Morgunblaðið - 10.03.2020, Page 14
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Íslendingar virðast búa viðmeira öryggi á netinu enflestar aðrar þjóðir í Evrópu.Til þess bendir rannsókn sem
fyrirtækið Specops Software hefur
gert á því hvaða lönd í álfunni verða
oftast fyrir netárásum. Var sjónum
beint að þeim árásum á tölvur í við-
komandi löndum sem tengjast skýja-
þjónustu (Microsoft Azure), greftri
rafeyris, spilliforritum (e. malware)
og gagnagíslatöku (e. ransomware).
Tilkynningum til lögreglu hér á
landi um hvers kyns netsvindl hefur
fjölgað mjög verulega á undan-
förnum árum. Þá hefur árásum á ís-
lenskar tölvur að utan fjölgað mjög.
En ef marka má rannsókn Specops
Software er ástandið í þessum efn-
um hér mjög gott miðað við það sem
mörg önnur lönd í Evrópu búa við.
Samkvæmt skrá yfir þau lönd sem
búa við ótryggasta netöryggi í álf-
unni er Ísland í 28. sæti af 32. Efst á
blaði eru Holland og Búlgaría,
Hvíta-Rússland og Úkraína.
Fyrirtækið gerði einnig lista yfir
þau 32 Evrópulönd sem búa við mest
netöryggi og lenti Ísland þá í 5. sæti.
Fyrir ofan okkur eru Írland, Nor-
egur, Danmörk og Sviss, en fyrir
neðan okkur Svíþjóð, Belgía,
Lúxemborg, Tékkland og Finnland.
Staða Hollands vekur sérstaka at-
hygli. Þar verða tölvueigendur fyrir
flestum netárásum. Það sem mestu
veldur um það er mikill fjöldi árása á
skýjaþjónustu (Microsoft Azure)
sem þar er boðið upp á.
Sérfræðingar Specops Software
benda á þrjú atriði sem tölvunot-
endur ættu að tileinka sér vilji þeir
komast hjá því að verða fórnarlömb
netglæpa. (1) Ekki nota sama lykil-
orðið á aðganga á öllum vefsvæðum
sem þið notið. Það gerir bófunum
auðveldara fyrir takist þeim að
brjótast inn á eitt svæði. (2) Notið
margra þátta auðkenningu við inn-
skráningu. Þetta er t.d. hægt að gera
með því að fá kóða sendan í símann
sinn og slá hann inn auk lykilorðsins.
Töf notandans er innan við mínúta
en gagnaöryggið margfalt. (3) Aldrei
smella á slóðir sem þið eruð ekki
örugg með. Gervislóðir sendar í
tölvupóstum eru mikið notaðar af
netbófum til að komast inn í
tölvur.Við rannsóknina var notast
við upplýsingar frá Microsoft Azure
og Microsoft Security Intelligence
Report frá janúar 2018 og fram í
október 2019.
Hátt hlutfall lent í vandræðum
Þess má geta til samanburðar að í
febrúar var greint frá því í Morgun-
blaðinu að hlutfall þeirra sem lent
hefðu í vandamálum með öryggi á
netinu væri talsvert hærra hér á
landi en meðaltal Evrópuríkja segir
til um. Var vísað í nýbirtar tölur
Eurostat, Hagstofu Evrópusam-
bandsins, þar sem fram kemur að
46% Íslendinga á aldrinum 16-74
telja sig hafa lent í öryggisvanda-
málum á netinu. Tölurnar ná til árs-
ins 2019 og eiga við netnotkun fólks í
einkalífi þess síðustu tólf mánuði þar
á undan.Að meðaltali hafa 32% Evr-
ópubúa lent í vandamálum með net-
öryggi. Hlutfallið er hæst í Noregi,
66%, en Sviss, Bretland, Danmörk
og Frakkland koma þar á eftir.
Lægst er hlutfallið hins vegar í
Litháen, aðeins 7%.
