Morgunblaðið - 10.03.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
HÁDEGIS-
TILBOÐ
Mánudaga-föstudaga
kl. 11.00-14.30
Borðapantanir í síma 562 3232
Verð frá 990
til 1.990 kr.
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 7.900
Str. 36-52 • Fleiri litir
Buxur
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Eftir helgarvinnu í Vörusmiðju Bio-
Pol á Skagaströnd útskrifaðist hóp-
ur Vestfirðinga úr 80 kennslu-
stunda námskeiði: „Matarkistan
Vestfirðir/beint frá býli“. Á nám-
skeiðinu var kennt samkvæmt nám-
skrá Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins frá 2015.
Að sögn verkefnisstjóra nám-
skeiðsins, Sólveigar Bessu Magn-
úsdóttur, var það haldið á vegum
Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og
hófst 30. október á síðasta ári. Um
fjarkennslu var að ræða en nem-
endurnir, sem voru 19 talsins,
komu víðs vegar að af Vestfjörðum,
allt frá Brjánslæk á Barðaströnd og
að Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði í
Strandasýslu. Fræðslumiðstöðin
fékk styrk úr Sóknaráætlun Vest-
fjarða, sem gerði kleift að halda
námskeiðið. Á því hafa nemendur
fengið innsýn í fjölmargt sem
snertir framleiðslu og markaðs-
setningu á vörum beint frá býli,
meðal annars ostagerð, gerð gæða-
handbókar, hreinlæti og örveru-
fræði auk þess að fara í heimsókn
til framleiðenda.
Lokahnykkur um helgina
Núna um helgina var svo loka-
hnykkur námskeiðsins þegar fólkið
kom saman og framleiddi ýmiss
konar góðgæti úr kjöti og fiski í
vottuðu vinnslurými Vörusmiðj-
unnar. Þátttakendur fengu svo af-
hent viðurkenningarskjöl sín í lok
helgarinnar.
Við það tækifæri smökkuðu við-
staddir á afurðunum, sem voru allt
frá léttreyktum og krydduðum sil-
ungi yfir í þurrkað og marinerað
kjöt af ýmsu tagi. Létu nemendur
og kennarar afar vel af aðstöðunni í
Vörusmiðjunni sem opnar leið fyrir
fólk að framleiða vörur úr eigin
hráefni til að selja svo undir merk-
inu „beint frá býli“ og margfalda
þannig virði þess hráefnis sem það
framleiðir.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Námskeið Hluti Vestfirðinganna í fullum skrúða í Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd. Leiðbeinendurnir, Páll Frið-
riksson, lengst til vinstri, og Þórhildur M. Jónsdóttir, önnur frá hægri, kenndu hópnum á námskeiðunum í vetur.
Vestfirðingar á námskeiði
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA,
efndi sl. sunnudag til göngu um
Elliðaárdalinn í tilefni af Al-
þjóðadegi kvenna. Ákveðið var að
fagna deginum með breyttu sniði
þar sem skráning á baráttufund var
það dræm vegna kórónuveirunnar.
Yfirleitt hafa á annað hundrað fé-
lagskonur FKA komið saman á
þessum degi og fagnað saman.
Alþjóðanefnd FKE stóð fyrir
göngunni og var hin ágætasta mæt-
ing, enda stillt í veðri og sól á lofti.
Safnaðist hópurinn saman við
Sprengisand, með kaffi og kakó á
brúsa, og arkaði saman um dalinn.
Ljósmynd/FKA
Heilsubót Kátur hópur frá FKA gekk um Elliðaárdalinn sl. sunnudag.
FKA-konur gengu
á alþjóðadegi kvenna
Stjórn Félags Árneshreppsbúa hef-
ur ákveðið að fresta 80 ára afmæl-
ishátíð félagsins til hausts.
Félag Árneshreppsbúa er með
elstu starfandi átthagafélögum
landsins.
Vegleg afmælishátíð var fyr-
irhuguð í Félagsheimili Seltjarn-
arness nk. laugardag, en Krist-
mundur Kristmundsson, formaður
félagsins, segir að vegna kór-
ónuveirunnar hafi fyrrnefnd
ákvörðun um frestun verið tekin.
