Morgunblaðið - 10.03.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Úthlutanir fjármuna til uppbygg-
ingar innviða, náttúruverndar og
annarra verkefna á ferða-
mannastöðum voru kynntar í gær.
Samtals er nú úthlutað rúmum 1,5
milljörðum króna úr Landsáætlun
um uppbyggingu innviða og Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra, og Guðmundur
Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra, gerðu grein fyrir
úthlutuninni á blaðamannafundi í
Norræna húsinu.
Frá síðustu úhlutun hafa fjár-
munirnir nýst til ýmissa verka. Þar
má nefna áframhaldandi uppbygg-
ingu gönguleiða, útsýnispalla og
bílastæða innan Þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls, viðgerðir á hleðslum við
Snorralaug í Reykholti og smíði á
stigum og pöllum við Stuðlagil, sem
og við Hornbjargsvita til að bæta
öryggi ferðamanna og vernda nátt-
úru auk fjölda annarra verkefna.
Gert er ráð fyrir um þriggja
milljarða framlagi til þriggja ára,
sem rennur til verkefnaáætlunar
Landsáætlunar um uppbyggingu
innviða sem gildir fyrir árin 2020-
2022. Sem fyrr er áhersla lögð á að
um sé að ræða heildstæða nálgun í
gegnum svæðisheildir en einnig á
annars konar verkefni s.s. til að
auka fagþekkingu, bæta hönnun og
samræmingu, að því er segir í til-
kynningu um úthlutunina.
Alls hafa verið skilgreindir 119
ferðamannastaðir, ferðamannaleið-
ir og ferðamannasvæði, þar sem
aðgerðir hafa þegar hafist fyrir til-
stuðlan landsáætlunar eða eru fyr-
irhugaðar til og með ársins 2022.
Framkvæmdasjóður ferða-
mannastaða veitir þannig styrki til
33 verkefna um allt land árið 2020
sem nema rúmum 500 milljónum
króna. Hæstu styrkirnir fara til
byggingar útsýnispalls á Bolafjalli,
áframhald uppbyggingar við
Stuðlagil beggja vegna árinnar og
bætt fráveitumál í Hrafntinnu-
skeri.
Önnur verkefni sem fá hærra en
15 milljón króna styrki eru bætt
salernisaðstaða við Aldeyjarfoss og
bygging skýla til náttúruskoðunar
við fuglastíg á Norðausturlandi.
Þá hefur undanfarin ár verið
lögð aukin áhersla á að efla heils-
árs- og árstíðabundna landvörslu
enda gegna landverðir mikilvægu
hlutverki fyrir verndun náttúru,
svo og fræðslu og upplifun ferða-
manna á friðlýstum svæðum.
Ljósmynd/Golli
Innviðir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu úthlutunina á fundi.
1,5 milljarðar í uppbygg-
ingu í ferðaþjónustunni
Ráðherrar kynntu úthlutun fjármuna þessa árs í gær
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
Hæð (cm) Breidd (cm) Dýpt (cm)
Ytra mál 25 35 25
Innra mál 24,2 34 20
BRETTATILBOÐ Í MARS!
AÐEINS 6.990 KR.
Öruggur og nettur verðmætaskápur fyrir heimili.
Þriggja til átta stafa aðgangskóði ásamt lyklum ef rafhlöður skildu klárast.
Innbyggð 130 dB bjalla fer í gang ef rangur aðgangskóði er notaður oftar en þrisvar.
Evrópusambandið birti á heimasíðu
sinni í lok júlí í fyrra fréttatilkynn-
ingu þar sem fram kemur að fram-
kvæmdastjórn ESB hafi greint al-
varlega veikleika við vigtun á upp-
sjávarfiski á Írlandi. Í kjölfar þess
og þar til að úrbætur hafa náð fram
að ganga mun Fiskistofa ekki veita
löndunarleyfi á Írlandi, nema að
sérstakt eftirlit sé viðhaft með lönd-
un.
Vakin er athygli á þessu á heima-
síðu Fiskistofu í gær, en íslensk
uppsjávarskip hafa undanfarið verið
við veiðar á kolmunna vestur af Ír-
landi.
Gátu tryggt eftirlit
Í síðustu viku var greint frá því
að Huginn VE hygðist landa um
1900 tonnum af kolmunna í Kylli-
begs á Írlandi. Í svari Fiskistofu við
fyrirspurn um löndun Hugins segir
að Huginn hafi fengið leyfi til lönd-
unar á Írlandi á föstudaginn. Hægt
hafi verið að tryggja að eftirlit væri
viðhaft við löndunina í því einstaka
tilviki. Fiskistofa veiti ekki löndun-
arleyfi á Írlandi nema sérstakt eft-
irlit sé viðhaft með löndun og vigtun
og Fiskistofa geti ekki tryggt að svo
sé alltaf.