Flestir þeirra sem lent hafa í
vandamálum tengdum öryggi á net-
inu vísa til svokallaðra vefveiða (e.
phishing) og annarra tilrauna til
fjársvika eða söfnunar upplýsinga.
Þetta á til dæmis við um það þegar
fólk fær tölvupóst um að það eigi að
fara í heimabankann sinn og leið-
rétta eitthvað. Viðkomandi fær þá
tengil sem hann á að smella á til að
færa sig beint yfir í heimabankann,
en það er í raun fölsk síða. Ekki
fylgir sögunni hvort þeir sem telja
sig hafa lent í vandamálum með net-
öryggi séu í raun fórnarlömb slíkra
árása eða einungis tilrauna til
þeirra.
Ísland í fimmta sæti
netöryggis í Evrópu
Netöryggi í Evrópu
Netárásir* á tölvur í Evrópulöndum sem tengjast skýjaþjónustu
Nr. Land Fjöldi árása
1 Holland 17,6%
2 Búlgaría 17,6%
3 Hvíta-Rússland 10,8%
4 Úkraína 10,4%
5 Bosnía og Hersegóvína 7,1%
6 Litháen 6,4%
7 Rúmenía 6,2%
8 Frakkland 5,4%
9 Ungverjaland 4,8%
10 Króatía 4,6%
Nr. Land Fjöldi árása
11 Lettland 4,5%
12 Spánn 4,5%
13 Grikkland 4,3%
14 Ítalía 4,2%
15 Pólland 4,0%
16 Portúgal 3,8%
17 Bretland 3,8%
18 Þýskaland 3,6%
19 Eistland 3,5%
20 Austurríki 3,5%
21 Slóvakía 3,3%
Nr. Land Fjöldi árása
22 Slóvenía 3,2%
23 Finnland 3,0%
24 Tékkland 2,7%
25 Lúxemborg 2,0%
26 Belgía 2,0%
27 Svíþjóð 1,9%
28 Ísland 1,8%
29 Sviss 1,7%
30 Danmörk 1,6%
31 Noregur 1,4%
32 Írland 1,1%
Heimild: Specops
Software
1-3,3%
3,4-4,5%
4,6-9,9%
10% +
*Gröftur rafeyris,
spilliforrit (malware)
og gagnagíslataka
(ransomware)
28
23
27
1732
8
12
181 15
3
4
7
2
30
14
13
24
21
9
1022
5
26
25
2029
19
11
6
16
31
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Kórónuveirangerir siggildandi.
Heimurinn fór ekki
vel af stað í vörnum
sínum og það er
reyndar skilj-
anlegt. Það tók yf-
irvöld í Kína tíma að gera sér
fulla grein fyrir því að vand-
anum yrði ekki leynt. Og um-
heimurinn þurfti tíma til að ná
vopnum sínum.
Það er ódýrt, í krafti eft-
iráspeki, að hafa uppi stór orð.
En nú vitum við að fyrstu við-
brögðin voru of veik. Farþegar
frá sýktum svæðum fengu
skyndimælingu á hita, sem var
betra en ekkert, en ekki mikið
betra. Seinna varð ljóst að fólk
gengur einkennalaust með veir-
una dögum saman. Flugvélar
frá tilteknum stöðum, sem búið
var að merkja sem hættusvæði,
fengu þessa lágmarksathugun.
Og eftir að byrjað var víða að
setja fólk í einangrun sluppu
farþegar frá sýktum svæðum
frá því, með því að fara um
nokkurn veg að flugvelli sem lá
ekki undir grun.
Nú, þegar margir hafa sann-
færst um að of margar þjóðir
hafi misst tökin á veirunni eiga
aðrir hitamælar leik. Stærstu
kauphallir eru í „frjálsu falli“.
Öflugustu olíuframleiðendur
heims eru komnir í við-
skiptastríð. Jafnvel
fyrirtæki með
traustan rekstur,
sem þurfa þó að
byggja á sverum
varasjóðum, eins og
tryggingafélög, eru
skyndilega með sín
mál í uppnámi, þótt ekkert sé að
í rekstrinum. Ekki þarf að fjöl-
yrða um flugvéla- og ferðaiðnað.