Afmælishátíð Árnes-
hreppsbúa frestað
Keflavíkurflugvöllur er á meðal
bestu flugvalla í Evrópu í sínum
stærðarflokki (5-15 milljónir ár-
legra farþega) hvað varðar þjón-
ustugæði. Þetta sýna niðurstöður
alþjóðlegrar þjónustukönnunar
sem framkvæmd er á helstu flug-
völlum heims á vegum Alþjóða-
samtaka flugvalla (ACI).
Keflavíkurflugvöllur hefur verið
á meðal þátttakenda í könnunum
ACI frá árinu 2004 og hefur alla tíð
verið ofarlega á evrópska listanum,
sem telur yfir 100 flugvelli vítt og
breitt um álfuna.
„Nú er ljóst að Keflavík-
urflugvöllur er einn af þeim átta
sem fá hæsta meðaleinkunn í könn-
uninni og hlýtur því sérstaka við-
urkenningu ACI fyrir þjón-
ustugæði,“ segir m.a. í tilkynningu
frá Isavia.
Aðrir sem hljóta viðurkenningu í
sama flokki eru flugvellirnir í
Björgvin í Noregi, Izmir í Tyrk-
landi, Sochi í Rússlandi, Luqa á
Möltu, Newcastle á Englandi og
Porto-flugvöllur í Portúgal.
Flugvöllurinn með þeim bestu í Evrópu
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Flugvöllurinn er með þeim
bestu í Evrópu samkvæmt nýrri könnun.
Óeining um valdmörk og yfirstjórn-
unarhlutverk ríkislögreglustjóra
hefur á undanförnum árum leitt til
þess að lögreglustjórar hafa í aukn-
um mæli leitað beint til dómsmála-
ráðuneytis vegna ýmissa mála í stað
ríkislögreglustjóra.
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á
embætti ríkislögreglustjóra sem birt
var í gær. Stofnunin tók ákvörðun
um að ráðast í úttektina í kjölfar
þess að embætti hans óskaði eftir at-
hugun Ríkisendurskoðunar á rekstri
bílamiðstöðvar ríkislögreglustjóra.
Telur Ríkisendurskoðun að
endurskoða þurfi lögreglulög og
skýra hlutverk ríkislögreglustjóra
en í skýrslunni kemur sömuleiðis
fram að vænlegast sé að á Íslandi
verði í framtíðinni ein lögregla sem
starfi undir sameiginlegri stjórn
óháð fjölda umdæma eða fyrirkomu-
lagi einstakra verkefna innan skipu-
lagsins.
Athugun Ríkisendurskoðunar
leiddi einnig í ljós að það hefði tekið
embætti ríkislögreglustjóra rúm
fjögur ár að koma útboðsmálum
vegna fatnaðar lögreglu í viðunandi
horf en þjónustuhlutverk ríkislög-
reglustjóra hefði sætt gagnrýni inn-
an lögreglunnar, sérstaklega sam-
eiginleg þjónusta ríkislögreglustjóra
í tengslum við rekstur bílamiðstöðv-
ar og kaup á búnaði og fatnaði lög-
reglumanna.
„Draga þarf lærdóm af rekstri
bílamiðstöðvar ríkislögreglustjóra
og koma á fót ásættanlegu kerfi í
tengslum við ökutæki lögreglu,“
segir í samantekt um úttekt Ríkis-
endurskoðunar.
Öflugt faglegt starf
Þar segir einnig að í gegnum árin
hafi embætti ríkislögreglustjóra ver-
ið falin ýmis ábyrgðarhlutverk innan
löggæslunnar, s.s. rekstur sér-
sveitar, almannavarnadeildar, al-
þjóðadeildar, landamæradeildar,
greiningardeildar, stoðdeildar og
fleiri eininga. Um sé að ræða verk-
efni sem mikilvægt sé að sé sinnt á
landsvísu. Almennt hafi ríkt góð sátt
um þessi verkefni og þau séu m.a. til
marks um þá eflingu og framþróun
löggæslunnar sem átt hafi sér stað
frá því að embætti ríkislögreglu-
stjóra var komið á fót. Faglegt lög-
gæslustarf innan embættis ríkislög-
reglustjóra hafi þannig verið öflugt
þrátt fyrir togstreitu um yfirstjórn
lögreglu á síðustu árum.
Ein lögregla
undir sömu stjórn
Endurskoða þarf lögreglulög og
skýra hlutverk ríkislögreglustjóra