríkisins á manngildum þegnanna.“ Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur » Aðgerðunum fylgir mikill kostnaður. Hjól hagkerfisins hægja á sér og stöðvast ef stjórnvöld eru ekki með augun á veginum og fótinn á bensíngjöfinni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Gerum það sem þarf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.