Morgunblaðið - 10.03.2020, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Kristófer Oliversson, eigandi Cent-
er-hótela og formaður FHG - Fyr-
irtækja í hótel- og gistiþjónustu, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að í
ljósi alvarlegrar sviðsmyndar sem
blasi við í íslenskri ferðaþjónustu,
vegna Kórónuveirunnar, sé rétti
tíminn nú til að
afnema gistinátt-
askattinn, sem
lagður var á hót-
elin í landinu 1.
janúar 2012 og
síðan þrefaldaður
á árinu 2017.
Innan bíla-
leigugeirans er
einnig rætt um
aðkomu yfir-
valda, en viðmæl-
endur Morgunblaðsins vilja að inn-
leiddur verði á ný afsláttur af
vörugjöldum bílaleigubíla, sem af-
numinn var um áramótin 2017 –
2018.
Spurður nánar um viðbrögð yfir-
valda til að sporna við ástandinu sem
skapast hefur segir Kristófer að
ásamt lækkun gistináttaskattsins sé
nauðsynlegt að fara í markaðssókn
til að kynna landið fyrir ferðamönn-
um, sem öruggan áfangastað. „Gisti-
náttaskatturinn er búinn að gera
okkur mikinn óleik. Þetta er auka
tryggingagjald sem lagt var á hót-
elin eingöngu í þessu undarlega
ástandi sem skapaðist eftir hrun
þegar hótelunum gekk sæmilega í 2
– 3 ár. Nú viljum við að menn nýti
tækifærið við gerð fjármálaáætlunar
ríkisstjórnarinnar til þess að afnema
gistináttskattinn,“ segir Kristófer.
Airbnb veldur tjóni
Þriðja atriðið sem Kristófer nefnir
er AirBNB heimagistingin, sem
valdi bæði tjóni fyrir hótelin í land-
inu, og á markaðnum almennt. „Eins
og bent var á í útvarpsþættinum
Sprengisandi s.l. sunnudag þá hefur
AirBNB útleiga haft þau áhrif að
húsaleiga hækkar upp úr öllu valdi
og fólk á lægstu laununum, sem er á
leigumarkaði, býr við það að leigan
hækkar og hækkar og étur upp allar
launahækkanir. Við hótelmenn höf-
um hamrað á því í mörg ár að þessi
atvinnurekstur í íbúðahverfum er af-
ar ósanngjarn og skekkir rekstrar-
umhverfi hótelanna. Það eru fleiri
herbergi í boði á Air BNB en á hót-
elmarkaði og AirBNB-rekstur er
undanþegin gistináttaskatti, virðis-
aukaskatti, öllum leyfum og með
90% afslátt af fasteignaskatti miðað
við hótelin.“
Af samtölum Morgunblaðsins við
aðila á markaðnum má greina að
uppsagnir séu yfirvofandi í hótel – og
veitingageiranum. Kristófer er
ómyrkur í máli er hann er spurður út
í það atriði. Hann segir að aðilar í
greininni hafi miklar áhyggjur. Sal-
an sé að detta niður á mesta sölutíma
ársins á sama tíma og lífskjarasamn-
ingarnir komi til framkvæmda af
fullum krafti um næstu mánaðamót.
Þá hækki taxtar bæði VR og Efling-
ar um ca. 8%. Kristófer segir að
reikningsdæmið sé ekki flókið þegar
kostnaður hækki, en tekjur dragist
saman á sama tíma. „Það þarf enga
snillinga til að reikna þetta dæmi til
enda. Okkar stærstu kostnaðarliðir
eru laun.“
Kristófer kallar eftir því að stjórn-
völd taki afgerandi forustu í málefn-
um greinarinnar, eins og ítrekað hef-
ur verið kallað eftir m.a. í
Morgunblaðinu undanfarna daga.
„Það er mikið ákall frá okkur í hót-
elgeiranum að stjórnvöld fari að
sýna forystu, taki stjórnina með af-
gerandi hætti og komi á heilbrigðu
rekstrarumhverfi í hótelgeiranum.“
Sala bílaleigubíla gengur hægt
Þeir aðilar á bílaleigumarkaði sem
Morgunblaðið ræddi við bentu meðal
annars á að bíleigur gætu gripið til
þess ráðs að selja frá sér bíla en hót-
elin gætu ekki selt frá sér herbergin.
Salan gengi þó erfiðar núna vegna
verkfallsaðgerða undanfarið, en öll
óvissan sem fylgdi slíkum aðgerðum
og umræðu yrði til þess að fólk héldi
að sér höndum við stórar kaup-
ákvarðanir.
Einn af viðmælendum blaðsins
sagði að sala bílaleigubíla væri núna
fjórum sinnum minni en í janúar.
Mikið hefur verið um afbókanir frá
ferðamönnum sem koma frá Asíu, og
til dæmis hefur dregið úr komu taív-
anskra ferðamanna, sem litið er á
sem verðmætustu viðskiptavini bíla-
leiganna. Þeir dvelji lengur en aðrir,
leigi dýrari bíla og kaupi meira af
tryggingum en aðrir.
Almennt er talið að þær bílaleigur
sem eigi mikil viðskipti við asíska
ferðamenn verði harðar úti en aðrar,
nú þegar kórónuveiran geisar.
Viðmælandi blaðsins benti á að
ferðamenn sem kæmu hingað með
hópum og ættu pöntuð rútuferðalög
leigðu sér í staðinn bílaleigubíla til að
forðast margmenni í rútunum til að
komast hjá smiti.
