Morgunblaðið - 10.03.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Hrossaflengs Þessi kátu hross heilsuðu hvort öðru með því að stinga snoppum saman, enda hafa engin tilmæli komið til hrossa um að þau eigi ekki að heilsast með slíkum virktum.
Eggert
Nú eru 30 ár liðin
frá stofnun Stíga-
móta. Stígamót voru
stofnuð sem Samtök
kvenna gegn kyn-
ferðisofbeldi. Að-
dragandi þess var að
það voru nokkrir
sjálfboðaliðahópar
kvenna sem höfðu
komið að álíka mál-
um og ákváðu að
taka höndum saman
og stofna samtökin.
Stígamót, staðurinn
þar sem stígar mæt-
ast, voru svo stofnuð
á baráttudegi kvenna
árið 1989. Þarna var
stigið stórt og mik-
ilvægt skref í rétt-
indabaráttu kvenna.
Núna starfa Stíga-
mót sem ráðgjafar-
og stuðningsmiðstöð
fyrir bæði konur og
karla sem hafa verið
beitt hvers kyns kyn-
ferðisofbeldi.
Takk, takk
Mig langar til að nota þennan
vettvang til að segja: Takk, þið
konur sem stiguð þetta skref,
takk fyrir hönd þeirra kvenna
sem fengu þarna tækifæri til að
stíga fram og létta af sér þungri
byrði og fengu áheyrn og þar
með bata. Takk, þið konur sem
stiguð þetta skref og stöðvuðuð
þá þöggun sem viðhöfð var á
þessum tíma í samfélaginu okkar.
Fyrir 30 árum hafði þessu mál-
efni ekki verið sinnt af heilbrigð-
iskerfinu og lítt af dómskerfinu
þrátt fyrir að sannarlega mætti
finna viðurlög vegna kynferð-
islegs ofbeldis í lögum. Þá þurftu
þeir sem lentu í kynferðislegu of-
beldi að klífa sex-
tugan hamarinn í
leit að réttlæti. Enn
er við hamarinn að
eiga en umræðan
hefur skilað okkur
fram á veginn.
Umræðan bætir
samfélagið
Fyrsta áratug
Stígamóta unnu þau
að mikilvægasta
verkefninu en það
var að standa upp
og opna þessa um-
ræðu og berjast þar
með fyrir bættu
samfélagi og að um-
ræðan um kyn-
ferðisofbeldi væri
opin og viðurkennd.
Þegar sú umræða
fór af stað tók sam-
félagið við sér og
sem betur fer í dag
hafa félagsmála- og
heilbrigðisyfirvöld
styrkt sitt umhverfi
í átt að heilbrigðari
umræðu í þessum
málum. Umræðan
hefur líka opnað á
afleiðingar ofbeldisins og þar
með opnað á fjölbreytta meðferð
til að styrkja þolendur til að lifa
með því.
Þrátt fyrir að markmið Stíga-
móta hafi náðst með því að opna
þessa umræðu í þjóðfélaginu og
viðurkenna skelfilegar afleiðingar
þessa ofbeldis þá verður sam-
félagið stöðugt að halda þessum
boltum á lofti. Við náum því
sennilega seint að uppræta kyn-
ferðislegt ofbeldi úr samfélaginu
en stöðug umræða heldur því
niðri og forðar okkur frá þöggun
og meðvirkni með ofbeldinu
Eftir Höllu Signýju
Kristjánsdóttur
» Takk, þið
konur sem
stiguð þetta
skref, takk fyrir
hönd þeirra
kvenna sem
fengu þarna
tækifæri til að
stíga fram og
létta af sér
þungri byrði
Halla Signý
Kristjánsdóttir
Höfundur er þingmaður
Framsóknarflokksins.
Stígamót
á tímamótum
Rétt viðbrögð
ráða mestu um áhrif
áfalla. Yfirvofandi
hættu þarf að mæta
með mikilli rögg-
semi, en einnig er
mikilvægt er að
horfa á samhengi
hlutanna svo fyrstu
viðbrögð verði ekki
þau einu. Fyrsta
skrefið í baráttunni
við kórónaveiruna sem orsakar CO-
VID-19 snýr að heilsuvernd, enda
nauðsynlegt að hefta útbreiðslu henn-
ar. Samhliða þarf að huga að efna-
hagslegum og ekki síður félagslegum
viðbrögðum. Neikvæð efnahagsleg
áhrif veirunnar eru einhver þau mestu
sem alþjóðakerfið hefur séð í langan
tíma. Þess vegna þarf umfang efna-
hagsaðgerða ríkisstjórnarinnar að
vera verulegt.
Heilbrigði og fólkið okkar
Óværan hefur veruleg áhrif á allt
daglegt líf okkar. Sumir verða veikir,
en allir þurfa að breyta hegðun sinni
og venjum; forgangsraða með hliðsjón
af eigin heilsu og annarra og skil-
greina hvað skiptir mestu máli. Heil-
brigðisyfirvöld hafa staðið sig vel. Þau
sýna ábyrgð og leggja nótt við dag við
að rekja smitleiðir, miðla upplýsingum
og halda veirunni í skefjum. Sam-
félagið allt hefur lagst á árarnar með
yfirvöldum, sett sjálfu sér strangar
reglur og dregið tímabundið úr nánum
samskiptum. Hundruð einstaklinga í
sóttkví hafa verndað heilsu annarra og
lágmarkað álag á heilbrigðiskerfið
með einangrun sinni. Það er lofsvert
framlag.