Þeirra vor og þeirra sumar eru
farin og hin veika von er öll
hengd á haustið. Á Íslandi, þar
sem kaupmáttur er með því
hæsta sem þekkist, telja sér-
stakir fulltrúar veruleikafirr-
ingar tilvalið að blása til verk-
falla.
Það varpast eins og ósjálfrátt
óblíðar myndir á hina ósýnilegu
veggi. Þannig hefur mikið verið
rætt um þrjár milljónir flótta-
manna sem Erdogan geymi inn-
an girðinga fyrir Evrópusam-
bandið. Hvað gerist ef pestin
berst þangað? Milljónir á
þröngu svæði, án helstu nauð-
synja hins daglega lífs? Þar
þýðir lítið að segja fólki að þvo
sér um hendurnar. Þar eru eng-
ir Gvendarbrunnar eða spritt.
Þar er enginn annar kostur á að
einangra óboðinn vírus en sá að
loka milljónirnar inni með hon-
um.
Og þar getur enginn bjargað
sér með því að láta skíðaferð á
móti sér.
Kannski er hættan
af kórónuveiru
ofmetin, en hver
hefur efni á að
vanmeta hana?}
Mikil alvara, föst tök
Íslendingar eigavinum að mæta
í Færeyjum og
mætti nefna marg-
an mann í því sam-
hengi. Þeir hafa oft
sýnt sinn góða hug
í garð Íslendinga,
og nú síðast þegar landið gekk í
gegnum afleiðingar banka-
kreppu. Einn af þessum þrótt-
miklu vinum hefur nú lagt
stjórnmálaskó sína á hilluna.
Hann hefur raunar borið marga
ólíka skó á fótum síðustu ára-
tugi. Þetta er Poul Michelsen.
Hann var í Fólkaflokknum í
fjörutíu ár. Sat á Lögþinginu í
nokkurn tíma fyrir flokkinn. En
Poul var jafnframt borgarstjóri
í Þórshöfn frá árinu 1981 til
1992. Árið 2010 skildi leiðir
hans og Fólkaflokksins og Poul
Michelsen stofnaði nýjan flokk,
Framsókn. Fyrir þann flokk sat
Poul í Landstjórninni og gegndi
m.a. embætti utanríkisráð-
herra.
Poul Michelsen hefur lengi
verið með öflugustu athafna-
mönnum í Færeyjum. Hann hóf
nýlendurvöruverslun í herbergi
heimilis síns árið 1974 og hefur
því starfað að viðskiptum í tæpa
hálfa öld. Fyrirtæki hans hafa
haft frá tugum og í vel á annað
hundrað manns í
vinnu gegnum tíð-
ina. Sólrún, eig-
inkona Pouls, hefur
iðulega lagt hönd á
plóg rekstursins,
en hún er sjálf
þekktur rithöf-
undur.
Poul Michelsen hefur vegna
reksturs síns átt mikil skipti við
einstaklinga og fyrirtæki hér á
landi og góð kynni við marga ís-
lenska stjórnmálamenn.
Hann hefur alla tíð verið
áhugasamur um færeyska
íþróttastarfsemi og hefur sjálf-
ur náð einkar góðum árangri
þar. Hann varð færeyskur
meistari með liði sínu
HBThorshavn og skoraði mörk-
in tvö í úrslitaleiknum (2-1).
Hann var einnig nokkrum sinn-
um bikarmeistari með sama fé-
lagi. Hann er enn liðtækur bad-
mintonspilari, en hann varð
landsmeistari í badminton
1966-1975 og jafnframt oft
meistari í tvíliðaleik á sama
tímabili. Hann var einnig Fær-
eyjameistari í borðtennis
nokkrum sinnum.
Vigdís Finnbogadóttir for-
seti veitti Poul Michelsen ridd-
arakross Fálkaorðunnar árið
1991.