Varðandi mögulegar uppsagnir í
bílaleigugeiranum sögðu menn að
það gæti verið snúið að segja upp
fólki á þessum tímapunkti. Fólk væri
með þriggja mánaða uppsagnarfrest
og ekki mætti missa starfsfólk yfir
háönnina í sumar þó að ástandið
væri slæmt í augnablikinu.
Kórónuveiran hefur einnig áhrif á
bílakaup bílaleiganna, en þær halda
að sér höndum í pöntunum á nýjum
bílum. Leiða má líkur að því að
hundruð bíla sem annars væru pant-
aðir hjá íslenskum bílaumboðum séu
nú ekki pantaðar vegna veirunnar.
Eins og viðmælandi Morgunblaðs-
ins benti á var afsláttur af vörugjöld-
um til bílaleiga, sem afnuminn var
áramótin 2017-2018, ein helsta
ástæða þess hve bílaleigum fjölgaði
hratt hér á landi eftir hrun.
Stór hluti hagnaðar bílaleiganna
hefði komið til vegna þessarar með-
gjafar frá yfirvöldum, en hægt var að
selja bíl með hagnaði eftir að hafa átt
hann í 15 mánuði. Afslátturinn hefði
numið 250 þúsund krónum auk virð-
isaukaskatts.
Eins og kom fram á ferðaráð-
stefnu í haust er talið að ef hægt
væri að lengja dvöl allra ferðamanna
á landinu um einn dag þýddi það 110
milljarða tekjuauka, miðað við tvær
milljónir ferðamanna. Það gæti rétt-
lætt afslátt vörugjalda á ný, til að
liðka fyrir lengri veru ferðamanna
hér á landi.
Kalla eftir aðgerðum
Morgunblaðið/Eggert
Túrismi Ferðamönnum frá Asíu hefur fækkað vegna kórónuveirunnar.
Hótelin vilja gistináttaskattinn burt Bílaleigurnar vilja aftur afslátt af
vörugjöldum Stefnir í uppsagnir starfsfólks á hótelum um næstu mánaðamót
Gjöld
» Gistináttaskattur er sér-
stakur skattur sem lagður er á
sölu gistingar. Skatturinn var
tekinn upp 1. janúar 2012 og
eru lagðar 300 krónur á hverja
selda gistináttaeiningu.
» Bílaleigubíla var hægt að
kaupa með afslætti til 2018.
Kristófer
Oliversson
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
10. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.02 126.62 126.32
Sterlingspund 163.76 164.56 164.16
Kanadadalur 93.93 94.49 94.21
Dönsk króna 19.063 19.175 19.119
Norsk króna 13.603 13.683 13.643
Sænsk króna 13.418 13.496 13.457
Svissn. franki 134.32 135.08 134.7
Japanskt jen 1.1971 1.2041 1.2006
SDR 175.23 176.27 175.75
Evra 142.4 143.2 142.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.6329
Hrávöruverð
Gull 1687.0 ($/únsa)
Ál 1686.5 ($/tonn) LME
Hráolía 50.25 ($/fatið) Brent
Ákveðið hefur
verið að fækka í
framkvæmda-
stjórn Marels úr
tólf niður í níu, en
samhliða breyt-
ingunum taka
tvær nýjar konur
sæti í fram-
kvæmdastjórn-
inni. Árni Oddur
Þórðarson, for-
stjóri Marels, segir að markmið
breytinganna sé að styðja við vaxt-
armarkmið félagsins með einfaldara
og skilvirkara skipulagi. Guðbjörg
Heiða Guðmundsdóttir hefur verið
skipuð framkvæmdastjóri fiskiðn-
aðar Marels.
Anna Kristín Pálsdóttir hefur ver-
ið skipuð framkvæmdastjóri ný-
sköpunar og þróunar.
Breytir
skipulagi
Árni Oddur
Þórðarson
Marel fækkar
framkvæmdastjórum
Gengi hlutabréfa í sádi-arabíska
ríkisolíufélaginu Aramco hafa lækkað
um 15,6% miðað við gengi þeirra þeg-
ar félagið var fyrst skráð á markað í
desember. Þá var heildarverðmæti
bréfanna um 1.700 milljarðar banda-
ríkjadala, að því er fram kemur í um-
fjöllun Reuters um málið. Jafngildir
það því að verðmæti fyrirtækisins
hafi staðið í 216,6 þúsund milljörðum
íslenskra króna. Nemur því virð-
islækkun þess á markaði frá skrán-
ingardegi um 34 þúsund milljörðum
íslenskra króna.
Verð hráolíu á heimsmarkaði hefur
lækkað mikið að undanförnu auk
þess sem olíuverð í Bandaríkjunum
hefur fallið um 34% síðustu sólar-
hringa. Eru viðbrögð á olíu-
mörkuðum rakin til tveggja megin-
þátta. Í fyrsta lagi minni eftirspurnar
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og
í öðru lagi hefur Aramco boðað verð-
stríð á mörkuðum og boðað aukna
framleiðslu í sínum ranni.
Stuðla að verðhruni
Ákvörðun Aramco um fram-
leiðsluaukningu kemur eftir að Rúss-
ar höfnuðu því að taka þátt í aðgerð-
um OPEC til þess að skapa stöðugra
olíuverð á mörkuðum með því að
draga úr framleiðslu.
Reuters hefur eftir Akber Khan,
yfirmanni eignastýringar hjá Al Ra-
yan Investment, að viðbrögð Sáda
séu endurtekning á sambærilegum
viðbrögðum árið 2014. Telur hann að-
gerðir Aramco nú stuðla að verðhruni
í þeim tilgangi að skapa erfiðari stöðu
fyrir framleiðendur sem búa við
hærri framleiðslukostnað en Aramco.
gso@mbl.is
33 þúsund
milljarðar
þurrkast út