Aðgerðunum fylgir þó verulegur
kostnaður, bæði beinn og óbeinn. Hjól
hagkerfisins hægja á sér og geta
stöðvast ef stjórnvöld eru ekki með
augun á veginum og fótinn á bens-
íngjöfinni. Ríkisstjórnin er meðvituð
um þessa hættu og hefur undirbúið
mótvægisaðgerðir sem hrint verður í
framkvæmd á réttum tíma, í samstarfi
við lykilaðila, fagstéttir, at-
vinnulíf og samtök.
Menntakerfið:
Kennsla heldur áfram
Eitt mikilvægasta sam-
félagsverkefnið á þessum
tímapunkti er að tryggja að
skólastarf raskist sem
minnst. Skólastjórnendur og
kennarar hafa sýnt mikla yf-
irvegun við þessar óvenju-
legu aðstæður, þar sem
markmiðið er að halda uppi
starfseminni eins lengi og
unnt er. Í uppfærðum áætlunum skól-
anna er gert ráð fyrir ýmsum að-
stæðum; hlutverki kennara í fjar-
kennslu og heimanámi ef
samkomubann tekur gildi, líðan nem-
enda og stuðningi við þá sem mest
þurfa á að halda. Vonandi þarf ekki að
grípa til þeirra aðgerða sem hafa verið
undirbúnar, en það er mjög traustvekj-
andi að vita af þeirri undirbúnings-
vinnu sem þegar hefur verið unnin.
Efnahagslífið:
Innspýting og súrefni
Ófærð og ítrekuð óveður hafa verið
táknræn fyrir krefjandi aðstæður í
efnahagslífinu í vetur. Ofan á þungan
vetur bætist heilsufarsógnin sem nú
steðjar að og vafalaust þykir mörgum
nóg. En það dugar lítt að sitja með
hendur í skauti og bíða vorsins. Við
þurfum að ráðast í almennar og sér-
tækar aðgerðir, þar sem áfallið er bæði
á framboðs- og eftirspurnarhliðinni.
Virðiskeðja alþjóðahagkerfisins hefur
verið rofin. Fyrir nokkrum vikum
benti ég á brýna þörf á heildstæðri
efnahaghagsáætlun sem næði til inn-
viðafjárfestinga, atvinnulífs og fjár-
málakerfisins. Viðbrögðin við þeim
hugmyndum voru afar ánægjuleg og á
skömmum tíma hafa litið ljós fram-
kvæmdaáætlanir. Í góðu árferði und-
anfarinna ára höfum við greitt niður
skuldir, safnað í góðan gjaldeyrisforða
og komið okkur í kjöraðstæður til að
bregðast við vandanum sem nú blasir
við okkur. Við erum í dauðafæri að
auka innviðafjárfestingar og styrkja
með þeim samfélagið til frambúðar.
Við getum fært atvinnulífinu aukið
súrefni með almennum aðgerðum,
lækkað tryggingargjald fyrirtækja og
endurskoðað gistináttaskatt. Á sama
hátt eiga sveitarfélög að leggjast á ár-
arnar, til dæmis með endurskoðun
fasteignagjalda sem hafa skilað veru-
lega auknum tekjum vegna hækkandi
eignaverðs. Við eigum óhikað að grípa
til aðgerða til hjálpar ferðaþjónust-
unni, sem glímir við fordæmalausar
aðstæður. Tugþúsundir einstaklinga
hafa atvinnu af ferðaþjónustu og
greinin hefur skapað yfir 40% af
gjaldeyristekjum þjóðarbúsins.
Útlánavextir fjármálakerfisins hafa
ekki lækkað í takt við meginvexti
Seðlabanka Íslands. Þetta verður að
breytast og huga verður að greiðslu-
frestum fyrirtækja sem lenda í vand-
ræðum vegna ástandsins. Peninga-
málayfirvöld og ríkissjóður verða að
ganga í takt svo aðgerðirnar heppnist
samfélaginu til heilla. Þá ætti bankinn
einnig að auka laust fé í umferð og
endurskoða niðurgreiðsluferil skulda
ríkissjóðs Íslands. Hlutdeildarlán sem
félags- og barnamálaráðherra hefur
kynnt geta einnig haft mikil áhrif,
unnið með hagkerfinu og aðstoðað
fólk til að eignast eigin íbúð.
Veturinn er að hopa og fram undan
eru jafndægur að vori. Ég er sann-
færð um að í sameiningu náum við
tökum á COVID-19. Við verðum að
forgangsraða í þágu samfélagsins, því
eins og John Stuart Mill sagði: „Þegar
til lengdar lætur, veltur gildi ríkisins á
manngildum þegnanna.“
Eftir Lilju Dögg
Alfreðsdóttur » Aðgerðunum fylgir
mikill kostnaður.
Hjól hagkerfisins hægja
á sér og stöðvast ef
stjórnvöld eru ekki með
augun á veginum og
fótinn á bensíngjöfinni.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og menningar-
málaráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins.
Gerum það sem þarf