Góð og öflug
samskipti við
Færeyjar er báðum
þjóðum til góðs ef
vel er á haldið}
Íslandsvinur setur skó á hillu
Á
árunum 2013 til 2019 fjölgaði Suð-
urnesjamönnum úr 21.560 íbúum í
27.730 eða um 6.524 íbúa. Þetta er
30% fjölgun en á sama tíma var
meðalfjölgun á landinu öllu 12%.
Áætlanir stjórnvalda miða jafnan við að íbúum
fjölgi að meðaltali um 1% á ári. Fjölgun íbúa á
Suðurnesjum á milli áranna 2017 og 2018 var
7,4%.
Á Suðurnesjum búa hlutfallslega fleiri á aldr-
inum 21-45 ára en annars staðar á landinu og
börn undir fimm ára aldri eru þar líka hlutfalls-
lega fleiri. Hlutfall erlendra íbúa er um 23% en
er 12,5% á höfuðborgarsvæðinu og 13,7% á
landsbyggðunum.
Lýðheilsuvísar Landlæknis sýna að hvergi á
landinu er eins mikil þörf fyrir bætta heilbrigð-
isþjónustu og á Suðurnesjum.
Þetta eru tölulegar upplýsingar frá því í október í fyrra.
Þær lágu allar fyrir þegar fjárlagafrumvarpið var sam-
þykkt. Þetta eru staðreyndir.
Nú halda lesendur kannski að tekið hafi verið tillit til
þessara þátta við ákvörðun fjárveitinga með fjárlögum. Að
stjórnvöld hafi ekki aðeins horft á meðaltöl fyrir landið allt
heldur metið aðstæður fyrir hvert landsvæði fyrir sig og
mætt þörfum íbúa. En nei, svo er ekki.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fær lægsta fram-
lag á íbúa til heilsugæslu í fjárlögum 2020. Og líka í eldri
fjárlögum, en þar skera í augun árin 2017-2019 þegar mesta
fjölgunin varð. Álag hefur einnig aukist vegna fjölda far-
þega sem fara um flugstöð Leifs Eiríkssonar og þarfnast
þjónustu HSS.
Mikil fjölgun íbúa og ferðamanna um Leifs-
stöð hefur ekki heldur orðið til þess að framlög
til löggæslu aukist að sama skapi heldur þvert á
móti hlutfallslega minna en á öðrum svæðum
með minni umsvif. Framlög til almennrar lög-
gæslu halda ekki í við íbúaþróun sem kemur
niður á þjónustu við íbúa.
Umferð um Reykjanesbrautina hefur nærri
tvöfaldast á síðustu sex árum. Samt er ekki gert
ráð fyrir framkvæmdum svo heitið geti fyrr en
á árunum 2025-2029. Og viðhaldi er ábótavant.
Á dögunum skoraði stjórn Almannavarna á
sveitarfélög og þingmenn svæðisins að krefjast
þess strax að rekstrargrundvöllur HSS verði
styrktur verulega og að lokið verði við tvöföldun
Reykjanesbrautar alla leið að flugstöð. Svo al-
varleg er staðan orðin.
Í Reykjanesbæ búa um 19.000 manns. At-
vinnuleysi þar er nú rétt um 10% og fer vaxandi. Atvinnu-
leysi á landinu öllu er 3,6%. Þörfin fyrir fjölbreytt náms-
framboð og gott aðgengi að símenntun er knýjandi.
Oft finnst Suðurnesjamönnum að stjórnvöld komi fram
við þá eins og betlara sem biðja um ölmusu þegar þeir kalla
eftir sjálfsagðri velferðarþjónustu.
Í lok mars mun fjármálaráðherra mæla fyrir nýrri fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar. Geta ekki allir sem lesa
þennan pistil, líka framsóknarmenn, vinstrigrænir og sjálf-
stæðismenn, verið sammála um að mæta þurfi stöðu Suð-
urnesja með afgerandi hætti í þeirri áætlun?
oddnyh@althingi.is
Oddný G.
Harðardóttir
Pistill
Ölmusa eða sjálfsögð þjónusta
Höfundur erþingmaður Samfylkingarinnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen