Morgunblaðið - 10.03.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hannaður árið 1938 af:
Bonet, Kurchan & Ferrari
Leður stóll verð 149.000,-
Leður púði verð 13.900,-
Páll Vihjálmssonskrifar skarpan
pistil:
Logi formaðurSamfylkingar
segir sáttastjórn
Katrínar Jak-
obsdóttur pólitíska
stöðnun.
Hvernig getur sáttverið stöðnun?
Jú, þegar friður er ísamfélaginu þá þýðir það stöðn-
un í huga þeirra sem þrífast á ófriði.
Við kynntumst samfélagsófriðivinstrimanna allt of vel á tíma
Jóhönnustjórnarinnar 2009-2014.
Höfuðborginni var att gegnlandsbyggð og einni starfs-
stétt gegn annarri.
Undir slagorðinu „Ónýta Ísland“var okkur kennt að Íslend-
ingar væru heimsins mestu fáráð-
lingar til hugar og handa.
Jóhönnustjórninni tókst ekki aðganga af Íslandi dauðu. Meiri
seigla reyndist í þjóðinni en vinstri-
menn ætluðu.
Loga dreymir um að kveikja nýttófriðarbál Samfylkingar og
vinstrimanna.
Þjóðinni er betur borgið með sátten óeirðum vinstriflokka.“
Þörf upprifjun á niðurlæging-artímabili Jóhönnustjórn-
arinnar.
Logi Einarsson
Skrítið pólitískt
innræti
STAKSTEINAR
Páll
Vilhjálmsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Nei, við merkjum ekki fækkun,“
segir Pálína Magnúsdóttir borgar-
bókavörður þegar hún er spurð
hvort starfsfólk Borgarbókasafnsins
hafi orðið vart við minni aðsókn að
safninu vegna kórónuveirunnar.
„Við tökum reyndar tölur um hver
mánaðamót og það var fjölgun á
gestum í febrúar í öllum söfnum,“
segir hún. Safnið var lokað síðastlið-
inn föstudag vegna starfsdags. Það
er á sex stöðum í borginni og rekur
að auki bókabíl. Gestir voru tæp-
lega 47 þúsund í janúar samkvæmt
mælaborði borgarinnar.
Pálína segir að gerðar hafi verið
sérstakar ráðstafanir vegna veir-
unnar og vel sé fylgst með þróun
mála. „Fyrir viku ákváðum við að
auka þrif á snertiflötum í stofnun-
um. Auk þess settum við inn á vakt-
ir starfsfólks að yfirfara alla snerti-
fleti að lágmarki tvisvar á dag.
Þetta þýðir að við þrífum snerti-
skjái, hurðarhúna,
handrið, takka á
póstum, lyklaborð
við almennings-
vélar og fleira í
þeim dúr.“
Pálína segir að
bækur sem koma
inn séu þrifnar áð-
ur en þær fara í
hillu aftur. „Það
er reyndar verklag sem við höfum
lengi viðhaft, bækur eru yfirleitt yf-
irfarnar þegar þær koma inn, skoð-
að hvort þær fari í afskriftir eða
þurfi þrif, en nú gerum við það með
mjög markvissum hætti. Við höfum
einnig látið setja upp sprittdunka í
söfnum og erum með sprittbrúsa
fyrir almenning við afgreiðsluborð
og sjálfsafgreiðslu,“ segir hún og
bætir við að verið sé að fara yfir
viðburðahald safnsins með tilliti til
smithættu.
Gera ráðstafanir vegna veirunnar
Pálína
Magnúsdóttir
Bókaverðir hafa ekki orðið varir við fækkun gesta á bókasöfnum borgarinnar
Umboðsmaður barna segir að áður
en lögum verður breytt og hjónum
veitt leyfi til lögskilnaðar án undan-
farandi skilnaðar að borði og sæng
þurfi að móta nýja heildarstefnu í
þessum málaflokki. Taka þurfi til
skoðunar auknar fjárveitingar til
sýslumannsembætta, fjölgun úrræða
og bætt aðgengi að fyrirliggjandi úr-
ræðum, með hliðsjón af reynslu ná-
grannalandanna á þessu sviði.
Þetta kemur fram í umsögn sem
umboðsmaðurinn, Salvör Nordal,
hefur sent Alþingi vegna stjórnar-
frumvarps um breytingu á hjúskap-
arlögum. Með frumvarpinu er lagt til
að hjón geti fengið lögskilnað án
undanfarandi skilnaðar að borði og
sæng séu þau sammála um það og
hafi náð samkomulagi um skipan for-
sjár sameiginlegra barna ef við á.
Segir í greinargerð frumvarpsins að
það sé ekki hlutverk hins opinbera
að takmarka heimild hjóna til lög-
skilnaðar ef engir sérstakir hags-
munir eru fyrir hendi sem krefjast
þess.
Umboðsmaður barna segir að í
frumvarpinu sé eingöngu litið til
þess tíma sem það tekur fyrir hjón
að fá lögskilnað, en ef um sé að ræða
hjón sem eiga saman börn marki lög-
skilnaður eingöngu upphaf sam-
vinnu foreldra um uppeldi barna á
tveimur heimilum.
Það sé brýnt að hjónum sem
standa frammi fyrir skilnaði sé veitt-
ur stuðningur og ráðgjöf, við að
fyrirbyggja eða leysa úr mögulegum
ágreiningi og komast þannig í sam-
einingu að þeirri niðurstöðu sem er
best til þess fallin að tryggja hags-
muni og velferð sameiginlegra
barna. gudmundur@mbl.is
Móta þarf nýja
heildarstefnu
Umboðsmaður
barna gagnrýnir lög-
skilnaðarfrumvarpið
Morgunblaðið/Hari
Umboðsmaður Tryggja þarf hags-
muni barna við skilnað foreldra.