Í fréttinni á heimasíðu Fiskistofu
segir að meginregla við fiskveiðar
sé sú að afla skuli landað og hann
veginn í íslenskri höfn. Heimilt sé
þó með leyfi Fiskistofu að landa afla
í höfnum erlendis sé tryggt að eft-
irlit með vigtun aflans sé fullnægj-
andi að mati Fiskistofu.
„Að gefnu tilefni vill Fiskistofa
taka fram að ekki er sjálfgefið að
Fiskistofa meti það svo að eftirlit
með vigtun afla sé tryggt á hverjum
stað frá ári til árs. Þess vegna er
mikilvægt að fiskiskip sem hafa hug
á að landa erlendis kanni fyrirfram
hvort Fiskistofa telji eftirlit með
vigtun fullnægjandi og geti veitt
leyfi fyrir löndun í viðkomandi landi,
segir á heimasíðunni. aij@mbl.is
Löndun ekki
leyfð á Írlandi
Sérstaklega fylgst með löndun Hugins
Killybegs Fiskimjölsverksmiðja og
góð höfn er í írska bænum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Samstaða, ábyrgð, skynsemi og
óttaleysi eru meginatriði við ríkjandi
aðstæðum og þannig sigrumst við á
þessum vágesti,“ segir Pétur G.
Markan, samskiptastjóri þjóðkirkj-
unnar. – Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær hefur Helga Soffía
Konráðsdóttir, prófastur í Reykja-
víkurprófastdæmi vestra, óskað eftir
því við presta, djákna og sóknar-
nefndarfólk að starf úti í söfnuðum
sem ætlað er eldri borgunum verði
fellt niður um ófyrirséðan tíma og er
slíkt varúðarráðstöfun vegna
kórónuveirunnar. Vitað er að eldra
fólk með undirliggjandi sjúkdóma er
í meiri hættu en aðrir vegna veir-
unnar og því eru fyrrgreindar ráð-
stafanir teknar.
Þjóðin sé samstíga
Pétur segir að skilaboð lík því sem
nú koma frá kirkjunni í Reykjavík
verði gefin út á landsvísu. „Starf með
eldra fólki verður í lágmarki en við
munum koma til móts við þann hóp
með öðrum hætti, eins og best hent-
ar í hverjum söfnuði,“ segir Pétur.
Fermingarmessur verða óbreytt-
ar hvað varðar tímasetningar og fyr-
irkomulag, þar til annað er ákveðið.
Komi hins vegar til þess að almanna-
varnir og sóttvarnalæknir telji rétt
að setja samkomubann verður
brugðist við og í því sambandi hefur
verið rætt um netútsendingar á
messunum. „Við einfaldlega fylgjum
fyrirmælum frá yfirvöldum og okkar
færasta fólki meðan hætta vegna
kórónaveirunnar er til staðar,“ segir
Pétur. „Mikilvægt er að stofnanir
fylgi fyrirmælum okkar allra fær-
ustu sérfræðinga, það er landlæknis,
sóttvarnalæknis og almannavarna.
Það er nefnilega fyrst og fremst
samstíga þjóð sem sigrast á þessum
veirufjanda. Ef menn kljúfa þá sam-
stöðu er hætta á upplausn og skipu-
lagsleysi.
Varnaðarorð vegna veirunnar eru
víða höfð uppi og við útför í kirkju í
Reykjavík í gær voru skilaboð prests
til kirkjugesta að taka ekki í hendur
aðstandenda eða faðma þá, heldur
sýna þeim hluttekningu með öðru
móti. Sýndi fólk því skilning og á
veitingastað þangað sem fólki var
boðið að lokinni athöfn voru spritt-
brúsar víða á borðum.
Vara við handa-
bandi og kirkju-
starf í lágmarki
Eldra fólk heima Engin faðmlög
Viðbrögð
» Fagkeppni Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna er um
næstu helgi. Í stað dagskrár er
nú aðeins gefinn út bæklingur
þar sem vörur verða kynntar.
» Fyrirhuguðum fundi Reykja-
víkurráðs ungmenna með
borgarstjórn sem boðað hafði
verið til í dag er frestað.
» Framkvæmdastjórn Eirar,
Skjóls í Reykjavík og Hamra í
Mosfellsbæ hefur lokað heim-
ilunum fyrir heimsóknum ætt-
ingja og annarra gesta.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laugarneskirkja Brugðist er við.